Morgunblaðið - 26.03.2022, Side 16

Morgunblaðið - 26.03.2022, Side 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2022 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla Casa býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. L 206 cm Áklæði ct. 86 Verð 759.000,- L 206 cm Leður ct. 25 Verð 899.000,- STAN Model 3035 rafmagn Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Eftirspurn eftir steinull til ein- angrunar var mikil á síðasta ári og átti Steinull hf. á Sauðárkróki í erfiðleikum með að anna eftir- spurn. Til skoðunar er að auka framleiðslugetu fyrirtækisins, en ekki liggur fyrir hvort núverandi verksmiðja verður stækkuð eða hvort aðrar lausnir verða fundnar, að sögn Stefáns Loga Haralds- sonar fram- kvæmdastjóra. „Það er allt sem segir okkur að þörfin fyrir einangrun eigi eftir að aukast með auknu byggingamagni og meiri kröfum um umhverfis- vænni bygging- armáta. Við því þurfum við að bregðast,“ segir Stefán Logi. Varðandi stækkunar- áform, segir hann mikilvægt að kanna hvaða möguleikar séu til að útfæra og útvíkka starfsemina á Sauðárkróki á sem hagkvæmastan hátt. „Hér er fyrir hendi mikilvæg þekking og meginhráefni eru á svæðinu. Samlegðaráhrifin verða væntanlega meiri með því að auka framleiðsluna þar sem menn hafa náð góðum tökum á tækninni.“ Stoppar stutt á lagernum Þegar verksmiðjan tók til starfa í ágúst 1985 var miðað við að árs- framleiðslan gæti mest orðið um átta þúsund tonn. Á síðasta ári voru framleidd 9.600 tonn og var árið það fimmta stærsta hjá fyrir- tækinu, frá upphafi framleiðslu. Þrátt fyrir mikla framleiðslu stoppaði varan stutt í lager- húsnæði fyrirtækisins, enda mikið líf á byggingamarkaðnum hér inn- anlands. Hefðbundinn vaktavinnutími í verksmiðjunni er frá sunnudags- kvöldi til föstudagskvölds, en með aukavöktum um helgar má segja að unnið hafi verið nótt sem nýtan dag á síðasta ári. Nú eru alls 40 fastráðnir starfsmenn hjá Steinull hf. Tonnafjöldinn og samanburður á honum milli ára segir þó ekki allt því fyrirtækið framleiðir orðið mun fleiri vörutegundir en á árum áður, sem flækir aðeins fram- leiðsluferlið og hefur einhver áhrif á framleiðslugetu hverju sinni. Uppsveifla í byggingariðnaði „Á tímum kórónufaraldursins virðist hafa verið uppsveifla í byggingariðnaði hérlendis, bæði í nýbyggingum og viðhaldsverk- efnum,“ segir Stefán Logi. „Tölu- vert virðist vera fram undan og margt sem bendir til að menn ætli að herða sig í byggingum á íbúðar- húsnæði og bæta í. Mikilvægi góðrar einangrunar verður stöðugt meira frá umhverfissjónarmiðum og mikil áhersla er á að nýta orku til húshitunar sem best. Einangrunartæknin hefur líka tekið framförum og aðferðir breyst. Þannig eru menn farnir að einangra meira utanhúss en áður í stað þess að einangra innan frá. Á þann hátt gátu skapast ýmis vandamál með kuldaskilum og rakamyndun ásamt öðrum þekkt- um vandamálum.“ Mest af framleiðslu Steinullar fer á innanlandsmarkað, en 25- 30% hafa farið til útflutnings und- anfarin ár, einkum til Færeyja og Bretlands, og fer það að stærstum hluta í skip frá Sauðárkróki. Uppi- staðan í hráefni steinullarinnar er svartur basaltsandur úr ósum Héraðsvatna. Stefán Logi segir að frá upphafi starfseminnar hafi ver- ið tekin um 260 þúsund tonn af sandi þaðan. Sandnámið hefur ekki markað mikil spor eins og sjá megi víða erlendis þar sem efnið sé til dæmis brotið úr bergi, að sögn Stefáns Loga. Stríðið hefur áhrif Stríðið í Úkraínu hefur víða bein og óbein áhrif og nefnir Stefán Logi að fyrir fyrirtækið hafi orðið erfiðara að fá t.d. timbur, amm- oníak og fleira, sem nýtt er í fram- leiðsluna. Fyrir byggingamark- aðinn í heild hefur verið mjög erfitt að fá járn og timbur. Aukin framleiðslugeta í skoðun - Mikil eftirspurn eftir steinull á síðasta ári - Aukin þörf með auknum framkvæmdum og meiri kröfum - 40 manna vinnustaður á Sauðárkróki - Mikilvæg þekking og meginhráefni á svæðinu Morgunblaðið/Björn Jóhann Sauðárkrókur Steinullarverksmiðjan hefur starfað á Skarðseyrinni frá árinu 1985. Síðasta ár var með þeim stærstu í sögu fyrirtækisins. Héraðsvötn Aðalhráefnið sem notað er til framleiðslu á steinull er basalt- sandur, sem fenginn er í fjöruborðinu á Borgarsandinum, við vestari ós Héraðsvatna. Hráefnistakan í fjöruborðinu er umhverfisvottuð. Stefán Logi Haraldsson Stórsýningin Verk og vit, sem fram fer í Laugardalshöll, hófst á fimmtu- dag og er þetta í fimmta sinn sem sýningin er haldin. Fyrstu tveir dag- arnir eru ætlaðir fagaðilum en um helgina býðst almenningi að heim- sækja sýninguna. Síðasti sýningar- dagur er á morgun, sunnudag. Mikill fjöldi gesta sótti sýninguna heim fyrsta daginn sem opið var. Við opnunina fluttu ávörp Pawel Bartos- zek, formaður skipulags- og sam- gönguráðs Reykjavíkurborgar, og Sigurður Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra flutti einnig ávarp og opnaði sýn- inguna formlega. Um 100 sýnendur taka þátt í sýn- ingunni en hún er ætluð þeim sem koma að byggingariðnaði, skipulags- málum og mannvirkjagerð á ýmsum stigum, s.s. sveitarfélögum, verktök- um, iðnaðar- og þjónustufyrirtækj- um, menntastofnunum, hönnuðum og ráðgjöfum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sýning Verk og vit í Laugardalshöll er ætluð þeim sem koma að bygging- ariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð á ýmsum stigum. Líf, fjör og iðnaður í Laugardalshöll - Stórsýningin Verk og vit um helgina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.