Morgunblaðið - 26.03.2022, Síða 24

Morgunblaðið - 26.03.2022, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Mikið hefur verið gert úr þeim efnahags- þvingunum, sem ákveðið hefur ver- ið að beita Rússa eftir að þeir réðust inn í Úkraínu. Enn er þó opið fyrir þau viðskipti, sem mest um vert er fyrir Rússa að halda gangandi. Meðan Rússar geta selt jarðefnaeldsneyti eiga þeir auðveldara með að halda stríðsvél sinni gangandi. Þjóðverjar eru þar helstu viðskiptavinir Rússa. Áður en átökin hófust keyptu þeir þriðjung þeirrar olíu sem þeir flytja inn, 45% af innfluttum kolum og 55% af innfluttu gasi af Rússum. Það er engin til- viljun að Þjóðverjar eru svona háðir Rússum um eldsneyti. Þeir hafa beinlínis unnið að því markvisst að gera sig háða þeim. Margir þrýsta nú á Þjóð- verja um að hætta þessum við- skiptum við Rússa og fara Bandaríkjamenn þar fremstir í flokki. Þessar raddir heyrast líka í Þýskalandi og sagði Jo- hannes Gauck, fyrrverandi forseti landsins, að hætta ætti þessum viðskiptum við Rússa með öllu. Þjóðverjar ættu að frjósa fyrir friðinn. Þýska stjórnin er hins vegar treg til að stíga svo afdrifaríkt skref. Olaf Scholz kansl- ari sagði í tilkynn- ingu fyrr í mán- uðinum að ekki væri hægt að tryggja Evrópu orku með öðrum hætti að svo stöddu. Þjóðverjar eru búnir að reikna út að verði lokað fyrir orkuna frá Rússlandi myndi skella á efnahagskreppa. Kór- ónuveiran hefði lokað þjón- ustugeiranum, en þessi kreppa myndi bitna á hjarta þýsks iðnaðar og leiða til þess að landsframleiðsla myndi drag- ast saman um allt að þrjá af hundraði. Þá yrði dýrara að út- vega orkuna. Það myndi hafa áhrif á verðlag og jafnvel draga úr samkeppnishæfni þýskrar framleiðslu. Þjóðverjar lýstu yfir því í gær að þeir hygðust á næst- unni draga verulega úr kaup- um á orkugjöfum frá Rúss- landi. Búið yrði að draga úr kaupum á olíu um helming í júní og alveg hætt að kaupa kol í haust. Þeir ætla hins vegar að taka rúm tvö ár í að skrúfa fyr- ir gasið frá Rússlandi. Þessi staða fer ekki fram hjá ráðamönnum í Kreml. Nú vita þeir líka hvaða frest þeir hafa til að verða sér úti um nýja við- skiptavini fyrir orkuna. Orkan er akkillesar- hællinn í aðgerðum gegn Rússum} Hverju skal fórnað? Veðrið hefur nú að miklu leyti séð um að bjarga því, sem borgaryf- irvöldum var um megn. Klaka- bunkar og skaflar hverfa nú hratt af götum borg- arinnar og aftur er að verða fært um íbúðagötur, sem margar höfðu breyst í ein- stefnugötur þótt ekki væru þær skilgreindar þannig og um tíma mátti vart komast um nema á jeppum. Hjá borginni virðist leiðar- stefið vera að öll él birti um síðir og það sé eins gott fyrir borgarbúa að tileinka sér ein- faldlega sama hugsunarhátt. Borgin þarf ekki að ryðja snjónum burt því að hann bráðnar á endanum. Þeir sem eiga erfitt með að komast leið- ar sinnar geta bara beðið. Og viti menn. Nú er snjórinn óð- um að hverfa líkt og hann hefði aldrei verið til staðar. Undan snjónum kemur hins vegar næsta verkefni borgar- innar og þar hefur löngum gætt sömu tregðu og gagnvart sköflunum. Þegar snjórinn er horfinn birtast möl og skítur á götum, gangstéttum og hjólastígum. Í stöku blómabeðum má jafnvel sjá heilu pústkerfin sem há- ir klakakantar hafa séð um að losa undan fólksbílum. Óhreinindin á götum borg- arinnar geta verið sérlega hvimleið og þegar þungir bílar eru á ferð geta þyrlast upp heilu rykskýin og verið lengi að setjast. Í rigningu verða göt- urnar síðan eins og drullupoll- ar. Við þessar aðstæður er lítil ástæða til að þrífa bílinn því hann verður jafnharðan drull- ugur á ný. Þá getur fíngerð mölin beinlínis verið hættuleg þeim sem ferðast um á hjólum. Óhreinindin búa ekki yfir eiginleika íssins að geta horfið af sjálfu sér. Í sumum borgum er lögð áhersla á að hreinsa götur reglulega. Í Reykjavík er metnaðurinn ívið minni. Helsta von borgarbúa þetta árið er að brátt verði tekið til hendinni vegna þess að kosningar eru í vændum. En það er alls ekki víst. Óhreinindin búa ekki yfir eiginleika íssins að geta horfið af sjálfu sér} Ísbunkar og óhreinindi S igurður Ingi Jóhannsson innviða- ráðherra vill ólmur halda áfram að rannsaka möguleika á flugvall- arstæði innanlandsflugs í Hvassa- hrauni með tilheyrandi útgjöldum fyrir ríkissjóð. Þetta vekur furðu enda nær öllum ljóst að virkt gossvæði telst varla æski- legur nágranni flugvallar. Í Morgunblaðinu sl. miðvikudag var á leið- araopnu ágæt frétt, unnin af Sigtryggi Sig- tryggssyni blaðamanni, undir fyrirsögninni „Hvassahraunsflugvöllur tilbúinn 2040?“ Í greininni var rifjuð upp umræða sem fór fram á Alþingi á dögunum að beiðni Björns Levís Gunnarssonar þingmanns Pírata um rann- sóknir á möguleikum á byggingu nýs flug- vallar í Hvassahrauni. Í þeirri umræðu var meðal annars tæpt á skýrslu Rögnunefndarinnar svokölluðu sem kom út í júní árið 2015. Tvö kjarnaatriði úr skýrslunni, sem ekki henta málflutningi þeirra sem vilja Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýrinni virðast oft gleymast eða vera afflutt. Í fyrsta lagi eru það nýafstaðin eldsumbrot í Fagra- dalsfjalli. Þau voru staðsett í svokölluðu Krýsuvíkurkerfi sem tiltekið er sérstaklega í skýrslu Rögnunefndarinnar, þar sem segir: „Í skýrslu ÍSOR kemur fram að hraun sem myndu ógna flugvallarstæði í Hvassahraunslandi myndu koma upp í Krýsuvíkurkerfinu. Miklar líkur eru á að aldir líði áður en Krýsuvíkurkerfið rumskar næst. Bú- ast má við að næsta gosskeið á Reykjanesskaga hefjist í Brennisteinsfjöllum. Það gæti orðið eftir um eina öld. Hraun þaðan er ekki líklegt til að ógna flug- vallarstæðinu í Hvassahrauni.“ Nú er ljóst að það liðu ekki aldir áður en Krýsuvíkurkerfið rumskaði heldur er gos þar nýafstaðið. Þetta eitt og sér ætti að útiloka frekari rannsóknir og fjáraustur af hálfu innviðaráðherra til þeirra. Í öðru lagi eru það fullyrðingar um sam- félagslegan ábata af því að byggja upp flug- völl í Hvassahrauni. Því er haldið fram að í frumathugun Rögnunefndarinnar sé metinn 100-150 milljarða króna samfélagslegur ábati af færslu vallarins miðað við verðlag dagsins í dag. Þetta er rangt því ef Rögnuskýrslan er skoðuð kemur skýrt fram að í þessa tölu vant- ar á móti kostnað við uppbyggingu flugvall- arins í Hvassahrauni, eða mismuninn á kostn- aði við hann og fyrirhuguðum fjárfestingum í öðrum flugvöllum sem myndu leggjast af, enda gengið út frá þeirri forsendu að „allt innanlands- og millilandaflug sameinist á vellinum og hægt sé að spara á móti á öðrum völlum.“ Hvaða stjórnmálaflokkur hefur þá stefnu að slá af Keflavíkurflugvöll? Píratar? Framsóknarflokkurinn? Hættum þessum vitleysisgangi og fjáraustri hvað rannsóknir á flugvelli í Hvassahrauni varðar. Förum vel með fé almennings og hættum draumórum sem löngu er ljóst að standast ekki skoðun. Göngum hreint til þess verks og tryggjum rekstrarhæfi flugvallarins í Vatns- mýrinni. bergthorola@althingi.is Bergþór Ólason Pistill Flugvallafjármunir brenndir á „hrauni“ Höfundur er þingmaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is E kki eru taldar líkur á að skortur verði á nauðsyn- legustu hráefnum til bú- rekstrar, svo sem áburði, kjarnfóðri og eldsneyti, þrátt fyrir að innrás Rússa í Úkraínu og viðskipta- þvinganir í kjölfarið dragi úr fram- leiðslu og möguleikum á kaupum hráefna. Stórhækkun á fóður- hráefnum og áburði mun þó hafa áhrif á búvöruframleiðslu hér, eins og annars staðar, og leiða til hækk- unar á búvörum. Dregið hefur úr mjólkurframleiðslu síðustu vikur, hver sem ástæðan er. Hins vegar má sennilega rekja aukinn áhuga á korn- rækt beint til ástandsins á heims- markaði fyrir fóðurkorn. Tvöföldun á verði áburðar á síð- asta ári var rakin til olíukreppunnar í Evrópu og hás orkuverðs. Elías Hartmann Hreinsson, deildarstjóri búvörudeildar Sláturfélags Suður- lands, segir að tryggt sé að bændur og aðrir kaupendur áburðar fái áburðinn sem þeir keyptu til notk- unar í vor. Stór hluti hráefnis í tilbú- inn áburð er framleiddur í Rússlandi og Úkraínu. Hann treystir sér ekki til að svara því hvort hægt verði að útvega nægilega mikið af áburði á næsta ári ef stríðið í Úkraínu dregst á langinn. Segir þó að hægt sé að fá hluta af áburðarefnunum annars staðar frá. Einn áburðarsalinn spáir því að áburðarverð muni hækka um 50% vegna innrásarinnar, til viðbótar við 100% hækkun á síðasta ári. Ráð- leggur Elías bændum að hugsa upp á nýtt hvernig þeir ætla að fá sprettu í túnin. Nefnir hann að hægt sé að spara áburðarkaup með því að kalka túnin. Aukinn áhugi á kornrækt Í þessu sambandi má geta þess að áhugi á kornrækt og endurræktun túna hefur vaxið vegna hækkunar á verði kjarnfóðurs. Menn séu að stækka akra og nýir að bætast í hóp- inn. Bygg er uppistaðan í kornrækt- inni hér. Vegna hækkunar á áburð- arverði er einnig vaxandi áhugi fyrir sáningu niturbindandi belgjurta eins og hvítsmára, rauðsmára og erta. Jó- hannes Baldvin Jónsson, deild- arstjóri ráðgjafar og vöruþróunar hjá Líflandi, segir að fyrirtækið hafi getað útvegað sér nægt sáðkorn fyrir viðskiptavini sína en tekur fram að þeir sem ekki hafi pantað tímanlega geti farið bónleiðir til búðar. Kjarnfóður hækkar í verði Ágætlega hefur gengið hjá fóð- urverksmiðjum og fóðursölum að út- vega kjarnfóður. „Við erum með góða birgja sem hugsa um litla Ís- land, þótt við skiptum litlu máli í heildarsamhenginu,“ segir Eyjólfur Sigurðsson, forstjóri Fóðurblönd- unnar. Heimsmarkaðsverð á korni hef- ur hækkað og hefur það leitt til um- talsverðra verðhækkana á kjarnfóðri frá fóðurverksmiðjunum hér. SS flyt- ur inn tilbúið fóður og það hefur ekki hækkað í verði enn, vegna langtíma- samninga. Maís er mikið ræktaður í löndunum við Svartahaf og hefur hann hækkað meira í verði en önnur hráefni vegna ástandsins þar. Elías Hartmann segir óhjákvæmilegt að verð á korni hækki enn frekar og að það hljóti að fara beint út í verðlagið á búvörum hér á landi, eins og annars staðar. Eyjólfur segir að ef skortur verður á einhverjum hráefnum eða þau hækka óhóflega í verði sé oft hægt að breyta uppskriftum og skipta um hráefni. Úkraína er mik- ilvægt framleiðsluland á korni og framhaldið fer nokkuð eftir því hvernig mál þróast þar. Kornið frá síðasta ári er enn að hluta í korn- geymslum þar og þær hafa ekki verið sprengdar upp. Svo er spurning hvort úkraínskir bændur geta sáð fyrir korni í vor og borið á akrana. Erfitt kann að vera fyrir þá að fá sáð- korn, áburð og eldsneyti, eins og ástandið er. Heimurinn er mun opn- ari en áður og mögulegt að flytja hrá- efni á milli heimsálfa. En það kostar. Mjólkurframleiðsla minnkar Hækkun á fóðurverði kemur illa við kúabændur sem framleiða mjólk og kjöt, svínabændur, kjúklinga- bændur og eggjaframleiðendur. Mik- il notkun er á kjarnfóðri í þessum greinum. Er vitað að bændur hafa áhyggjur af stöðunni. Enginn viðmælandi spáir því þó að skortur verði á matvælum vegna fóðurskorts, ekki hér á landi, en ástandið geti leitt til matarskorts í þróunarlöndum. Framleiðsla á mjólk hefur minnkað síðustu vikur, verið um 1,8% undir því sem var í fyrra, að sögn Garðars Eiríkssonar, fram- kvæmdastjóra Auðhumlu, sem er fé- lag mjólkurframleiðenda á stórum hluta landsins. Hann segir að ástæð- an sé ekki ljós. Hugsanlega hafi slæmt tíðarfar haft sín áhrif. Segir Garðar að farið verði yfir málið á næstunni. Spurður hvort rétt sé að hvetja til aukinnar framleiðslu segir Garðar að það ráðist af niðurstöðu athugunarinnar. Útlit fyrir verðhækk- un búvara í verslunum AFP Sáning undirbúin Tveir bændur eru mættir á akra sína í vesturhluta Úkraínu, eins og venjulega á þessum árstíma, til að undirbúa sáningu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.