Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 72

Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 72
Múrarar óskast til starfa AQ-rat ehf byggingaverktakar leggja áherslu á að veita fyrirtækjum, húsfélögum og einstaklingum faglega og góða þjónustu, allt frá nýsmíði til viðhalds og endurbóta. Vegna aukinna verkefna leitum við af öflugum múrurum til að slást í hópinn með okkur og takast á við krefjandi verkefni. Við hvetjum múrara á besta aldri til að sækja um. Hæfniskröfur: • Iðnmenntun og að lámarki 5 ára starfsreynsla • Fagleg og sjálfstæð vinnubrögð • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum skilyrði • Metnaður til að skila af sér vel unnu verki Umsóknir skulu sendast ásamt ferilskrá á runar@aqrat.is merkt „Múrari“ Nánari upplýsingar um starfið veitir Rúnar í síma 8920688 Aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness seltjarnarnes.is Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi í stjórnunarteymi skólans. Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi til starfans. Menntunar- og hæfniskröfur • Kennsluréttindi og kennslureynsla • Framhaldsmenntun á sviði uppeldis- og menntunarfræða, stjórnunar eða sambærilegra greina er æskileg • Reynsla af stjórnun og faglegri forystu • Leiðtogahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru öll kyn hvött til að sækja um starfið. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands. Upplýsingar um starfið veitir Kristjana Hrafnsdóttir, kristjanahr@seltjarnarnes.is, í síma 595 9200. Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar undir seltjarnarnes.is –Störf í boði. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2022. Umsóknarfrestur er til og með 7. júní 2022. GRUNNSKÓLI SELTJARNARNESS Á Seltjarnarnesi er lögð áhersla á að reka góða skóla þar sem boðið er upp á metnaðarfullt og framsækið skólastarf, sem byggir á góðu starfsumhverfi. Áhersla er lögð á að mæta þörfum nemenda og ýta undir hæfileika þeirra. Góð samskipti og samstarf starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila er forsenda þess að vel takist til við að byggja upp gott og mannvænt samfélag. Lögð er áhersla á samvinnu milli skólanna, samfelldan skóladag nemenda og öruggt umhverfi. Í Grunnskóla Seltjarnarness eru um 580 nemendur, en hann er rekinn á tveimur starfsstöðvum, í Mýrarhúsaskóla (1.-6. bekkur) og Valhúsaskóla (7.-10. bekkur). Við skólann starfa um 100 manns og hefur skólinn á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Einkunnarorð skólans eru virðing – ábyrgð – vellíðan og er lögð áhersla á að þau einkenni skólastarfið. Skólinn er í miklu samstarfi við Tónlistarskóla Seltjarnarness, félagsmiðstöðina Selið og íþróttafélagið Gróttu. Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is Aðstoðarskólastjóra á yngra stigi vantar við Grunnskóla Hornafjarðar. Lausar stöður eru við Grunnskóla Hornafjarðar. • Aðstoðarskólastjóri á yngra stigi 1. – 6. bekk Aðstoðarskólastjóri heldur utan um daglegt skólastarf ásamt því að vera yfirmaður stoðþjónustu á yngra stigi. • Umsjónarkennsla • Kennsla á bókasafni Umsækjendur skulu hafa tilskylda menntun og reynslu til starfsins og góð tök á íslensku bæði munnlega og skrifle- ga. Áhersla er á að umsækjandi sýni hæfni í samskiptum, frumkvæði, sé lausnamiðaður og hafi skipulagshæfileika. Launakjör samkvæmt kjarasamningi LS og KÍ eða annarra félaga. Umsóknum um starf skal skilað skriflega til skólastjóra fyrir 27. maí n.k. með upplýsingum um menntun, réttindi, starfsreynslu og meðmælendur. Nánari upplýsingar veitir Eygló Illugadóttir skólastjóri í síma 470-8400 / 846-2227 - eyglo@hornafjordur.is Í Grunnskóla Hornafjarðar eru um 250 nemendur í tveimur aðskildum húsum. Í öðru húsinu er í 1. – 6. bekkur en 7. – 10. bekkur í hinu. Unnið er eftir hugmyndarfræði uppeldis til ábyrgðar og skólinn er bæði grænfánaskóli og heilsueflandi skóli. Lögð er áhersla á teymisvinnu og innleiðingu fjölbreyttra kennsluhátta m.a. með því að auka ipadvæðingu. Í Grunnskóla Hornafjarðar er góður starfsandi og skólinn er vel búinn. Sveitarfélagið er vel statt og þar er blómlegt mannlíf. Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is intellecta.is RÁÐNINGAR Skóla-og frístundasvið fagskrifstofa grunnskólamála. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Verkefnastjóri í byggingateymi fyrir skóla- og frístundastarf Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir starf verkefnastjóra bygginga fyrir skóla- og frístundastarf laust til umsóknar. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að vinna í teymi innan skóla- og frístundasviðs um byggingar og búnað. Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar, starfsemi Náms- flokka Reykjavíkur og skólahljómsveita. Jafnframt greiðir sviðið framlög til sjálfstætt starfandi dagforeldra, leikskóla, grunn- skóla og tónlistarskóla og hefur eftirlit með starfsemi þeirra. Skóla- og frístundasvið þjónustar yfir 20 þúsund börn og fjölskyldur þeirra. Útgjöld sviðsins eru u.þ.b. 60 milljarðar kr. á ári í tæplega 200 rekstrareiningum. Helstu verkefni og ábyrgð • Helsta starfssvið verkefnastjóra grunnskólabygginga er að hafa menntunarlega umsjón með verkefnum skóla- og frístundasviðs varðandi uppbyggingu og endurbætur á húsnæði grunnskóla og frístundastarfs. • Veita umhverfis- og skipulagssviði og eignaskrifstofu Reykjavíkur, ráðgjöf á sviði skóla- og frístundastarfs í nýbyggingum, endurnýjun og/eða viðbótum við húsnæði og útisvæði fyrir grunnskóla- og frístundastarf. • Veitir stjórnendum grunnskóla- og frístundastarfs ráðgjöf og stuðning í verkefnum tengdum framkvæmdum. • Að hafa eftirlit með að framkvæmdir við byggingar fyrir skóla- og frístundastarf Reykjavíkurborgar taki mið af Menntastefnu Reykjavíkurborgar, aðalnámskrá grunnskóla og Stefnu Reykjavíkurborgar um byggingar fyrir skóla- og frístundastarf. • Er fulltrúi skóla- og frístundasviðs í viðbragðsteymi vegna húsnæðismála. Hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Framúrskarandi hæfni í samskiptum • Reynsla og þekking af skóla- og frístundastarfi • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi • Skipulagshæfileikar og hæfni til að koma upplýsingum fram í ræðu og riti. Umsókn fylgi starfsferilskrá og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 4.júní nk. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, wwww.reykjavik.is/storf Nánari upplýsingar veita Daníel Benediktsson, verkefnastjóri og Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri á fagskrifstofu grunnskólamála.netföng: daniel.benediktsson@reykjavik.is og soffia.vagnsdottir@reykjavik.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.