Fréttablaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 72
Múrarar óskast til starfa
AQ-rat ehf byggingaverktakar leggja áherslu á að veita
fyrirtækjum, húsfélögum og einstaklingum faglega og góða
þjónustu, allt frá nýsmíði til viðhalds og endurbóta.
Vegna aukinna verkefna leitum við af öflugum múrurum til að
slást í hópinn með okkur og takast á við krefjandi verkefni.
Við hvetjum múrara á besta aldri til að sækja um.
Hæfniskröfur:
• Iðnmenntun og að lámarki 5 ára starfsreynsla
• Fagleg og sjálfstæð vinnubrögð
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum skilyrði
• Metnaður til að skila af sér vel unnu verki
Umsóknir skulu sendast ásamt ferilskrá á runar@aqrat.is
merkt „Múrari“
Nánari upplýsingar um starfið veitir Rúnar í síma 8920688
Aðstoðarskólastjóri
Grunnskóla Seltjarnarness
seltjarnarnes.is
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi í stjórnunarteymi skólans. Umsókn um starfið skal fylgja
ítarleg starfsferilsskrá ásamt rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi til starfans.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Kennsluréttindi og kennslureynsla
• Framhaldsmenntun á sviði uppeldis- og menntunarfræða,
stjórnunar eða sambærilegra greina er æskileg
• Reynsla af stjórnun og faglegri forystu
• Leiðtogahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru öll kyn hvött til að sækja um starfið.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.
Upplýsingar um starfið veitir Kristjana Hrafnsdóttir, kristjanahr@seltjarnarnes.is, í síma 595 9200.
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar undir seltjarnarnes.is –Störf í boði.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2022. Umsóknarfrestur er til og með 7. júní 2022.
GRUNNSKÓLI SELTJARNARNESS
Á Seltjarnarnesi er lögð áhersla á að reka góða skóla þar sem boðið er upp á metnaðarfullt og framsækið
skólastarf, sem byggir á góðu starfsumhverfi. Áhersla er lögð á að mæta þörfum nemenda og ýta undir hæfileika
þeirra. Góð samskipti og samstarf starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila er forsenda þess að vel
takist til við að byggja upp gott og mannvænt samfélag. Lögð er áhersla á samvinnu milli skólanna, samfelldan
skóladag nemenda og öruggt umhverfi.
Í Grunnskóla Seltjarnarness eru um 580 nemendur, en hann er rekinn á tveimur starfsstöðvum, í Mýrarhúsaskóla
(1.-6. bekkur) og Valhúsaskóla (7.-10. bekkur). Við skólann starfa um 100 manns og hefur skólinn á að skipa
reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Einkunnarorð skólans eru virðing – ábyrgð – vellíðan og er lögð áhersla á að
þau einkenni skólastarfið. Skólinn er í miklu samstarfi við Tónlistarskóla Seltjarnarness, félagsmiðstöðina Selið og
íþróttafélagið Gróttu.
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
Aðstoðarskólastjóra
á yngra stigi vantar við
Grunnskóla Hornafjarðar.
Lausar stöður eru við Grunnskóla Hornafjarðar.
• Aðstoðarskólastjóri á yngra stigi 1. – 6. bekk
Aðstoðarskólastjóri heldur utan um daglegt skólastarf
ásamt því að vera yfirmaður stoðþjónustu á yngra stigi.
• Umsjónarkennsla
• Kennsla á bókasafni
Umsækjendur skulu hafa tilskylda menntun og reynslu til
starfsins og góð tök á íslensku bæði munnlega og skrifle-
ga. Áhersla er á að umsækjandi sýni hæfni í samskiptum,
frumkvæði, sé lausnamiðaður og hafi skipulagshæfileika.
Launakjör samkvæmt kjarasamningi LS og KÍ eða annarra
félaga.
Umsóknum um starf skal skilað skriflega til skólastjóra
fyrir 27. maí n.k. með upplýsingum um menntun, réttindi,
starfsreynslu og meðmælendur.
Nánari upplýsingar veitir Eygló Illugadóttir skólastjóri í
síma 470-8400 / 846-2227 - eyglo@hornafjordur.is
Í Grunnskóla Hornafjarðar eru um 250 nemendur í tveimur aðskildum
húsum. Í öðru húsinu er í 1. – 6. bekkur en 7. – 10. bekkur í hinu.
Unnið er eftir hugmyndarfræði uppeldis til ábyrgðar og skólinn er bæði
grænfánaskóli og heilsueflandi skóli. Lögð er áhersla á teymisvinnu og
innleiðingu fjölbreyttra kennsluhátta m.a. með því að auka ipadvæðingu.
Í Grunnskóla Hornafjarðar er góður starfsandi og skólinn er vel búinn.
Sveitarfélagið er vel statt og þar er blómlegt mannlíf.
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
intellecta.is
RÁÐNINGAR
Skóla-og frístundasvið fagskrifstofa grunnskólamála.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Verkefnastjóri í byggingateymi
fyrir skóla- og frístundastarf
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir starf verkefnastjóra bygginga fyrir skóla- og frístundastarf
laust til umsóknar.
Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að vinna í teymi innan skóla- og frístundasviðs um byggingar og búnað.
Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar, starfsemi Náms-
flokka Reykjavíkur og skólahljómsveita. Jafnframt greiðir sviðið framlög til sjálfstætt starfandi dagforeldra, leikskóla, grunn-
skóla og tónlistarskóla og hefur eftirlit með starfsemi þeirra. Skóla- og frístundasvið þjónustar yfir 20 þúsund börn og fjölskyldur
þeirra. Útgjöld sviðsins eru u.þ.b. 60 milljarðar kr. á ári í tæplega 200 rekstrareiningum.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Helsta starfssvið verkefnastjóra grunnskólabygginga er
að hafa menntunarlega umsjón með verkefnum skóla- og
frístundasviðs varðandi uppbyggingu og endurbætur á
húsnæði grunnskóla og frístundastarfs.
• Veita umhverfis- og skipulagssviði og eignaskrifstofu
Reykjavíkur, ráðgjöf á sviði skóla- og frístundastarfs í
nýbyggingum, endurnýjun og/eða viðbótum við húsnæði og
útisvæði fyrir grunnskóla- og frístundastarf.
• Veitir stjórnendum grunnskóla- og frístundastarfs ráðgjöf og
stuðning í verkefnum tengdum framkvæmdum.
• Að hafa eftirlit með að framkvæmdir við byggingar fyrir
skóla- og frístundastarf Reykjavíkurborgar taki mið af
Menntastefnu Reykjavíkurborgar, aðalnámskrá grunnskóla
og Stefnu Reykjavíkurborgar um byggingar fyrir skóla- og
frístundastarf.
• Er fulltrúi skóla- og frístundasviðs í viðbragðsteymi vegna
húsnæðismála.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Framúrskarandi hæfni í samskiptum
• Reynsla og þekking af skóla- og frístundastarfi
• Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
• Skipulagshæfileikar og hæfni til að koma upplýsingum
fram í ræðu og riti.
Umsókn fylgi starfsferilskrá og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 4.júní nk.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, wwww.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veita Daníel Benediktsson, verkefnastjóri og Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri á fagskrifstofu
grunnskólamála.netföng: daniel.benediktsson@reykjavik.is og soffia.vagnsdottir@reykjavik.is