Fréttablaðið - 19.03.2022, Qupperneq 40
SVIÐSSTJÓRI FORVARNASVIÐS
Hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins starfar öflugur hópur fólks
að fjölbreyttum verkefnum á sviði brunavarna og sjúkraflutninga,
ásamt ýmsum öðrum verkefnum á sviði björgunar, forvarna og
almannavarna.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins | www.shs.is
Starf sviðsstjóra forvarnasviðs Slökkviliðs höfuð borgar svæðisins er
laust til umsóknar. Sviðið hefur eftirlit með því að ákvæðum laga
og reglna á sviði brunavarna sé fylgt með virku eld varnareftirliti
ásamt því að sinna forvörnum á sviði brunavarna á þjónustusvæði
slökkviliðsins.
Á sviðinu starfa í dag 11 einstaklingar við skoðanir og hönnunareftirlit.
Sviðsstjóri for varna sviðs er hluti af framkvæmdastjórn slökkviliðsins.
Starfið er umfangsmikið og krefjandi og hentar einstaklingi sem hefur
góða samskiptafærni, lausnamiðaða hugsun og brennandi áhuga á að
vinna að úrbótum og forvörnum á sviði brunavarna.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, tæknifræði,
arkitektúr eða byggingafræði
• Árangursrík reynsla af stjórnun umfangsmeiri verkefna
• Reynsla af mannaforráðum er kostur
• Áhugi á brunavörnum
• Reynsla af vinnu þar sem reynir á stjórnsýslu kostur
• Góð tölvufærni
• Mjög góð íslenskukunnátta og góð ensku kunnátta,
þekking á einu Norðurlandamál er kostur
• Ákveðni, drifkraftur og framsækni
• Færni og lipurð í mannlegum samskiptum
Um er að ræða 100% starf. Við hvetjum öll, óháð kyni, til að sækja
um. Nánari upplýsingar veitir Guðný E. Ingadóttir, mannauðsstjóri á
gudnye@shs.is eða í síma 528-3000.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar
sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og færni til að
gegna starfinu. Umsókn berist á netfangið starf@shs.is.
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2022
Við leitum að jákvæðum og kraftmiklum starfskrafti í fjölbreytta og
krefjandi stöðu á skrifstofu forstjóra Landsvirkjunar. Starfið felur meðal
annars í sér almenn skrifstofustörf, skjalagerð, yfirferð og rýni texta,
umsjón með samskiptum til og frá skrifstofu forstjóra og þjónustu við
stjórn og undirnefndir hennar. Um er að ræða 80% starfshlutfall.
Hæfniskröfur:
– menntun sem nýtist í starfi
– lipurð í mannlegum samskiptum
– sjálfstæði, frumkvæði og skipulagsfærni
– framúrskarandi íslenskukunnátta
– mjög góð tölvukunnátta
– færni í ensku
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars
Sótt er um starfið hjá Hagvangi
hagvangur.is
Starf
Fjölbreytt starf á
skrifstofu forstjóra