Morgunblaðið - 26.03.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2022
Laugavegi 178, 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | misty.is
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.11-15
CHARLEY
LÍNAN FRÁ
Falleg og sumarleg
BH 10.950,-
Buxur 4.990,-
Í gær var kosinn nýr formaður
Starfsgreinasambandsins, SGS,
með 70 atkvæðum. Keppinauturinn
hlaut 60 atkvæði
og viðbrögð ný-
kjörins formanns
voru þau að hann
hefði búist við að
mjórra yrði á mun-
um. Sjálfsagt er
óþarfi að gera of
mikið úr þeim orð-
um, þau eru líklega
hluti af spuna sem
settur er af stað
þar sem úrslitin
voru ekki afdrátt-
arlaus.
- - -
Það breytir því ekki að athygli
vekur að formaður sé kjörinn
með svo fáum atkvæðum og litlum
mun í sambandi sem að eigin sögn er
með 72.000 félagsmenn í 19 félögum.
- - -
Nú mætti benda á að ekki sé hægt
að bera saman 72.000 fé-
lagsmenn og 70 atkvæði formanns-
ins þar sem félögin innan sambands-
ins velji fulltrúa á þing þess. Það er
út af fyrir sig rétt, en þá verður ekki
fram hjá því litið að þátttaka í kosn-
ingum innan aðildarfélaganna sem
senda fulltrúa á þingið er sáralítil.
- - -
Nýjasta dæmið um þetta er að
eftir langan og harðan slag
sem mikla athygli fékk sáu aðeins
15% skráðra félaga í Eflingu ástæðu
til að kjósa um formann. Í kosning-
unni fékk sigurvegarinn 52% at-
kvæða, sem þýðir að innan við 8% fé-
lagsmanna lýstu yfir stuðningi við
nýkjörinn formanninn.
- - -
Lýðræðislegir veikleikar í verka-
lýðshreyfingunni eru miklir og
alvarlegir, ekki síst í ljósi þeirra
áhrifa sem hún hefur hér á landi.
Sérkennilegt er að þetta sé ekki tek-
ið til umræðu innan hreyfing-
arinnar.
Lýðræðislegir
veikleikar
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Stjórn Fiskidagsins mikla á Dalvík
hefur ákveðið að fresta hátíðahöld-
um í ár, þriðja árið í röð. Þess í stað
er boðað til hátíðar í ágúst 2023.
Í tilkynningu frá stjórninni segir
að þegar faraldur kórónuveirunnar
hafi brostið á, snemma árs 2020, hafi
verið tilkynnt um frestun Fiskidags-
ins mikla 15. apríl það ár. Réttu ári
síðar var tilkynnt öðru sinni um
frestun hátíðarinnar. Sú ákvörðun
að fresta hátíðinni einnig í ár er
sögð hafa verið tekin eftir mikil
fundahöld undanfarnar vikur, sam-
töl við fagfólk „og allt okkar góða
fólk“. Samdóma álit þeirra sé alveg
skýrt:
„Afar skynsamlegt er að láta
kyrrt liggja áfram og stofna ekki til
viðburðar af slíkri stærðargráðu
sem hátíðin okkar er þegar ástandið
er svo viðkvæmt sem raun ber vitni.“
Samfélagið ekki jafnað sig
„Margir vilja gjarnan mæta í ár en
eru enn ekki tilbúnir að vera í fjöl-
menni af ótta við að smitast, jafnvel í
annað eða þriðja sinn. Samfélagið
hefur einfaldlega ekki jafnað sig.
Munum að Fiskidagurinn mikli er
og verður matarhátíð þar sem mað-
ur er manns gaman, grímulaust,“
segir í tilkynnningu frá stjórn Fiski-
dagsins mikla.
Fiskideginum frestað í þriðja sinn
- Stefnt er á hátíð í ágúst á næsta ári
- Ótti við kórónuveiruna ástæðan
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Dalvík Enn frestast Fiskidagurinn
mikli en stefnt að honum 2023.
Unnið var að því undanfarna daga
að opna veginn yfir Öxi, frá Beru-
firði yfir í Skriðdal. Mikill og þykk-
ur ís liggur yfir veginum og nokk-
urn tíma mun taka að losa hann af.
Stefnt var að því að opna fyrir um-
ferð í gær, föstudag, en vegfar-
endur þurfa að fara varlega vegna
klaka sem enn er á veginum, segir í
tilkynningu á vef Vegagerðarinnar.
„Við byrjuðum að moka þriðju-
daginn 22. mars og vorum 16 tíma
að komast yfir heiðina með snjó-
blásara. Aðstæður eru dálítið
óvenjulegar; minni snjór er á heið-
inni sunnanverðri en við erum vanir
en mun meiri snjór norðan megin
þar sem vanalega er lítil snjósöfn-
un,“ segir G. Rúnar Sigurðsson,
yfirverkstjóri á þjónustustöð Vega-
gerðarinnar á Höfn, á vef Vega-
gerðarinnar. Hann segir óvenju-
legar vindáttir hafa mest að segja
um þetta ástand en vindáttin var úr
norð-norðaustri þegar mest snjóaði
í vetur.
Axarvegurinn er nú mokaður í
fyrra fallinu en oft hefur ekki verið
mokað fyrr en um mánaðamótin
mars/apríl. Notendur hafa þrýst
mjög á um að opna veginn sem
fyrst, enda styttir hann vegalengd-
ina til Austurlands umtalsvert.
SG vélar sjá um snjómokstur á
Axarveginum. Fjögur tæki voru að
störfum í vikunni. sisi@mbl.is
Vegurinn yfir Öxi
opnaður snemma
Ljósmynd/Vegagerðin
Axarvegur Óvenjumikill snjór var á heiðinni norðan megin á þessum vetri.