Fréttablaðið - 19.03.2022, Page 84
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
STÓLA
DAGAR
www.DORMA.is
Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
20%
afsláttur
af öllum
stólum
Fullt verð: 259.900 kr.
Nú 207.920 kr.
MIAMI rafdrifinn lyftistóll
Stillanlegur hægindastóll með
tveimur öflugum mótorum. Leður
á slitflötum. Hægt að halla til baka.
Aðstoðar þig á fætur. Svartur, grár
eða brúnn.
Fullt verð: 199.900 kr.
Nú 159.920 kr.
AVIGNON hægindastóll
með skammel
Stillanlegur hægindastóll með
innbyggðum skemli. Brúnt, svart,
dökkgrátt og rautt PVC leður
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Innihalds-
laus
hræðslu-
áróður
dugir ekki
lengur til.
n Frétt vikunnar
María Rut Kristinsdóttir,
arnartomas@frettabladid.is
Straumhvörf í viðhorfi Íslendinga til
alþjóðasamstarfs, er frétt vikunnar
að mínu mati. Hörmungarnar í
Úkraínu eru auðvitað í brennidepli
en árás Pútíns á Úkraínu er, eins
og Selenskíj forseti Úkraínu hefur
sjálfur sagt, árás á grunngildi okkar
um fullveldi, lýðræði, mannréttindi
og frið. Þau lönd sem þegar eru innan
vébanda NATO og ESB anda líklega
léttar en þær þjóðir sem standa fyrir
utan. Úkraína, Georgía og Moldóva
vilja ganga í Evrópusambandið
sem stofnað var á grundvelli friðar,
mannúðar og efnahagslegrar sam-
vinnu. Svo sagan um voveiflegt stríð
í Evrópu endurtaki sig ekki. Eðlilega
rumska þá Íslendingar, þegar það
raungerist og spyrja sig hver fórnar-
kostnaðurinn sé við að standa fyrir
utan slíkt friðar- og lýðræðisbanda-
lag. Skoðanakönnun Gallup þar sem
meirihluti aðspurðra var hlynntur
ESB aðild er því stórfrétt.
Ágætt væri að fram færi málefna-
leg umræða um kosti og galla aðildar
sem ekki er föst í skotgröfum eða
drullumalli. Innihaldslaus hræðslu-
áróður dugir ekki lengur til. Þjóðin
virðist vera farin að sjá í gegnum
hann. Á léttari nótum er aðeins eitt
stig sem skilur að Liverpool og City,
mikilvægt að minnast á það. n
Skotgrafaumræður
María Rut er kynningarstýra UN Women á Íslandi.
MYND/HLYNUR HÓLM
Réza Kalfane er meðhöf-
undur nýrrar ljósmynda-
bókar um íslensku rafsveitina
GusGus, sem markað hefur
djúp spor í íslenska tón-
listarsögu. Hljómsveitin
var stofnuð árið 1995 og hóf
ferilinn sem fjöllistahópur og
er saga sveitarinnar samofin
sögu margra af fremstu lista-
mönnum landsins.
ninarichter@frettabladid.is
Ljósmyndarinn Réza Kalfane kom
fyrst til Íslands árið 2012 og kveðst
umsvifalaust hafa orðið ástfanginn
af náttúru landsins. Hann sá raf-
hljómsveitina GusGus leika á Air-
waves og síðan hefur mikið vatn
runnið til sjávar, en í vikunni kom
út önnur ljósmyndabók Réza um
sveitina. Bókina vann Réza í sam-
vinnu með unnustu sinni, graf-
íska hönnuðinum Florence Larbey.
Útgáfan er í tilefni 25 ára afmælis
sveitarinnar sem fagnað verður
með stórtónleikum í Hörpu um
helgina.
Fastagestir á gólfum landans
Fjöldi Íslendinga á snertif leti við
tónlist GusGus, en sveitin á fjölda
slagara sem hljóma á dansgólfum
landans um hverja einustu helgi og
hafa gert síðan bandið var stofnað.
Bókinni er ætlað að reifa sögu
sveitarinnar með sterku mynd-
máli auk þess sem stutt textabrot
og minningar má finna innan um
svita og sviðsreyk.
Bókverkið er fallegt og umgjörðin
einkennist af fagurfræði raftónlist-
arinnar, sem lýsir sér í einföldum
formum, svo sem hljóðbylgjum og
síðast en ekki síst dáleiðandi rökkri.
Bókarkápan og bókarhlutar eru
prentaðir á svartan pappír og not-
ast er meðal annars við silfurblek í
prentuninni.
Fágæt aðferð í fallegu verki
Bókverkið er að sögn Réza einstakt,
en eintökin komu víða við til að ná
útkomunni. „Kápan er frá Sviss og
bókin er framleidd í Vestur-Frakk-
landi. Þetta er einstaklega fágæt
hönnun, vegna þess hvernig pappír-
inn er framleiddur. Þrykkið framan
á bókinni var framleitt í París, af því
að vélarnar sem geta gert þetta eru
sjaldgæfar,“ útskýrir hann.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Réza gerir bókverk til heiðurs
sveitinni.
„Við höfðum þegar gert bók fyrir
fimm árum og notuðum þar sjald-
gæfar prentaðferðir, eins og við
gerum í dag. Sem dæmi má nefna
silfurblek á svartan pappír, sem
er ekki algeng aðferð í ljósmynda-
prentun. En við notuðum þetta
fyrir myndir sem voru einstakar og
erfitt að komast yfir,“ segir hann.
Tók á annað ár að safna
„Eins og þú sérð er bókin risastór.
Við þurftum að biðja fólk að senda
okkur myndir en hér eru myndir frá
öllum ferlinum sem spannar 25 ár.
Við þurftum að spyrjast heilmikið
fyrir og ég hafði samband við rúm-
lega tvö hundruð manns. Þetta var
ofsalega mikil vinna,“ segir hann.
„Það tók eitt og hálft ár að safna
öllum gögnum fyrir verkefnið og
svo slógum við upp söfnun á Kar-
olina Fund. Það var gríðarlega dýrt
að framleiða þetta,“ segir Reza en er
að sama skapi mjög ánægður með
útkomuna.
Upplagið er aðeins átta hundruð
eintök og ekki stendur til að fram-
leiða f leiri. Fjöldi eintaka er þegar
seldur. Hægt verður að nálgast ein-
tök á afmælistónleikum GusGus í
Hörpu um helgina. n
Sviti, hiti og sviðsreykur
GusGus í 25 ára afmælisbók
GusGus meðlimirnir Margrét, Daníel og Biggi ásamt Réza Kalfane og Dominique Lamule í útgáfuhófi. MYND/AÐSEND
Daníel Ágúst og Biggi árita bókina.
MYND/AÐSEND
Útgáfan er í 800 eintökum og er í til-
efni af 25 ára afmæli GusGus.
52 Lífið 19. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ