Fréttablaðið - 19.03.2022, Side 78
Ford notar nú samstarf sitt
við Volkswagen til að rafvæð-
ast og hefur kynnt að von sé á
þremur jepplingum og fjórum
sendibílum fyrir 2024.
njall@frettabladid.is
Ford hefur sent frá sér áætlanir sínar
um raf bílavæðingu næstu ára og
meðal þess sem er að vænta er raf-
drifin Puma árið 2024. Annað sem
er á leiðinni eru tveir stærri jepp-
lingar ásamt fjórum sendibílum.
Stærri jepplingarnir munu fá MEB
undirvagninn frá Volkswagen sem
er í ID.4 en Puma mun þó líklega
nota sama undirvagn áfram með
breytingum fyrir rafbíl. Talað er um
drægi yfir 320 km svo að hann mun
keppa við bíla eins og Opel Mokka
og Peugeot e-2008. Ford Puma hefur
verið vinsæll bíll hjá Ford og selst
betur en Fiesta á Bretlandseyjum.
Fyrsti bíllinn sem verður frum-
sýndur í þessum hópi er þó stærri
jepplingur en Puma og er um fimm
sæta jeppling að ræða í sama flokki
og ID.4. Sá bíll verður með 500 km
drægi og verður frumsýndur í lok
þessa árs, en hann fer í sölu á næsta
ári. Á myndum sem Ford hefur látið
frá sér má sjá að ljósin eru ný og sitja
hærra, sem gefur fyrirheit um alveg
nýtt útlit. Bíllinn hefur ekki fengið
nafn enn þá og verður það líklega
ekki tilkynnt fyrr en hann verður
frumsýndur. Sportlegur jepplingur
verður einnig frumsýndur 2024 líkt
og Ford Puma. Sendibílarnir munu
fá MEB undirvagninn sem verður
undir VW Buzz og kemur sá fyrsti
árið 2023. n
Rafdrifin Ford Puma kemur 2024
Ný rafdrifin
Puma er vænt-
anleg eftir tvö ár
og af myndinni
að dæma mun
útlitið ekki
breytast mikið
að framan alla-
vega.
Ford mun koma með þrjá nýja jepplinga á næstu tveimur árum til viðbótar við Mustang Mach-E. MYNDIR/FORD
Sendibílar
munu fá
MEB undir-
vagninn
sem verður
undir VW
Buzz.
njall@frettabladid.is
Þó að nýr EQS jepplingur verði ekki
frumsýndur fyrr en seinna á þessu
ári hefur Mercedes látið frá sér
fyrstu myndir af bílnum í léttum
felubúningi.
Um sjö sæta rafjeppling er að
ræða sem keppa mun við BMW iX
og Tesla Model X. Myndirnar sýna
einnig innréttingu bílsins sem
verður með sama 55 tommu skjá og
er í EQS fólksbílnum.
Innréttingin er líka að mestu
leyti sú sama og í EQS en bíllinn fær
afþreyingarpakkann úr honum líka
með tveimur 11,6 tommu skjám
fyrir farþega í aftursætum.
Framendi bílsins er með líkindi
við EQA og bíllinn er búinn hefð-
bundnum hliðarspeglum. Einnig
mun vera von á Maybach lúxus-
útgáfu við frumsýningu bílsins. n
Mercedes sýnir
fyrstu myndir af
EQS jepplingnum
EQS rafjepplingurinn við prófanir í
Svíþjóð þar sem blaðamaður Auto-
car fékk að prófa bílinn.
njall@frettabladid.is
Það er engum blöðum um það að
fletta að rafdrifnir blendingsbílar
eru vinsælir bæði hjá kaupendum
og dómnefndum. Tilkynnt var á
fimmtudag um hvaða þrír bílar eru
í efstu sætunum í valinu á Heimsbíl
ársins 2022, en þeir eru allir í sama
flokki. Allir eru þeir sportlegir blend-
ingsbílar og aðeins framleiddir raf-
drifnir. Einn þeirra var nýlega valinn
bíll ársins í Evrópu, en það er Kia
EV6, annar er byggður á sama grunni
og hann sem er Hyundai Inoiq 5 og
sá þriðji er beinn keppinautur þeirra,
Mustang Mach-E.
Einnig er tilkynnt um hvaða þrír
bílar eru efstir í öðrum flokkum
valsins, en Hyundai Ioniq 5 er einnig
Tilkynnt um þrjá efstu í World Car 2022
Hyundai Ioniq
5 er í úrslitum í
þremur flokkum
sem eru aðal-
valið, rafbíll árs-
ins og hönnun
ársins.
MYND/TRYGGVI
ÞORMÓÐSSON
í úrslitum á rafbíl ársins ásamt Audi
E-Tron GT og Mercedes-Benz EQS.
Hann er líka í úrslitum sem Hönnun
ársins ásamt Audi E-Tron GT og Kia
EV6. Audi E-Tron GT er einnig í mörg-
um flokkum því að hann er í úrslit-
um sem Sportbíll ársins ásamt BMW
M3/M4 og Toyota GR86/Subaru BRZ.
Um hituna í flokki lúxusbíla keppa
svo BMW iX, Mercedes-Benz EQS og
Genesis GV70. Í Borgarbíl ársins eru
svo loks bílar eins og Opel Mokka,
Toyota Yaris Cross og Volkswagen
Tiguan að keppa til úrslita. Eins og
sjá má af þessari upptalningu eru
rafbílar mjög áberandi í valinu að
þessu sinni. Tilkynnt verður um
hver hlýtur titilinn Heimsbíll ársins
á bílasýningunni í New York þann
13. apríl næstkomandi. n
Sameiginleg framtíðarsýn
fyrir Austurland
Svæðisskipulag Austurlands 2022-2044 – tillaga til kynningar
Tillaga að svæðisskipulagi Austurlands til ársins 2044 verður birt í samráðsgátt stjórnvalda þann
21. mars og verður aðgengileg til 21. apríl.
Í tillögunni er skilgreind sameiginleg framtíðarsýn
fyrir landshlutann. Tilgangurinn er að samstilla
stefnu sveitar félaga á Austurlandi á sviði umhverfis,
efnahags, samfélags og menningar og tryggja þar
með sjálfbæra þróun, komandi kynslóðum í hag.
Kynning tillögunnar er á grundvelli 2. mgr. 23. gr. skipulags laga nr.
123/2010 og 13. og 14. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og
áætlana nr. 111/2021.
Öllum er frjálst að senda inn umsagnir og þeim skal
skila inn rafrænt í samráðsgátt (samradsgatt.island.is)
eða á netfangið svaedisskipulag@austurbru.is.
Nánari upplýsingar um Svæðisskipulag
Austurlands 2022-2044: austurbru.is
Svæðisskipulagsnefnd SSA
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 19. mars 2022 LAUGARDAGUR