Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.03.2022, Qupperneq 84

Fréttablaðið - 19.03.2022, Qupperneq 84
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is STÓLA DAGAR www.DORMA.is Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur. 20% afsláttur af öllum stólum Fullt verð: 259.900 kr. Nú 207.920 kr. MIAMI rafdrifinn lyftistóll Stillanlegur hægindastóll með tveimur öflugum mótorum. Leður á slitflötum. Hægt að halla til baka. Aðstoðar þig á fætur. Svartur, grár eða brúnn. Fullt verð: 199.900 kr. Nú 159.920 kr. AVIGNON hægindastóll með skammel Stillanlegur hægindastóll með innbyggðum skemli. Brúnt, svart, dökkgrátt og rautt PVC leður Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Innihalds- laus hræðslu- áróður dugir ekki lengur til. n Frétt vikunnar María Rut Kristinsdóttir, arnartomas@frettabladid.is Straumhvörf í viðhorfi Íslendinga til alþjóðasamstarfs, er frétt vikunnar að mínu mati. Hörmungarnar í Úkraínu eru auðvitað í brennidepli en árás Pútíns á Úkraínu er, eins og Selenskíj forseti Úkraínu hefur sjálfur sagt, árás á grunngildi okkar um fullveldi, lýðræði, mannréttindi og frið. Þau lönd sem þegar eru innan vébanda NATO og ESB anda líklega léttar en þær þjóðir sem standa fyrir utan. Úkraína, Georgía og Moldóva vilja ganga í Evrópusambandið sem stofnað var á grundvelli friðar, mannúðar og efnahagslegrar sam- vinnu. Svo sagan um voveiflegt stríð í Evrópu endurtaki sig ekki. Eðlilega rumska þá Íslendingar, þegar það raungerist og spyrja sig hver fórnar- kostnaðurinn sé við að standa fyrir utan slíkt friðar- og lýðræðisbanda- lag. Skoðanakönnun Gallup þar sem meirihluti aðspurðra var hlynntur ESB aðild er því stórfrétt. Ágætt væri að fram færi málefna- leg umræða um kosti og galla aðildar sem ekki er föst í skotgröfum eða drullumalli. Innihaldslaus hræðslu- áróður dugir ekki lengur til. Þjóðin virðist vera farin að sjá í gegnum hann. Á léttari nótum er aðeins eitt stig sem skilur að Liverpool og City, mikilvægt að minnast á það. n Skotgrafaumræður María Rut er kynningarstýra UN Women á Íslandi. MYND/HLYNUR HÓLM Réza Kalfane er meðhöf- undur nýrrar ljósmynda- bókar um íslensku rafsveitina GusGus, sem markað hefur djúp spor í íslenska tón- listarsögu. Hljómsveitin var stofnuð árið 1995 og hóf ferilinn sem fjöllistahópur og er saga sveitarinnar samofin sögu margra af fremstu lista- mönnum landsins. ninarichter@frettabladid.is Ljósmyndarinn Réza Kalfane kom fyrst til Íslands árið 2012 og kveðst umsvifalaust hafa orðið ástfanginn af náttúru landsins. Hann sá raf- hljómsveitina GusGus leika á Air- waves og síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, en í vikunni kom út önnur ljósmyndabók Réza um sveitina. Bókina vann Réza í sam- vinnu með unnustu sinni, graf- íska hönnuðinum Florence Larbey. Útgáfan er í tilefni 25 ára afmælis sveitarinnar sem fagnað verður með stórtónleikum í Hörpu um helgina. Fastagestir á gólfum landans Fjöldi Íslendinga á snertif leti við tónlist GusGus, en sveitin á fjölda slagara sem hljóma á dansgólfum landans um hverja einustu helgi og hafa gert síðan bandið var stofnað. Bókinni er ætlað að reifa sögu sveitarinnar með sterku mynd- máli auk þess sem stutt textabrot og minningar má finna innan um svita og sviðsreyk. Bókverkið er fallegt og umgjörðin einkennist af fagurfræði raftónlist- arinnar, sem lýsir sér í einföldum formum, svo sem hljóðbylgjum og síðast en ekki síst dáleiðandi rökkri. Bókarkápan og bókarhlutar eru prentaðir á svartan pappír og not- ast er meðal annars við silfurblek í prentuninni. Fágæt aðferð í fallegu verki Bókverkið er að sögn Réza einstakt, en eintökin komu víða við til að ná útkomunni. „Kápan er frá Sviss og bókin er framleidd í Vestur-Frakk- landi. Þetta er einstaklega fágæt hönnun, vegna þess hvernig pappír- inn er framleiddur. Þrykkið framan á bókinni var framleitt í París, af því að vélarnar sem geta gert þetta eru sjaldgæfar,“ útskýrir hann. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Réza gerir bókverk til heiðurs sveitinni. „Við höfðum þegar gert bók fyrir fimm árum og notuðum þar sjald- gæfar prentaðferðir, eins og við gerum í dag. Sem dæmi má nefna silfurblek á svartan pappír, sem er ekki algeng aðferð í ljósmynda- prentun. En við notuðum þetta fyrir myndir sem voru einstakar og erfitt að komast yfir,“ segir hann. Tók á annað ár að safna „Eins og þú sérð er bókin risastór. Við þurftum að biðja fólk að senda okkur myndir en hér eru myndir frá öllum ferlinum sem spannar 25 ár. Við þurftum að spyrjast heilmikið fyrir og ég hafði samband við rúm- lega tvö hundruð manns. Þetta var ofsalega mikil vinna,“ segir hann. „Það tók eitt og hálft ár að safna öllum gögnum fyrir verkefnið og svo slógum við upp söfnun á Kar- olina Fund. Það var gríðarlega dýrt að framleiða þetta,“ segir Reza en er að sama skapi mjög ánægður með útkomuna. Upplagið er aðeins átta hundruð eintök og ekki stendur til að fram- leiða f leiri. Fjöldi eintaka er þegar seldur. Hægt verður að nálgast ein- tök á afmælistónleikum GusGus í Hörpu um helgina. n Sviti, hiti og sviðsreykur GusGus í 25 ára afmælisbók GusGus meðlimirnir Margrét, Daníel og Biggi ásamt Réza Kalfane og Dominique Lamule í útgáfuhófi. MYND/AÐSEND Daníel Ágúst og Biggi árita bókina. MYND/AÐSEND Útgáfan er í 800 eintökum og er í til- efni af 25 ára afmæli GusGus. 52 Lífið 19. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.