Morgunblaðið - 26.03.2022, Blaðsíða 28
Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2022
Félag íslenskra list-
dansara, FÍLD, var
stofnað 27. mars 1947 á
heimili Ástu Norð-
mann. Ásta var fyrsti
formaður félagsins, en
stofnfélagar auk henn-
ar voru Sigríður Ár-
mann, Sif Þórz, Rigmor
Hansen og Elly Þor-
láksson. Allar höfðu
þær numið dans erlend-
is og voru að hasla sér völl í íslensku
listalífi. Fyrsta baráttumál FÍLD-
kvenna var að fá danslistina viður-
kennda sem sjálfstæða og marktæka
listgrein en tilhneiging var að til að
flokka listgreinina sem hliðargrein af
leiklistinni.
Stofnun FÍLD markaði upphaf
áralangrar baráttu og uppbyggingar
á listgreininni hérlendis þar sem
markmiðið var og er enn að gæta
hagsmuna íslenskra danslistamanna
og efla danslistina í landinu. Stofnun
Íslenska dansflokksins var frá upp-
hafi brennheitt baráttumál FÍLD en
með því að koma á atvinnugrundvelli
fyrir dansara vildu félagsmenn auka
möguleikana á sjálfstæðri þróun
danslistarinnar, með stofnun flokks-
ins árið 1973 rættist
þessi langþráði draum-
ur félagsmanna. Starf-
semi Íslenska dans-
flokksins hefur nú verið
fest í lög með tilkomu
laga um sviðslistir og
hafa mörg framfara-
skref verið stigin á liðn-
um árum er snúa að at-
vinnuumhverfi og
uppbyggingu á list-
greininni. Samtök um
Danshús í Reykjavík
voru stofnuð árið 2010 og hafa þau
ásamt FÍLD, Dansverkstæðinu,
Reykjavik Dance Festival og Ís-
lenska dansflokknum barist fyrir því
að Danshús rísi í Reykjavík í náinni
framtíð. Í Evrópu má finna tugi dans-
húsa sem hafa það að markmiði að
sýna og efla danslistina en Ísland hef-
ur hins vegar setið eftir hvað þetta
varðar. Í dag er danslistin ein af fáum
listgreinum í landinu sem skortir var-
anlegt aðsetur. Það er því helsti
draumur danslistarmanna í dag að
eignast Danshús í Reykjavík sem
hýst getur fjölþætta atvinnu-
starfsemi listgreinarinnar.
Dansmenntun barna hefur alla tíð
verið félagsmönnum hugleikin en
innan FÍLD eru fjölmargir sem
starfa við listdanskennslu. Upphafs-
konur FÍLD kenndu allar dans og
ráku margar eigin skóla en innan fé-
lagsins eru enn frumkvöðlar sem
haldið hafa uppi samfelldu skólastarfi
áratugum saman. Skólakerfi list-
dansins er byggt á einkaskólum og er
opinber fjárstuðningur við starfsemi
listdansskóla mjög takmarkaður.
FÍLD hefur lengi og ítrekað kallað
eftir auknu samstarfi við mennta-
yfirvöld vegna uppbyggingar á skóla-
umhverfi listdansins. Nauðsynlegt er
að tryggja listdansnám í landinu með
lögum og fjármagni, íslenskum list-
dansi til heilla.
Dagur listdansskólanna verður
haldinn í fyrsta sinn sunnudaginn 27.
mars á afmælisdegi FÍLD en stofnað
er til dagsins í tengslum við 75 ára af-
mæli félagsins. Markmið dagsins er
að varpa ljósi á fjölbreytt og mikil-
vægt uppeldisstarf sem unnið er í
listdansskólum landsins. Á Íslandi
eru starfandi níu listdansskólar á
höfuðborgarsvæðinu og sex til við-
bótar á Suðurnesjum, Akureyri, Ísa-
firði, Selfossi og Vopnafirði. List-
dansskólarnir munu halda upp á
daginn með ýmsum hætti en fylgjast
má með fjölþættri starfsemi skólanna
með því að fylgja @dagurlistdans-
skólanna á instagram.
Danshús í Reykjavík
er draumurinn
Eftir Irmu
Gunnarsdóttur
Irma Gunnarsdóttir
» Félag íslenskra
listdansara er 75 ára.
Til hamingju með
daginn!
Höfundur er formaður FÍLD.
Á góunni hrollkaldur nágustur næðir,
hann nístir að beini og almenning hræðir
því ofbeldi hamslaust í heiminum æðir
og hjörtun það kremur en sál okkar blæðir.
Þar hatur og mannvonska ráða og ríkja
í reiði sem kærleikur nær ekki’ að mýkja
er hroki og valdafíkn sálirnar sýkja
en samkenndin, mildin og umhyggjan víkja.
Um frið handa öllum við fjálglega biðjum
og fórnarlömb ofbeldis hvarvetna styðjum
í orði. En dimmi með hatursins hryðjum
við hræðumst að lenda í éljunum miðjum.
Nú tíminn er fullnaður, hefjast þarf handa
og herör upp skera gegn alkunnum vanda.
En þorum við kjörkuð og staðföst að standa
gegn styrk þeirra’ er óhikað kúga og granda?
Hve fúslega viljum við fórna, og stríða
með fólki sem lifir við stöðugan kvíða?
Því hótanir böðlanna berast svo víða
og blandast við kvein þeirra’ er sakna og líða.
Upp friðurinn sprettur í hugrökku hjarta
sem hugarró, vongleði’ og þori mun skarta.
Þá veröldin kemst út úr vetrinum svarta
í vorið með dagana langa og bjarta.
(Ó)friður
Eftir Ólaf Jóhannsson
Höfundur er hagyrðingur.
olafurjohannsson59@gmail.com
Samkvæmt mennta-
stefnu um skóla án að-
greiningar eiga öll börn
rétt á fullum aðgangi að
almennu skólakerfi þar
sem þau skuli njóta
gæðamenntunar sem
býr þau undir líf og
starf.
Þessi hugmynda-
fræði á rætur að rekja
til baráttu fyrir mennt-
un fatlaðra barna í al-
mennu skólakerfi. Í dag hafa mark-
miðin breyst í þá átt að koma í veg
fyrir og draga úr útilokun og órétt-
læti gangvart öllum nem-
endum og á skólastarfið
að byggjast á sanngirni,
réttindum og virðingu.
Þurfi nemandi á stuðn-
ingi að halda ber skóla-
samfélaginu að veita
þann stuðning eins mikið
og hægt er í þeim nem-
endahópi sem nemand-
inn tilheyrir. Jafnframt
skal skipulag stuðnings-
ins vera í námi viðkom-
andi og taka mið af þörf-
um og styrkleika allra
nemenda. Félagsliðar
eru fagaðilar sem hafa sérþekkingu á
þessu sviði til að aðstoða nemendur
sem þurfa á stuðningi að halda.
Mikilvægt er að félagsliðar fái að
aðstoða þann nemendahóp sem þarf á
stuðningi að halda í skólasamfélaginu.
Félag íslenskra félagsliða skorar á
menntastofnanir að ráða félagsliða
inn fyrir nemendur sem þurfa á
stuðningi að halda í sínum skóla og
viðurkenna starfsheitið félagsliði.
Félagsliðar eru mikilvægir
starfsmenn í skólasamfélaginu
Eftir Sigurbjörgu
Söru Róbertsdóttur » Félagsliðar eru
fagaðilar sem hafa
sérþekkingu á þessu
sviði til að aðstoða
nemendur.
Sigurbjörg Sara
Róbertsdóttir
Höfundur er formaður félags
íslenskra félagsliða.
Það er sérstök mýta
sem fylgir Henry
Ford og framleiðslu-
háttum hans. Þar
skipti uppfinning
færibandsins miklu
máli við að fjölda-
framleiða bíla fyrir
almenning og um
leið að borga svo
góð laun að fólk
gæti keypt þessa
sömu bíla og annað
til nauðsynja og
orðið þannig neyt-
endur. Þetta var hin
sanna bylting um
aldamótin 1900 og
blómstraði fyrst í
Ameríku og kallaðist Ford-
ismi.
Ford varð að vísu ríkur en
aldrei var hann kenndur við
óhóf eða uppskafningshátt.
Einnar konu maður sem lét
sér annt um starfsfólk sitt
og borgaði sína skatta.
Fyrirtækið átti sínar hæðir
og lægðir eins og gengur og
kreppan mikla fór ekki
hljóðalaust fram hjá.
Nú er margt breytt og rík-
ustu menn heims í dag fá oft
það orðspor að þeir séu frek-
ar á móti verkalýðsfélögum,
reyni að koma sér hjá skött-
um eftir megni og færi sig
oft á milli landa í því skyni.
En þeir gefa oft til góðra
málefna og lyfta sér gjarna á
kreik út fyrir gufuhvolfið.
„Sá duftsins son nokkra
dýrðlegri sýn“ var eitt sinn
kveðið. Það á enn við.
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Henry Ford hjá Model T, við Hótel
Iroquois í Buffalo árið 1921.
Gamli Ford og hinir
Ljósm. óþ./Wikimedia Commons