Morgunblaðið - 26.03.2022, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.03.2022, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2022 Við erum stolt fyrirtæki á www.halldorursmidur.is 2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Morgunblaðið/Sigurður Bogi Norðurþing Norðurþing í Þingeyjarsýslum er eitt af stærri sveitarfélögum landsins með margslungið náttúrufar, fjölbreytilegt atvinnulíf og mannlíf. Þar er Húsavík langstærsti byggðakjarninn, en auk hennar er þéttbýli á Raufarhöfn og Kópaskeri og nokkur fjöldi í dreifbýli í Kelduhverfi og Reykjahverfi. BAKSVIÐ Andrés Magnússon Stefán Einar Stefánsson Á ýmsu hefur gengið í sveitarstjórn- arpólitíkinni í Norðurþingi á liðnu kjörtímabili. Sveitarfélagið er víðfemt og staða þéttbýliskjarnanna afar misjöfn. Húsavík er langstærsti bærinn en mun minni byggðarlög, Raufarhöfn og Kópasker, hafa átt mjög í vök að verjast á síðustu árum. Íbúafjöldi á Raufarhöfn hefur ekki náð 200 frá árinu 2010 og íbúafjöldi á kópaskeri hefur haldið í kringum 120 manns í meira en áratug. Pólitíkin á svæðinu tekur svip af þessari stöðu, þar sem mörg sókn- arfæri liggja í atvinnumálum á Húsavík, en aðgerðir á hinum stöð- unum einkennast fremur af varn- arleikjum þar sem reynt er að halda í horfinu. Þungur rekstur Rekstur sveitarfélagsins hefur verið þungur síðustu ár og sam- kvæmt áætlunum þess mun sú staða lítið breytast fyrr en árið 2025. Gert er ráð fyrir að tap verði af rekstr- inum í ár sem nemi 236 milljónum króna og að það verði ríflega 114 milljónir samanlagt á árunum 2023 og 2025. Hins vegar gera áætlanir ráð fyrir að staðan snúist í 51 millj- ónar króna hagnað á árinu 2025. Uppstokkun og uppnám Talsverðar breytingar eru fyr- irsjáanlegar í sveitarstjórn Norð- urþings, en þar munar sjálfsagt mestu um að sjálfstæðismenn hafa samið við forystufólk á E-lista um að ganga til liðs við sig og það svo um munar, því Hafrún Olgeirsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi E-listans, mun leiða Sjálfstæðisflokkinn í kom- andi kosningum. Það gerir svo stöð- una enn óvenjulegri að hinn verð- andi oddviti sjálfstæðismanna situr enn í sveitarstjórn fyrir E-listann og er þar í minnihluta meðan Sjálfstæð- isflokkurinn er í meirihluta. Til frek- ari skýringar er rétt að geta þess að E-listinn var á sínum tíma klofnings- framboð frá Sjálfstæðisflokknum. Sagt er að Kristján Þór Magn- ússon, fráfarandi sveitarstjóri og nú- verandi oddviti sjálfstæðismanna, hafi beitt sér mjög fyrir þessum samruna og ríkir nokkur lukka með þá kveðjugjöf. Nokkur styr stóð um Kristján Þór á liðnu kjörtímabili, þar sem hann sætti m.a. ámæli stöku manns fyrir að hafa farið í veik- indaleyfi og önnur persónuleg mál- efni dregin fram, en á hinn bóginn var eftir því tekið að það voru ekki aðeins pólitískir samherjar hans, sem tóku til varna fyrir hann. Meirihlutamynstrið í Norðurþingi er einnig fremur óvenjulegt, því þar starfa sjálfstæðismenn saman með Samfylkingunni og Vinstri grænum. Þrátt fyrir að áherslur flokkanna séu mismunandi og þá hafi greint á um eitt og annað verður ekki annað séð en að meirihlutasamstarfið hafi gengið fremur vandræðalaust fyrir sig. Þó gerðist það þegar spjótin beindust helst að sveitarstjóranum, að félag Vinstri grænna gagnrýndi hann fyrir stjórnarhætti, en sveit- arstjórnarfulltrúi flokksins tók fram að það hefði engin áhrif á sam- starfið. Erfitt er að spá fyrir um fram- haldið, en sjálfstæðismenn gera sér ljóslega vonir um að bæta við fjórða fulltrúanum með samruna við E- listann. Ómögulegt er að segja hvort þær fyrirætlanir ganga eftir, en þá verður enn eftir að mynda meiri- hluta. Nái þeir fjórum mönnum dug- ar einn samstarfsflokkur. Nema auðvitað Framsókn bjóði betur. Sviptingar á stjórnmálasviðinu - Sameining Sjálfstæðisflokks og E-lista - Sveitarstjórinn yfirgefur sviðið - Óljóst um meirihluta Morgunblaðið/Brynjólfur Löve Húsavík Þessi mynd yfir höfnina í Húsavík er eilítið kuldaleg, þótt þar sé raunar orðið nokkuð vorlegt og farið að hitna í kolunum í pólitíkinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.