Fréttablaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 103
YAY hefur komið inn á
markaðinn eins og storm-
sveipur með sínar framsýnu,
stafrænu lausnir sem felast
í dreifingu og utanumhaldi
gjafabréfa sem meðal annars
mannauðsstjórar eru að nýta
sér til að gleðja starfsfólk
og viðskiptavini á örfáum
sekúndum og hins vegar
fyrirtæki sem vilja selja sín
eigin stafrænu gjafabréf.
YAY er íslenskur, stafrænn hug-
búnaður sem selur gjafir í formi
stafrænna gjafabréfa frá fjölda
fyrirtækja í gegnum snjallforrit,
vefsíðu og fyrirtækjavef. „Við erum
með fyrirtækjaaðgang sem kallast
YAY Manager sem er vefsvæði
sem mannauðsstjórar og aðrir
stjórnendur eru að nýta sér,“ segir
Sigríður Inga Svarfdal, sölu- og
markaðsstjóri YAY. „Segja má að
fyrirtækið sé markaðstorg fyrir
rafræn gjafabréf frá fjölda fyrir-
tækja í gegnum smáforritið.
Fyrirtækið og lausnir þess hafa
vakið mikla athygli og hefur YAY
meðal annars verið tilnefnt af UT
Messunni sem Sproti ársins ásamt
Sidekick Health og Hopp, hlotið
styrki frá Rannís og valið fyrst
íslenskra fyrirtækja í alþjóðlegt
Lighthouse verkefni Mastercard,
sem er gríðarleg viðurkenning
á sviði fjártækni og vekur mikla
athygli víða um heim. Mörg af
verðmætustu sprotafyrirtækjum
heims á sviði fjártækni hafa
verið valin í þetta merka verkefni
ár hvert og nú er svo komið að
erlendir aðilar vilja opna YAY í
öðrum löndum og markaðssvæð-
um og er sú vinna í fullum gangi.“
Yfir 200 samstarfsaðilar
úti um allt land
YAY er með yfir 200 samstarfsaðila
úti um allt land svo sem veitinga-
staði, gististaði, afþreyingarfyrir-
tæki og fataverslanir. „Auk þess
erum við með opin YAY gjafabréf
sem gilda hjá öllum samstarfs-
aðilum okkar. Þarna erum við að
leysa fullt af áralöngum vanda-
málum varðandi gjafir, umbun og
hvatningu til starfsmanna; hvers
kyns tækifærisgjafir í rauninni
sem höfða til allra,“ segir Sigríður.
„Í fyrirtækjaaðgangi YAY er
hægt að senda á alla starfsmenn í
einu með einum smelli á síma-
númer eða netfang og einnig hægt
að láta myndbandskveðju fylgja
sem opnast í appinu þegar gjöfin
er opnuð og þá um leið persónu-
legri. Þarna erum við að spara
tíma stjórnenda; í staðinn fyrir að
þeysast um, velja eitthvað ákveðið
og kaupa eitthvað sem hentar ef
til vill ekki öllum, þá er hægt að
finna þarna eitthvað sem hentar
öllum og sparar mikinn tíma í að
senda og koma á leiðarenda fyrir
utan hvað þetta er umhverfisvænn
kostur.
Þarna er hvorki verið að nota
plast eða pappír og það er punktur
sem er mjög áhugaverður varðandi
umhverfissjónarmið. Við tókum
saman fyrir áramót hvað við
hefðum sparað mikið plast ef öll
gjafabréf sem við höfum gefið út
til áramóta hefðu verið gefin út í
formi plastkorta: Það hefðu verið
tvö og hálft tonn af plasti sem við
spöruðum umhverfinu.“
Sparar tíma og fyrirhöfn
Fyrirtækjaaðgangur YAY er öllum
gjaldfrjáls og stjórnendur geta
afgreitt sig sjálfir og sparað þannig
gríðarlegan tíma. „Við bjóðum
upp á kynningar í gegnum fjar-
fund eða komum í heimsókn. Svo
er hægt að bæta við kveðju við
allar gjafirnar, mynd, myndbands-
kveðju eða texta, sem viðtakandi
sér þegar hann opnar gjöfina í
appinu. Þannig verður gjöfin extra
persónuleg og skemmtileg.
Stjórnendur sjá um að kaupa
gjafir fyrir starfsfólkið, hvort sem
það eru jólagjafir eða afmælis-
gjafir eða að útbúa aðgang fyrir
aðra stjórnendur sem eru til
dæmis með þjónustu- eða söluver
eða að stýra til dæmis átaksverk-
efnum. Þetta er gert til að spara
þeim tíma og fyrirhöfn og til að
opna fyrir möguleikann á að vera
hvatvís og lifandi og auka ánægju
starfsmanna með því að geta glatt
með litlum fyrirvara eða til dæmis
eitthvert verkefni sem var leyst
á frábæran hátt. Þá er hægt að
umbuna strax í rauntíma og nýta
augnablikið.“
Móttökur framar vonum
Sigríður segir móttökurnar hafa
verið framar vonum. „Við gerðum
nýlega þjónustukönnun og
spurðum notendur meðal annars
hvort þeir myndu nota þjónustuna
aftur fyrir starfsmenn sína og
einnig var spurt hvernig starfs-
fólk viðkomandi fyrirtækja hefði
brugðist við því að fá YAY gjöf og
er ljóst á niðurstöðunum að YAY er
komið til að vera.“
Sigríður bendir einnig á að
nýtingin á stafrænum gjafabréfum
sé margfalt betri heldur en af
öðrum gjafabréfum. „YAY gjafa-
bréfin eru ekki bréf sem gleymast í
skúffum eða týnast. Þau eru alltaf í
símanum og tengt við símanúmer
og við leggjum áherslu á að minna
notendur okkar á bréfin. Við
höfum fengið afar sterk og jákvæð
viðbrögð vegna þess og það hefur
einnig komið mjög skýrt fram í
þjónustukönnunum okkar. Það er
það sem neytendur vilja.“
Allt frá smáfyrirtækjum
yfir í Landspítalann
Sigríður segir að YAY hafi breytt
miklu fyrir stjórnendur fyrirtækja
eftir að þeir fóru að nýta þjónustu
þeirra til að gleðja starfsfólkið.
„Einhver skrifaði í þjónustu-
könnuninni að þetta væru vin-
sælustu gjafir sem fyrirtækið hefði
gefið. Þá var skrifað að þetta væri
gott tækifæri til að gera eitthvað
skemmtilegt. Einnig var skrifað
að í þessu felist mikill tímasparn-
aður, bæði fyrir gefendur og ekki
síður þiggjendur, og að þetta sé
einföld og skemmtileg leið til þess
að gleðja starfsfólkið. Bæði gef-
endur og þiggjendur verða glaðir
af því að gefandinn sparar tíma og
getur verið viss um að gjöfin hitti í
mark og þiggjandinn nýtir gjöfina
klárlega. Þarna verður til jákvæð
hringrás af gleði.“
Sigríður bendir á að fyrirtæki,
stór sem smá, séu að nýta sér YAY
þjónustuna. „Það hefur verið mik-
ill höfuðverkur fyrir risafyrirtæki
eins og til dæmis Landspítalann að
gefa og dreifa jólagjöfum síðustu
ár og höfða til allra starfsmanna.
En núna síðustu jól breyttist það
með tilkomu YAY sem var nýtt til
að gefa og dreifa jólagjöfum starfs-
manna með frábærum árangri
og mikilli ánægju. Landspítalinn
er gott dæmi; það er rétt hægt að
ímynda sér hversu erfitt það er að
höfða til og gefa um 6.000 starfs-
mönnum gjöf sem hentar.“ n
Bylting fyrir mannauðsstjóra og stjórnendur
Sigríður Inga
Svarfdal. „Þarna
erum við að
leysa fullt af ára-
löngum vanda-
málum varðandi
gjafir, umbun
og hvatningu til
starfsmanna;
hvers kyns
tækifærisgjafir
í rauninni sem
höfða til allra.“
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINk
kynningarblað 39LAUGARDAGUR 21. maí 2022 MannauðsMál