Fréttablaðið - 21.05.2022, Page 103

Fréttablaðið - 21.05.2022, Page 103
YAY hefur komið inn á markaðinn eins og storm- sveipur með sínar framsýnu, stafrænu lausnir sem felast í dreifingu og utanumhaldi gjafabréfa sem meðal annars mannauðsstjórar eru að nýta sér til að gleðja starfsfólk og viðskiptavini á örfáum sekúndum og hins vegar fyrirtæki sem vilja selja sín eigin stafrænu gjafabréf. YAY er íslenskur, stafrænn hug- búnaður sem selur gjafir í formi stafrænna gjafabréfa frá fjölda fyrirtækja í gegnum snjallforrit, vefsíðu og fyrirtækjavef. „Við erum með fyrirtækjaaðgang sem kallast YAY Manager sem er vefsvæði sem mannauðsstjórar og aðrir stjórnendur eru að nýta sér,“ segir Sigríður Inga Svarfdal, sölu- og markaðsstjóri YAY. „Segja má að fyrirtækið sé markaðstorg fyrir rafræn gjafabréf frá fjölda fyrir- tækja í gegnum smáforritið. Fyrirtækið og lausnir þess hafa vakið mikla athygli og hefur YAY meðal annars verið tilnefnt af UT Messunni sem Sproti ársins ásamt Sidekick Health og Hopp, hlotið styrki frá Rannís og valið fyrst íslenskra fyrirtækja í alþjóðlegt Lighthouse verkefni Mastercard, sem er gríðarleg viðurkenning á sviði fjártækni og vekur mikla athygli víða um heim. Mörg af verðmætustu sprotafyrirtækjum heims á sviði fjártækni hafa verið valin í þetta merka verkefni ár hvert og nú er svo komið að erlendir aðilar vilja opna YAY í öðrum löndum og markaðssvæð- um og er sú vinna í fullum gangi.“ Yfir 200 samstarfsaðilar úti um allt land YAY er með yfir 200 samstarfsaðila úti um allt land svo sem veitinga- staði, gististaði, afþreyingarfyrir- tæki og fataverslanir. „Auk þess erum við með opin YAY gjafabréf sem gilda hjá öllum samstarfs- aðilum okkar. Þarna erum við að leysa fullt af áralöngum vanda- málum varðandi gjafir, umbun og hvatningu til starfsmanna; hvers kyns tækifærisgjafir í rauninni sem höfða til allra,“ segir Sigríður. „Í fyrirtækjaaðgangi YAY er hægt að senda á alla starfsmenn í einu með einum smelli á síma- númer eða netfang og einnig hægt að láta myndbandskveðju fylgja sem opnast í appinu þegar gjöfin er opnuð og þá um leið persónu- legri. Þarna erum við að spara tíma stjórnenda; í staðinn fyrir að þeysast um, velja eitthvað ákveðið og kaupa eitthvað sem hentar ef til vill ekki öllum, þá er hægt að finna þarna eitthvað sem hentar öllum og sparar mikinn tíma í að senda og koma á leiðarenda fyrir utan hvað þetta er umhverfisvænn kostur. Þarna er hvorki verið að nota plast eða pappír og það er punktur sem er mjög áhugaverður varðandi umhverfissjónarmið. Við tókum saman fyrir áramót hvað við hefðum sparað mikið plast ef öll gjafabréf sem við höfum gefið út til áramóta hefðu verið gefin út í formi plastkorta: Það hefðu verið tvö og hálft tonn af plasti sem við spöruðum umhverfinu.“ Sparar tíma og fyrirhöfn Fyrirtækjaaðgangur YAY er öllum gjaldfrjáls og stjórnendur geta afgreitt sig sjálfir og sparað þannig gríðarlegan tíma. „Við bjóðum upp á kynningar í gegnum fjar- fund eða komum í heimsókn. Svo er hægt að bæta við kveðju við allar gjafirnar, mynd, myndbands- kveðju eða texta, sem viðtakandi sér þegar hann opnar gjöfina í appinu. Þannig verður gjöfin extra persónuleg og skemmtileg. Stjórnendur sjá um að kaupa gjafir fyrir starfsfólkið, hvort sem það eru jólagjafir eða afmælis- gjafir eða að útbúa aðgang fyrir aðra stjórnendur sem eru til dæmis með þjónustu- eða söluver eða að stýra til dæmis átaksverk- efnum. Þetta er gert til að spara þeim tíma og fyrirhöfn og til að opna fyrir möguleikann á að vera hvatvís og lifandi og auka ánægju starfsmanna með því að geta glatt með litlum fyrirvara eða til dæmis eitthvert verkefni sem var leyst á frábæran hátt. Þá er hægt að umbuna strax í rauntíma og nýta augnablikið.“ Móttökur framar vonum Sigríður segir móttökurnar hafa verið framar vonum. „Við gerðum nýlega þjónustukönnun og spurðum notendur meðal annars hvort þeir myndu nota þjónustuna aftur fyrir starfsmenn sína og einnig var spurt hvernig starfs- fólk viðkomandi fyrirtækja hefði brugðist við því að fá YAY gjöf og er ljóst á niðurstöðunum að YAY er komið til að vera.“ Sigríður bendir einnig á að nýtingin á stafrænum gjafabréfum sé margfalt betri heldur en af öðrum gjafabréfum. „YAY gjafa- bréfin eru ekki bréf sem gleymast í skúffum eða týnast. Þau eru alltaf í símanum og tengt við símanúmer og við leggjum áherslu á að minna notendur okkar á bréfin. Við höfum fengið afar sterk og jákvæð viðbrögð vegna þess og það hefur einnig komið mjög skýrt fram í þjónustukönnunum okkar. Það er það sem neytendur vilja.“ Allt frá smáfyrirtækjum yfir í Landspítalann Sigríður segir að YAY hafi breytt miklu fyrir stjórnendur fyrirtækja eftir að þeir fóru að nýta þjónustu þeirra til að gleðja starfsfólkið. „Einhver skrifaði í þjónustu- könnuninni að þetta væru vin- sælustu gjafir sem fyrirtækið hefði gefið. Þá var skrifað að þetta væri gott tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt. Einnig var skrifað að í þessu felist mikill tímasparn- aður, bæði fyrir gefendur og ekki síður þiggjendur, og að þetta sé einföld og skemmtileg leið til þess að gleðja starfsfólkið. Bæði gef- endur og þiggjendur verða glaðir af því að gefandinn sparar tíma og getur verið viss um að gjöfin hitti í mark og þiggjandinn nýtir gjöfina klárlega. Þarna verður til jákvæð hringrás af gleði.“ Sigríður bendir á að fyrirtæki, stór sem smá, séu að nýta sér YAY þjónustuna. „Það hefur verið mik- ill höfuðverkur fyrir risafyrirtæki eins og til dæmis Landspítalann að gefa og dreifa jólagjöfum síðustu ár og höfða til allra starfsmanna. En núna síðustu jól breyttist það með tilkomu YAY sem var nýtt til að gefa og dreifa jólagjöfum starfs- manna með frábærum árangri og mikilli ánægju. Landspítalinn er gott dæmi; það er rétt hægt að ímynda sér hversu erfitt það er að höfða til og gefa um 6.000 starfs- mönnum gjöf sem hentar.“ n Bylting fyrir mannauðsstjóra og stjórnendur Sigríður Inga Svarfdal. „Þarna erum við að leysa fullt af ára- löngum vanda- málum varðandi gjafir, umbun og hvatningu til starfsmanna; hvers kyns tækifærisgjafir í rauninni sem höfða til allra.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINk kynningarblað 39LAUGARDAGUR 21. maí 2022 MannauðsMál
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.