Fréttablaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 88
Erik Christianson Chaillot
bjó í tæp sjö ár í Ástralíu þar
sem hann lauk meistara-
námi og starfaði við mann-
auðsmál hjá einu stærsta
ráðgjafarfyrirtæki heims.
starri@frettabladid.is
Eftir tæplega sjö ára dvöl í Ástralíu,
þar sem Erik Christianson Chaillot
lauk meistaranámi og starfaði um
tíma hjá Kearney, einu stærsta
alþjóðlega ráðgjafarfyrirtæki
heims, sneri hann heim á síðasta
ári og tók við stöðu mannauðs-
stjóra hjá KPMG. Meistaranámið
var að sögn Eriks krefjandi en um
leið mjög praktískt og hjá Kearney
tókst hann á við mörg spennandi
verkefni en hann hlaut alþjóðlega
viðurkenningu árið 2020 fyrir eitt
þeirra. „Tíminn í Ástralíu var heilt
yfir æðisleg reynsla fyrir ungan
strák frá Íslandi sem ég mun lengi
búa að. Ég eyddi sex mánuðum
í að brimbrettast og leika mér á
austurströnd Ástralíu sem tvítugur
strákur og vissi strax að ég yrði að
prófa að búa þarna einn daginn.“
Aðeins út fyrir þægindasvæðið
Í byrjun árs 2015 flutti hann ásamt
Mannauðsmálin heillandi
Erik Christianson Chaillot tók við starfi mannauðsstjóra hjá KPMG undir lok síðasta árs. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Leiðandi í 10 ár í þjálfun, þróun, vexti
og trausti á íslenskum markaði.
Bókaðu tíma með ráðgjafa okkar og við tökum spjall um stöðu ykkar og sókn
franklincovey.is | info@franklincovey.is
Leiðtogaþjálfunarfyrirtækið FranklinCovey heldur upp á 10 ára
afmæli á Íslandi. Síðastliðinn áratug höfum við unnið með fleiri
en 300 vinnustöðum á Íslandi og vinnum með mörg þúsund
stjórnendum ár hvert, bæði á vettvangi og í gegnum stafræna
þjálfun.
Nú mörkum við tímamót í íslensku atvinnulífi þar sem við
frumsýnum AllAccessPass, stafræna fræðslusetur okkar á
íslensku og 23 öðrum tungu málum. AllAccessPass akademían
býður upp á allt efni FranklinCovey með hagnýtum og áhrifa
ríkum námskeiðslotum, æfingum, glósum og könnunum í þeim
færniþáttum sem rannsóknir sýna að þjóni árangri atvinnulífsins
á þekkingaröld.
Allt efni okkar er vottað til alþjóðlegra endurmenntunar eininga
(CEU) og er því fyrsta stafræna þjálfunin á íslensku sem
uppfyllir þær kröfur. Námsefni okkar er byggt á tímalausum
lögmálum um mannlegan árangur, sem er hannað til að hjálpa
fólki að breyta bæði hugarfari og hegðun — og verður nú
aðgengilegra en nokkru sinni fyrr.
Öryggi | Samvinna | Framsækni
Vilt þú ganga til liðs við öflugan hóp hjúkrunarfræðinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri?
Sjúkrahúsið á Akureyri
• Er framsækinn og eftirsóknarverður vinnustaður
• Veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu með áherslu á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir
• Er annað tveggja sérgreinasjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum
• Er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem leggur metnað sinn í kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindum
• Leggur áherslu á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga
• Er miðstöð læknisfræðilegrar þjónustu sjúkraflugs í landinu
• Er með alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni og er fyrsta heilbrigðisstofnunin á Íslandi til að hljóta slíka vottun
• Er með jafnlaunavottun skv. IST-85 frá árinu 2019
Sjúkrahúsið býður upp á krefjandi og áhugaverð störf í fjölbreyttu og spennandi starfsumhverfi með góðri handleiðslu
og býður upp á tækifæri til starfsþróunar með markvissri þjálfun og fræðslu.
Ef þú hefur áhuga á að koma og vinna á lifandi og fjölbreyttum vinnustað þá er Sjúkrahúsið á Akureyri góður kostur.
Við tökum vel á móti þér.
Sjúkrahúsið á Akureyri
• Er framsækinn og eftirsóknarverður vinnustaður
• Veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu með áherslu á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir
• Er annað tveggja sérgreinasjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum
• Er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem leggur metnað sinn í kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindum
• Leggur áherslu á að ráða til starfa og halda í hæfileika íka einstaklinga
• Er miðstö læknisfræðilegrar þjónustu sjúkraflugs í landinu
• Er með alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni og er fyrsta heilbrigðisstofnunin á Íslandi til að hljóta slíka vottun
• Er með jafnlaunavottun skv. IST-85 frá árinu 2019
Sjúkrahúsið býður upp á krefjandi og áhugaverð störf í fjölbreyttu og spennandi starfsumhverfi með góðri handleiðslu
og býður upp á tækifæri til starfsþróunar með markvissri þjálfun og fræðslu.
Ef þú hefur áhuga á að koma og vinna á lifandi og fjölbreyttum vinnustað þá er Sjúkrahúsið á Akureyri góður kostur.
Við tökum vel á móti þér.
kærustunni sinni, Elsu Jóhanns-
dóttur, til Sydney þar sem þau
hófu bæði meistaranám. „Ég vildi
bæta við mig þekkingu á fjár-
málum og rekstri fyrirtækja og
ákvað því að fara í meistaranám í
viðskiptafræði í UNSW Business
School, með áherslu á mannauðs-
stjórnun, frekar en að fara í 100%
hreina mannauðsstjórnunargráðu.
Þar lærði ég mikið um rekstur og
stefnumótun fyrirtækja, sem var
auðvitað svolítið fyrir utan mitt
þægindasvæði, nýsköpun og þróun
og auðvitað mikið í mannauðs-
fræðum. Námið var mjög praktískt
þar sem ég fékk meðal annars að
taka þátt í frumkvöðlakeppnum
og vinna lokaverkefni fyrir Uber.
Svo skemmir ekki að skólinn er við
hliðina á strönd.“
Áhugi Eriks á mannauðsmálum
kviknaði í grunnnámi í sálfræði
en þar fann hann fljótt löngun til
að nýta þekkingu á sálrænum og
félagslegum þáttum í viðskiptalíf-
inu, frekar en sem klíníska sálfræði.
Mörg stór verkefni
Erik hóf störf hjá Kearney á meðan
hann var enn í námi. „Ég var
ráðinn inn sem sérfræðingur í
mannauðsmálum þar sem ég fékk
frábært tækifæri til þess að leiða
ýmis mannauðstengd verkefni í
samvinnu við stjórnendur í Ástr-
alíu, Kína, Suðaustur-Asíu, Japan,
Suður-Kóreu og Indlandi. Fljótlega
bauðst mér tækifæri til að verða
mannauðsstjóri Kearney fyrir
starfsemina í Ástralíu og Nýja-Sjá-
landi. Þar leiddi ég teymi mann-
auðssérfræðinga og bar ábyrgð á
mannauðsstefnu félagsins og að
skapa jákvæða og hvetjandi upp-
lifun af vinnustaðnum, allt þar til
ég flyt heim og tek við starfi mann-
auðsstjóra hjá KPMG í september á
síðasta ári.“
Í starfi sínu hjá Kearney kom
Erik að mörgum stórum verk-
efnum. „Þar má nefna innleiðingu
á nýju frammistöðumatskerfi fyrir
félagið alþjóðlega og umbreyt-
ingum á fræðslu- og hvatakerfum.
Stoltastur er ég þó af þeirri vinnu
sem ég vann á sviði fjölbreytileika
og inngildingu (e. diversity and
inclusion) þegar kemur að kynja-
jafnrétti og jafnari hlutföllum
og svo stuðningi við innfædda
Ástralíubúa, hinsegin einstaklinga
og foreldra á vinnumarkaði í
gríðarlega krefjandi geira, en ég
hlaut alþjóðlega viðurkenningu
árið 2020 fyrir þá vinnu, sem var
mikill heiður.“
Frábær tækifæri
Að vinna við mannauðsmál í dag
er að sögn Eriks ótrúlega heillandi
viðfangsefni, ekki síst vegna
aukinnar áherslu á sjálfbærni og
stafræna þróun. „Mannauðsmál
í dag eru stútfull af spennandi
áskorunum. Við erum að ganga
í gegnum mestu breytingar á
vinnumarkaði sem sést hafa lengi
og við mannauðsfólkið höfum
frábært tækifæri til þess að móta
menningu, vinnuhætti og afkomu
fyrirtækja og getum þar með haft
bein áhrif á efnahagslíf og almenn
lífsgæði á Íslandi. Þessi starfsgrein
getur því verið alveg ótrúlega
gefandi, þó svo að okkur mann-
auðsfólki líði kannski ekki alltaf
þannig í dags daglegum störfum.“
Ólíkt umhverfi
Erik segir erfitt að bera saman
starfsumhverfi mannauðssérfræð-
inga í Ástralíu og á Íslandi. „En út
frá mínum reynsluheimi þá voru
meiri kröfur gerðar til starfsfólks
úti, sem er látið fara fljótt ef það
stendur ekki undir þeim. Lífs-
gæðakapphlaupið í Sydney skapar
talsverða samkeppni, væntingar
um að vera alltaf tiltækur og lifa
hratt, sem er kannski ekki mjög
fjölskylduvænt. Ísland aftur á móti
er talsvert afslappaðra, óformlegra
og óskipulagðara, sem gerir það
að verkum að við erum fjölskyldu-
vænni, þolinmóðari og berum
meiri virðingu fyrir mörkum hvers
annars, en getur líka þýtt að við
forðumst vandamál og að okkar
„þetta reddast“-viðhorf skapar
stundum óþarfa stress á síðustu
stundu. Á litla Íslandi er líka miklu
meira um blöndun vinnu og
einkalífs með tilheyrandi vináttu
á vinnustað og tengingum gegnum
samfélagsmiðla. Í Ástralíu fannst
mér meiri aðskilnaður þar sem
fólk hélt einkalífinu meira fyrir sig.
Bæði þjóðerni eiga það þó sam-
eiginlegt að leiðast ekki að fá sér
bjór eftir vinnu.“
Sydney er frábær borg
Dvölin í Ástralíu var mjög eftir-
minnileg og segir Erik að Sydney sé
yndisleg borg með góð lífsgæði og
eitthvað fyrir alla. „Þar er frábært
veðurfar, gullfallegar strendur,
þjóðgarðar, iðandi menning og
matarsena, fjölbreytt viðskiptalíf,
mikið af íþróttum, öflugt frum-
kvöðlastarf og allt í gríðarlegum
fjölmenningarkokteil. Þetta var
hark en það sem ég sakna lík-
lega mest er morgunrútínan mín,
sem var að labba með hundinn á
kaffihús við ströndina og fá mér
heimsklassa kaffi fyrir vinnu. Við
þurfum fleiri kaffihús á Íslandi
sem leyfa hunda!“ n
24 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURMannauðsMál