Fréttablaðið - 19.03.2022, Síða 80
Það sem mér finnst við
hafa grætt mest á er
einlægnin sem við
höfum skapað innan
hópsins.
Helgi
How to make love to a man
er ný sýning um tilfinningar
karlmanna, eftir fjóra unga
sviðslistamenn. Þeir Andrés,
Ari, Helgi og Tómas rýndu í
eigin karlmennsku og félags-
mótun og gerðu ýmsar upp-
götvanir.
ths@frettabladid.is
Sviðslistahópurinn Toxic Kings,
sem samanstendur af Andrési P.
Þorvaldssyni, Ara Ísfeld Óskars-
syni, Helga Grími Hermannssyni
og Tómasi Helga Baldurssyni, frum-
sýnir sýninguna How to make love
to a man í Borgarleikhúsinu í kvöld,
laugardag, í samstarfi við grasrótar-
verkefnið Umbúðalaust.
Ari: „Þetta byrjaði á því að ég sá
þessa bók uppi í bókahillu hjá mér,
How to Make Love to a Man, sem
er kynlífs- og sjálfshjálparbók frá
1981 fyrir konur, um það hvernig á
að elska karlmenn. Mér fannst það
dálítið fyndið þannig að ég byrjaði
að lesa hana og það kom mér á óvart
að hún fjallar um það að karlar vilja
líka hafa tilfinningar og rómans. Út
frá því hóaði ég í þessa stráka og
þá byrjuðum við að tala saman og
ákváðum að sækja um Umbúða-
laust.“
Blaðamaður hitti strákana í
æfinga- og sýningarrými þeirra
á þriðju hæð Borgarleikhússins,
innan um leikmuni á borð við fjall
af dekkjum og varning merktan
Toxic Kings. Strákarnir eru greini-
lega mjög afslappaðir í kringum
hvern annan enda segir Helgi það
skipta miklu máli í svona ferli að
kynnast vel.
Helgi: „Þegar maður er að vinna í
svona hóp þá er svo ógeðslega mikil-
vægt að byrja á því að kynnast, af
því að listir eru í raun og veru eins
og hver önnur hópíþrótt. Afurðin
verður bara eins sterk og hópurinn.
Við byrjuðum á að hittast svona
einu sinni til tvisvar í viku í kannski
eitt ár. Við stofnuðum bara sauma-
klúbb þar sem við töluðum um til-
finningar, settum á okkur kynja-
gleraugu og fórum svo út í daglegt
líf og rýndum í nærumhverfi okkar
og félagsmótun.“
Mósaík með leikþáttum
Strákarnir hafa allir verið í sviðs-
listanámi og að sögn Helga eru
félagar hans með bakgrunn í sam-
sköpunarverkum (e. devised) á
meðan hann sjálfur hefur aðallega
einblínt á skrif.
Helgi: „Þannig að við erum búnir
að vera að framleiða með alls konar
mismunandi miðlum og mis-
munandi aðferðum. Fyrir vikið er
sýningin mjög fjölbreytt mósaík,
við erum með myndræn atriði sem
endast kannski í fimm mínútur og
fá mann til að hugsa og svo erum við
með leikþætti líka.“
Tómas segir hefðbundnar birting-
armyndir karlmennskunnar hafa
verið eitt af því sem þeir einblíndu
mest á í ferlinu.
Tómas: „Þessi performatíva karl-
mennska var svolítið svona lykill-
inn og líka hvaða vopn við höfum
í vopnabúrinu til að takast á við
okkur sjálfa. Eins og við erum búnir
að komast að, þá er það hættulegasta
í heiminum í dag þessi niðurlægði
karlmaður. Karlmaður sem upplifir
sig niðurlægðan. Hvernig getum við
komið í veg fyrir það? Við þurfum
að byrja inn á við, skoða okkur og
hvernig við leikum þetta hlutverk.“
Margslungið að vera karlmaður
Spurðir um hvort þeir hafi endur-
skoðað karlmennsku sína í gegnum
ferlið segir Andrés svo vera, jafnvel
þótt þeir hafi talið sig vera nokkuð
mjúka menn fyrir.
Andrés: „Maður finnur fyrir því
að maður verður var við alls konar
tilfinningar í kringum sig hjá vina-
hópnum og fólki í kringum mann.
Við töluðum um feður okkar og
kynslóðaskiptin, hvernig kynslóð-
in okkar tekst á við tilfinningar og
hvernig þeir gerðu það.“
Helgi: „Það sem mér finnst við
hafa grætt mest á er einlægnin sem
við höfum skapað innan hópsins.
Við erum sjálfir búnir að berskjalda
okkur hver fyrir öðrum, það er
kannski einhver lærdómur sem
maður tekur út úr þessu.“
En þegar kemur að stóru spurn-
ingunni, hvað það sé að vera karl-
maður, er svarið ekki svo einfalt.
Ari: „Ég veit það ekki, ég held það
sé ekki hægt að súmmera upp hvað
það er að vera karlmaður, af því það
er eitt sem samfélagið vill og annað
sem maður sjálfur vill. En það er
margslungið bara eins og að vera
manneskja.“ ■
Hættulegast í heiminum er
niðurlægður karlmaður
Sviðslistahópurinn Toxic Kings frumsýnir í Borgarleikhúsinu í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
48 Menning 19. mars 2022 LAUGAR-FRÉTTABLAÐIÐMENNING 19. mars 2022 LAUGARDAGUR
GASTROPUB
HELGAR
BRUNCH
laugardaga og sunnudaga
11.30–14.30
SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1-3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is
Matseðill og borðapantanir á saetasvinid.is
Eggs benedict, amerískar pönnukökur, mega brunch
og fleiri girnilegir réttir.
NÝR OG
SPENNANDI SEÐILL