Fréttablaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 16
Ég tel að þetta muni styrkja rödd Norður- land- anna. Katrín Jakobsdóttir Það væri líkleg leið fyrir Rússa að reyna að herja á NATO-löndin með upplýsingaóreiðu, falsfréttum og tilraun- um til íhlutunar í lýðræðislega ferla. Brynja Huld Óskarsdóttir, ör- yggis- og varnar- málafræðingur Fyrirhuguð aðild Svíþjóðar og Finnlands að Atlantshafs- bandalaginu hefur fengið mikinn stuðning í Evrópu en veldur einnig titringi. Þótt stuðningur við aðild hafi auk- ist innan umsóknarríkjanna tveggja er málið stórpólitískt. Svo er einnig hér á landi. Finnland og Svíþjóð sóttu formlega um aðild að Atlantshafsbanda- laginu (NATO) í vikunni. Ríkin hafa bæði átt aðild að Evrópusam- bandinu frá tíunda áratug 20. aldar og sú aðild hefur hingað til ekki breytt þeirri hlutleysisstefnu sem lengi hefur verið byggt á í utanrík- isstefnum ríkjanna. Svíþjóð hefur haldið hlutleysisstefnu allt frá 19. öld. Sagan er örlítið f lóknari hjá Finnlandi. Árið 1939 réðust Sovét- ríkin inn í Finnland. Finnar vörðust valdatöku þeirra en neyddust til að taka upp hlutleysisstefnu þegar kalda stríðið hófst og hafa haldið þeirri hlutleysisstefnu síðan, þrátt fyrir að hafa verið undir miklum áhrifum frá Sovétríkjunum. Finnland og Rússland hafa haldið nánum samskiptum í gegnum tíð- ina, enda nágrannaþjóðir. Finnar hafa þó alltaf farið varlega og fjár- fest gífurlega í vörnum sínum, þar á meðal haldið uppi herskyldu. Finn- ar deila um 1.300 kílómetra landa- mærum með Rússum og landamæri NATO og Rússlands tvöfaldast því ef Finnland gengur í NATO. „Rússneska innrásin í Úkraínu kom okkur í opna skjöldu, við bjuggumst ekki við henni en í kjöl- farið fór fólk að endurhugsa aðstæð- urnar,“ segir Ann-Sofie Stude, sendi- herra Finnlands á Íslandi. Hún segir ótrúlegt hvað stuðn- ingur við NATO hafi aukist mikið á stuttum tíma en samkvæmt mæl- ingum studdu 53 prósent Finna aðild að NATO fyrir innrás Rúss- lands en hann hefur nú aukist upp í 76 prósent. Hún tekur þó fram að umsókn Finna um aðild að NATO sé ekki beint gegn neinum heldur séu markmið hennar friður og stöðug- leiki. Í Svíþjóð hefur lengst af verið andstaða við aðild að NATO. Sænski jafnaðarmannaflokkurinn, flokkur Magdalenu Andersson forsætisráð- herra Svíþjóðar, hefur í gegnum tíðina verið á móti inngöngu í NATO en Andersson sagði fyrr í vikunni að besta leiðin fyrir öryggi Svíþjóðar á þessu stigi væri að sækja um aðild, samhliða umsókn Finna. Samkvæmt mælingu frá árinu 2013 voru 39 prósent sænsks almennings andvíg aðild að NATO en 35 prósent voru hlynnt. Við- horfin hafa breyst töluvert á síðustu níu árum. Nú eru 53 prósent hlynnt aðild að NATO og stuðningurinn hækkar í 64 prósent þegar spurt er hvort Svíþjóð og Finnland eigi að sækja saman um aðild, þá eru 64 prósent hlynnt aðild. Margræð áhrif aðildar Aðild Finnlands og Svíþjóðar hefur bæði hernaðarlegt og stjórnmála- legt mikilvægi fyrir NATO. Í Eystra- saltinu liggur fjórðungur rússneska flotans en með inngöngu Finna og Svía yrði hafið að megninu til yfir- ráðasvæði NATO. Vladímír Pútín Rússlandsfor- seti hefur kennt Vesturlöndum og stækkun NATO um stríðið í Úkra- ínu. Það var einmitt umræðan um umsókn Úkraínu að NATO sem var kornið sem fyllti mælinn hjá Rúss- um. Frá því að þreifingar um aðild ríkjanna hófust hafa hótanir ítrekað borist frá Rússlandi um samræmdar aðgerðir gegn ríkjunum verði ekki látið af slíkum þreifingum. Í gær til- kynntu rússnesk stjórnvöld að her- stöðvum í vesturhluta Rússlands verði fjölgað gangi ríkin tvö í NATO. „Pútín gaf í skyn fyrr í vikunni að hann sæi aðild Finnlands og Svíþjóðar ekki sem beina ógn við Rússland,“ segir Brynja Huld Ósk- arsdóttir, öryggis- og varnarmála- fræðingur. Hún segir orð forsetans í þessa veru hafa gefið til kynna að hann vildi reyna að draga úr spennu á svæðinu. „En nú berast fréttir af aukinni hernaðaruppbyggingu í vestur- hluta landsins frá Sergej Sjoígú, varnarmálaráðherra Rússlands, sem er ekki til þess að róa hlutina,“ segir hún. Það verði í höndum ráða- manna NATO hvernig brugðist verði við því. Þá bætir Brynja við að Finnar og Svíar hafi verið skýrir í vikunni með að ætla ekki að leyfa erlendar herstöðvar eða hýsingu kjarnorkuvopna innan sinna landa. „Það væri líkleg leið fyrir Rússa að reyna að herja á NATO-löndin með upplýsingaóreiðu, falsfréttum og tilraunum til íhlutunar í lýðræðis- lega ferla, sem er í rauninni það sem heitir fjölþáttaógnir,“ segir Brynja Huld en segir hlutina þó geta breyst hratt. Afstaða Tyrkja sker sig úr Búist er við að umsóknarferli Finn- lands og Svíþjóðar taki einungis nokkrar vikur og það yrði stysta umsóknarferli í sögu varnarbanda- lagsins. Aðildarferli Norður-Make- dóníu, nýjasta aðildarríkisins, tók um það bil tvö ár. Umsóknarferill ríkjanna hófst formlega með bréfi til Jens Stolten- berg, framkvæmdastjóra NATO. Viðræður um aðildarsamninga fara nú í gang og í kjölfar undirritunar þeirra hefst fullgildingarferli í öllum aðildarríkjum, oftast með aðkomu þjóðþinganna. Hér á Íslandi leggur utanríkisráðherra samningana fyrir ríkisstjórn og í kjölfarið verður mælt fyrir þingsályktunartillögu um aðildina á Alþingi. Fullgildingunni lýkur svo með atkvæðagreiðslu á Alþingi og undirritun forseta Íslands í kjölfarið. Nýtt ríki verður ekki tekið inn í NATO fyrr en öll aðildarríki hafa fullgilt aðildarsamninginn. Þegar þeim áfanga er náð fullgilda umsóknarríkin samninginn fyrir sitt leyti og með því lýkur ferlinu. Umsóknunum hefur verið tekið fagnandi af leiðtogum flestra aðild- arríkja NATO og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, hefur sagt að tekið verði á móti ríkjunum opnum örmum. Hann telur þó að andstaða Tyrklands gæti hægt á umsóknarferlinu en er þó vongóður um að þeim snúist hugur. Recep Tayyip Erdoğan hefur lýst yfir andstöðu við inngöngu ríkjanna tveggja í NATO, en Tyrk- land hefur verið aðildarríki frá 1952. Erdoğan segir ríkin tvö vera „gistiheimili“ fyrir hryðjuverka- starfsemi, þar virðist hann vísa til Kúrda sem flúið hafa Tyrkland til Svíþjóðar. Hann segist ekki ætla að samþykkja umsókn ríkjanna nema að þau framselji 33 „hryðjuverka- menn“ sem dvelja í Finnlandi og Svíþjóð. Brynja Huld bendir á að ríki sem sækir um aðild að NATO hefur aldr- ei fengið höfnun. „Ég tel mjög líklegt að næstu daga munum við sjá sendi- nefndir Svíþjóðar og Finnlands en líka bara ráðamenn frá Brussel reyna að koma þannig að málum við Erdoğan að hann muni sam- þykkja aðildina,“ segir hún. Lofar engu um þingflokk VG „Við stöndum með lýðræðislegri niðurstöðu Finna og Svía og munum greiða fyrir þessu máli í gegnum Alþingi,“ segir Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra um aðild- arumsóknir ríkjanna í Atlantshafs- bandalagið. Hún segir málið hafa þverpóli tískan stuðning hérlendis og býst við að þingið afgreiði málið fljótt eftir að tillaga um það verður lögð fram á Alþingi. Andstaða við aðild Íslands að NATO hefur verið grundvallar- stefna Vinstri grænna frá stofnun flokksins. Þegar Norður-Makedónía gekk í NATO sátu þingmenn VG ýmist hjá í atkvæðagreiðslunni eða voru fjarverandi. Katrín segist engu geta lofað um hvernig flokksfélagar hennar greiði atkvæði um aðild Svía og Finna. Sjálf hafi hún tilkynnt for- sætisráðherrum ríkjanna tveggja að hún muni styðja þá niðurstöðu sem ríkin hafi sjálf komist að. Katrín segist hafa fullan skilning á aðstæðum Svíþjóðar og Finn- lands og telur ekki að aðild þeirra að NATO muni spilla friðinum sem ríkt hefur á Norðurlöndum. „Ég tel að þetta muni styrkja rödd Norðurlandanna,“ segir Katrín og bendir á að sameiginlegt markmið Norðurlandanna hafi verið að halda norðurslóðum og Norðurlöndunum sem lágspennusvæði. n Finnar og Svíar fá flýtimeðferð inn í NATO Joe Biden Bandaríkjafor- seti gekk um stíga Rósagarðs Hvíta hússins með Sauli Niinistö, for- seta Finnlands, og Magdalenu Andersson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, á fimmtudag eftir fund þeirra um aðildarum- sóknir ríkjanna að Atlantshafs- bandalaginu. Flest aðildar- ríkin hafa tekið umsóknunum fagnandi. Fréttablaðið/ Getty Sigurjón Torfason sigurjon @frettabladid.is 16 Fréttir 21. maí 2022 LAUGARDAGURFréttablaðiðfRéttAskýRinG Fréttablaðið 21. maí 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.