Fréttablaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 68
Verkstjóri
Vegna góðrar og vaxandi verkefnastöðu vantar
Viðskiptavit ehf hörkuduglegan og reynslumikinn
verk-/staðarstjóra til daglegrar verkstjórnunar og
reksturs á byggingarsvæðum sínum. Um er að ræða
skemmtilegt, krefjandi og fjölbreytt starf þar sem
öryggi, gæði og afköst skipta meginmáli.
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ
• Rekstur byggingarsvæðis með öllu sem því tilheyrir
• Fagleg yfirumsjón með framkvæmdum
• Undirbúningur og uppsetning verka
• Úttekt á verkum undirverktaka
• Stjórnun á verkstað
• Umsjón með dagsskýrslum og verkskýrslum
• Mælingar á verkstað
• Geta gripið til verka
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
• Meistararéttindi í húsasmíði eru áskilin
• Reynsla vegur þungt
• Góð færni í samskiptum
• Drifkraftur
Viðskiptavit ehf. er framsækið fyrirtæki í byggingariðnaði sem
sinnir verktöku ásamt alhliða verkefnastjórnun og ráðgjöf.
Viðskiptavit hefur innan sinna raða reynslumikið og hæfileikaríkt
starfsfólk á sviði byggingarstarfsemi og verkefnastjórnunar.
Verkefnastjóri /
Staðarstjóri
Vegna góðrar og vaxandi verkefnastöðu býður
Viðskiptavit ehf áhugavert framtíðarstarf fyrir
verkefnastjóra sem hefur stýrt byggingarverkefnum
og unnið á verkstað.
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ
• Stjórnun og umsjón verkefna
• Stjórn og eftirfylgni innkaupa
• Gerð og eftirfylgni verk- og kostnaðaráætlana
• Reikningagerð og uppgjör verka
• Samskipti við opinbera- og samstarfsaðila
• Gæðaeftirlit í Ajour
• Timastjórnun í MS Project
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
• Iðn-/tækni-/verkfræðimenntun og marktæk
reynsla á verkstað
• Góð tölvukunnátta, reynsla af notkun á AutoCad,
Ms Project og Ajour æskileg
• Stundvísi, sjálfstæði og vinnusemi
• Árangursdrifin og lausnamiðuð nálgun
• Samskiptafærni, frumkvæði og framúrskarandi
þjónustulund
Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2022.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál
og er öllum umsóknum svarað.
Umsóknir óskast sendar á baldur@vvit.is
með ferilskrá og nöfnum umsagnaraðila.
Kvika er fjölnota skapandi rými sem
styður við nýsköpun og þróun með
aðgengi að tækjakosti eins og mynd-
og hljóðveri, þrívíddarprenturum,
laserskerum, vinylskerum, pressum,
saumavélum og fleiri tækjum ásamt
rými til listsköpunar.
Nemendur og starfsfólk skólans koma
til með að nýta aðstöðuna í verklegri
kennslu og stafrænni hönnun og
miðlun, sem er áhersla í öllum
áföngum skólans. Kvika verður einnig
opin almenningi og öðrum skólum og
stofnunum í Borgarbyggð.
Nánari upplýsingar fá finna á
heimasíðu Menntaskóla Borgarfjarðar:
www.menntaborg.is
óskar eftir að ráða
umsjónarmann í skapandi rými í 100% starf frá og með
1. ágúst 2022.
Umsjónarmaður skapandi rýmis
Menntaskóli Borgarfjarðar
Náttúru– og umhverfisrannsóknir
– Útivinna og úrvinnsla
Náttúrustofa Austurlands óskar eftir náttúrufræðingi til
starfa. Starfslýsing getur mótast af sérþekkingu
umsækjanda og m.a. snúið að þróun nýrra verkefna,
lífríkisrannsóknum á vettvangi, greiningum,
landupplýsingum, umhverfismálum eða loftslagsmálum.
Náttúrustofa Austurlands sinnir fjölbreyttum viðfangsefnum
á ólíkum sviðum náttúrurannsókna. t.d. á hreindýrastofninum,
fuglum, gróðri og lífríki í ám og sjó.
Menntunar- og hæfniskröfur
Nauðsynlegt:
• Háskólapróf í náttúrufræðum, t.d. sérþekking á gróðri,
fuglum, spendýrum, landupplýsingum, vatnalíffræði,
sjávarlíffræði eða á sambærilegum sviðum.
• Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður.
• Geta til þátttöku í lengri vettvangsferðum fjarri heimili
• Færni í mannlegum samskiptum
• Vilji til að ganga í ólík störf
• Færni í greiningu og framsetningu gagna
• Ökupróf
Æskilegt:
• Framhaldsmenntun á háskólastigi
• Starfsreynsla á fagsviði
• Að geta hafið störf sem fyrst
• Góð íslensku– og enskukunnátta
Kostur:
• Þekking á vinnslu landupplýsinga
• Þekking á R
• Áhugi og hæfileikar til að tileinka sér nýjungar og tækni
• Vilji til að sinna rannsóknum úr lofti (t.d. flugtalningar fugla
og hreindýra)
Um er að ræða 100% starf eða eftir samkomulagi. Laun eru
samkvæmt stofnanasamningi Náttúrustofu Austurlands við
FÍN. Ráðið er tímabundið í eitt ár til reynslu en gert er ráð
fyrir að um framtíðastarf sé að ræða. Til greina kemur að
ráða í fleiri en eitt starf.
Upplýsingar veitir Kristín Ágústsdóttir forstöðumaður
(s: 477-1774 eða kristin@na.is).
Umsókn með ferilskrá, meðmælum og bréfi þar sem fram
komi hvað umsækjandi hefur fram að færa og hvaða
verkefni hann brennur fyrir sendist til kristin@na.is með
fyrirsögninni: Starfsumsókn
Umsóknarfrestur er til og með 5. júní n.k.
Náttúrustofa Austurlands er með höfuðstöðvar í
Neskaupstað og útibú á Egilsstöðum
Spennandi tækifæri
hjá Símanum
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí næstkomandi.
Aðeins er tekið við umsóknum í gegnum siminn.is/storf.
Fyrirspurnum skal beint á netfangið mannaudur@siminn.is.
Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við alla til að sækja um; óháð kyni.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Daglegur rekstur fjarskiptakerfa/tölvukerfa
• Þátttaka í framþróun fjarskiptakerfa Símans
• Villugreining og eftirfylgni með úrlausn vandamála hjá birgja
• Þátttaka í umbótaverkefnum innan deildar
Hæfni og reynsla
• Háskólamenntun í fjarskiptum, verkfræði/tæknifræði/tölvunarfræði eða sambærilegt.
• Reynsla og þekking á fjarskiptakerfum æskileg
• Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
• Færni í samskiptum
• Skipulögð vinnubrögð
Persónulegir eiginleikar
• Brennandi áhugi á fjarskiptatækni
• Þjónustulund
• Færni í mannlegum samskiptum
Sérfræðingar í fjarskiptum
Við leitum að öflugum liðsauka inn á Fjarskiptasvið Símans. Meginhlutverk deildarinnar er upp-
bygging og rekstur miðlægra fjarskiptakerfa Símans. Fjarskiptakerfi þróa og reka 3G/4G og 5G
kjarna fyrir tal og gagnaflutning. IMS/VoLTE kerfi sem stjórnar talþjónustu yfir 4G/5G.
SMS/MMS kerfi Símans og tæknileg umsjón SIM/eSIM korta kerfa/ferla eru hluti af verkefnum
deildarinnar. Hýstar símkerfalausnir, Webex by Cisco, eru einnig reknar á deildinni. Framundan
eru spennandi áskoranir við áframhaldandi uppbyggingu á 5G fjarskiptainnviðum Símans.
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyinga sem vill laða til sín
framúrskarandi starfsfólk. Við leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi
og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar.