Fréttablaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 106
Öflugt teymi vinnur hjá
Samkaupum sem reka fjórar
verslunarkeðjur á landinu:
Nettó, Iceland, Kjörbúðina
og Krambúðina. Fyrirtækið
er með framsækna mennta-
stefnu og leggur mikla
áherslu á að styðja starfsfólk
sitt áfram til frekari starfs-
þróunar.
Samkaup hlutu Mennta sprota
atvinnulífsins árið 2020 og
Menntaverðlaun atvinnulífsins
fyrr á þessu ári.
Hjá Samkaupum er lögð áhersla
á jafnrétti í víðu samhengi og
vellíðan fólks í vinnu og hlaut
fyrirtækið Hvatningarverðlaun
jafnréttismála árið 2021. „Það er
enginn eyland í þessum heimi
og að baki hverjum og einum
er auðvitað öflugt teymi og hjá
Samkaupum er gríðarlega öflugt
mannauðsteymi sem byggir á mis-
munandi styrkleikum, en í grunn-
inn er fyrirtækinu mjög umhugað
um starfsfólkið,“ segir Gunnur Líf
Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
mannauðs- og samskiptasviðs
Samkaupa. „Í gegnum allt sem við
gerum skín í gegn þessi kærleiki
gagnvart fólki. Og þegar teymið
byggir á því þá verður allt annað
betra. Það er línan sem við höfum
haldið.
Við erum með mjög sterka
mannauðsstefnu sem byggir
á ákveðnum grunngildum og
fjórum stórum stoðum í okkar
grunnstefnu, sem skipta okkur
miklu máli. Og við horfum til
þessara stefnustoða í öllu því sem
við gerum: Það er í fyrsta lagi öflug
framlína, í öðru lagi að það sé skýr
og skilvirk stefna á öllum sviðum,
í þriðja lagi að það sé skilvirkt
og skýrt upplýsingaflæði og góð
samskipti innan fyrirtækisins og
svo í fjórða lagi að það séu skýrar
ákvarðanir teknar með velferð
fólksins okkar í huga sem við
segjum að sé öflugasta framlína
landsins. Og öflugasta fólk lands-
ins. Við sem erum í mannauðsmál-
um erum í raun og veru í algjörri
stoðþjónustu við þetta: Svið okkar
vinnur fyrir verslanirnar en Sam-
kaup starfrækja 65 verslanir úti um
allt land og það er okkar að styðja
við allt þetta fjölbreytta fólk sem
er þar til staðar, sem er hátt í 1.500
manns. Það er virkilega gaman að
vinna í þessum málum og með svo
öflugu teymi.“
Nám með vinnu
Samkaup eru með skýra mennta-
stefnu sem snýr að því að mæta
bæði störfum nútíðarinnar og
störfum framtíðarinnar. „Við
settum upp heildræna mennta-
stefnu sem miðar að því að geta
mætt hverjum einstaklingi þar
sem hver og einn fær tækifæri til að
mennta sig samhliða vinnu í takti
við hið formlega menntakerfi.
Fólk getur farið í raunfærnimat og
Leiðandi í mennta-
og fræðslumálum
Mannauðsteymi
Samkaupa: frá
vinstri til hægri -
Guðni Erlends-
son, Gunnur Líf
Gunnarsdóttir,
Sandra Björk
Bjarkadóttir,
Sædís Krist-
jánsdóttir, Ólöf
Ragna Guðna-
dóttir.
mynd/aðsend
fengið það sem það lærir á vinnu-
staðnum metið til framhalds-
skólaeininga. Bæði það sem það
lærir á vinnustaðnum sjálfum og
í gegnum rafrænan fræðsluvett-
vang Samkaupa. Þá getur það farið
í fagnám í verslun og þjónustu við
Verzlunarskóla Íslands og fengið
fagbréf í verslun og þjónustu, sem
vegur vonandi þungt í kjarasamn-
ingum verslunarfólks af því að
það gerir viðkomandi að mennt-
uðum einstaklingi í þjónustu,
framlínu og verslunarfræðum.
Fólk getur svo bætt við sig námi;
klárað stúdentspróf, farið áfram í
diplóma nám í viðskiptafræði og
verslunarstjórnun og tekið BS-nám
í viðskiptafræði. Þá er hægt að
bæta við sig leiðtogafræðum Sam-
kaupa í samstarfi við Háskólann á
Bifröst en Samkaup eru eina fyrir-
tækið á Íslandi sem starfrækir leið-
toganám á háskólastigi. Allt þetta
myndar heildræna menntastefnu
og heildræna nálgun á að starfs-
fólk Samkaupa geti vaxið innan
frá; allt frá framhaldsskóla og upp
í háskóla og svo styrkjum við fólk
reyndar áfram líka í meistaranám.
Þannig að starfsfólk fær bæði
sveigjanleika í vinnunni, það fær
skólagjöldin greidd og með fram
þessu blómstrar fólk í sinni starfs-
þróun innan fyrirtækisins.“
Af um 1.500 starfsmönnum
Samkaupa eru um 100 í námi
á vegum fyrirtækisins og segir
Gunnur að það fólk sé á öllum aldri
eða á bilinu 20 til 65 ára. Frá því að
þessu var komið á hefur starfs-
mannavelta minnkað.
„Ég held að það komi skýrt í ljós
og sanni að í gegnum þau verðlaun
sem við höfum unnið, bæði þegar
við unnum Menntasprotann árið
2020 fyrir nýsköpun í menntun
í atvinnulífinu og svo núna 2022
sem menntafyrirtæki ársins, að
það er enginn að gera þetta eins
vel og við; Samkaup eru það fyrir-
tæki sem er leiðandi í mennta- og
fræðslumálum. Við erum einu
skrefi á undan af því að við vitum
að störfin eru að breytast, samfélag
okkar er að breytast og þarfir við-
skiptavinanna eru að breytast og
við erum skrefi á undan að mæta
því; að þróa fólkið okkar innan frá
og gefa því aukin tækifæri. Sam-
keppnin um starfsfólk á innan-
landsmarkaði mun aukast og við
ætlum að halda áfram að vera í
forskoti á grundvelli mannauðs og
fyrirtækjamenningar. Við erum
með forskot og virkilega hæfileika-
ríkt fólk á bak við okkur.“
Jafnrétti fyrir alla
Samkaup fóru í haust af stað með
átak sem kallast „jafnrétti fyrir
alla – Samkaup alla leið“. „Við
fórum í samstarf við Samtökin ‘78,
Þroskahjálp og Mirru, fræðslu- og
rannsóknarsetur um málefni
erlendra starfsmanna, í þá vegferð
að opna umræðuna og lyfta betur
upp fjölbreytileikanum. Í sam-
félaginu okkar býr fjölbreyttur
hópur af fólki og við eigum að lyfta
því hærra. Við eigum að vera mjög
meðvituð um að við erum ekki öll
eins og hvað við ætlum að gera sem
fyrirtæki til að stíga dansinn þar.
Það á ekki að gera ráð fyrir að allir
passi í sama kassann. Við erum
með fræðslu, þá sérstaklega til
stjórnenda, um fjölbreytileikann,
um mismunandi þjóðerni, mis-
munandi menningarheima og um
það að vera með starfsfólk í vinnu
sem er með skerta starfsgetu. Allt
þetta skiptir máli fyrir samfélagið
okkar. Þannig að við byrjuðum
með fræðsluvettvang til að fræða
stjórnendur og starfsfólk um fjöl-
Í samfélag-
inu okkar
býr fjöl-
breyttur
hópur af
fólki og
við eigum
að lyfta því
hærra. Við
eigum að
vera mjög
meðvituð
um að við
erum ekki
öll eins.
Gunnur Líf
Gunnarsdóttir
42 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURmannauðsmáL