Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 14

Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 14
Náttúrufræðingurinn 106 Ritrýnd grein / Peer reviewed 8. mynd. Veiði fullorðinna dýra (rauðir punktar) og yrðlinga (bláir punktar) á vestan- og aust- anverðu landinu. Línurnar sýna þriggja ára keðjumeðaltal. Aukning eftir 1980 hófst fyrr á vestanverðu landinu en stóð lengur og varð meiri austanlands, bæði hvað varðar fullorðin dýr og yrðlinga. – The total number of adult (red dots) and juvenile foxes killed (blue dots) in West (left) and East (right) Iceland. The dotted lines show 3-year running average. The growth after 1980 was more rapid in the west but lasted longer and reached a higher maximum in the east, both for adults and cubs. Gögn/Data: Umhverfisstofnun / The Environment Agency of Iceland. Ár / YearÁr / Year 0 50 0 10 0 0 15 0 0 20 0 0 25 0 0 30 0 0 0 50 0 10 0 0 15 0 0 20 0 0 25 0 0 30 0 0 F jö ld i v ei d d ra d ýr a / T o ta l k ill ed f o xe s Vestur / West Austur / East 1960 1980 2000 2020 1960 1980 2000 2020 Yrðlingar / CubsFullorðin dýr / Adults 9. mynd. Hlutfall mórauðra refahræja af vestur- hluta landsins (bláir punktar, N=4814) og austurhluta (rauðir þríhyrningar, N=6770). Lá- rétta línan sýnir 50% hlutfall. Langflest árin voru mórauðir refir í meirihluta en mikill munur er á landshlutum hvað þetta varðar. – Per- cent of obtained samples/fox carcasses of the blue morph in west (blue dots, N=4814) and east (red triangles, N=6770) Iceland. The horizontal line represents 50%. Most years, blue foxes were more common, but the re- gions differ as the proportion of blue foxes was lower in the eastern part. Ár / Year H lu tf al l m ó ra u ð ra / P ro p o rt io n b lu e 1980 20 40 60 80 10 0 1990 2000 2010 2020 sveiflur í veiðitölum á Hornströndum (6. mynd). Veiðisókn var stöðug á þessum tíma, þ.e. farið var á svæðið árlega til að leita grenja og þau sem voru í ábúð voru unnin, enda lög um útrýmingu refa enn í gildi (sjá 1. innskotsgrein, bls. 104). Þegar Hornstrandir voru heimsóttar árin 1998 og 1999 var farið á 170 greni og voru 39 af þeim í ábúð, eða 22,9%. Gögnin úr ferðinni 1999, fimm árum eftir friðun, voru borin saman við gögn frá því fimm árum fyrir friðun. Niður- stöður benda til þess að stofninn þar hafi vaxið í fyrstu en síðan hafi stöð- ugleiki tekið við.21 Upp frá þessu hefur verið fylgst reglulega með refunum á Hornströndum, með sérstakri áherslu á Hornvík og Hælavík (þ.m.t. Hlöðu- vík) þar sem þekkt eru 42 greni á 72 ferkílómetra svæði.39 Fjöldi grenja í ábúð sem hlutfall af fjölda grenja sem farið er á hefur haldist nokkuð stöðugur um 24,6% að meðaltali frá árinu 1999 eða að jafnaði 0,19 greni á ferkílómetra (7. mynd). Svo virðist því sem stofnvöxtur hafi verið minni innan griðlanda þar sem friðun á sér stað en þar sem veiðar voru stundaðar. Refum hélt áfram að fjölga á landsvísu eftir friðun og til ársins 2008 en hvorki í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli né í Friðlandi Hornstranda. Ábúðar- þéttleiki er í samræmi við geldhlutfall, þ.e. því hærra sem hlutfall grenja í ábúð er, þeim mun lægra ætti geldhlutfall að vera, en það er lykilþáttur þéttleika- háðrar stofnstýringar hjá óðalsdýrum eins og refum og er vísitala á burðargetu lands.12 Stærð óðals fer fyrst og fremst eftir framboði fæðu og eftir því sem fæðustofnar stækka er pláss fyrir fleiri óðul, og þéttleiki refa eykst. Að sama skapi stækka óðulin að flatarmáli, þeim fækkar og þéttleiki rándýra, þ.á m. refa, minnkar þegar fæðuframboðið dregst saman.40 Á svæðum þar sem þéttleiki refa er mikill, svo sem á Hornströndum, er geldhlutfall yfirleitt hátt því ekki fá öll kynþroska dýr aðgang að óðali. Veiðar, sérstaklega grenjavinnsla, hafa þau áhrif að samkeppni um óðul verður minni og kynþroska dýr sem annars væru geld fá tækifæri til að tímgast. Hóflegar veiðar kunna því að geta viðhaldið vaxtarhraða stofns, sérstaklega ef fæðuframboð er nægilegt að vetri.41 Nánar verður fjallað um fæðuval og tímgun refa í næstu grein. Undanfarin ár hefur orðið viðkomu- brestur hjá refum á Hornströndum og var ástandið einna verst árið 2019.39 Þá voru mun færri óðul í ábúð en áður og mun færri got voru staðfest. Sama virðist hafa verið uppi á teningnum í Þjóðgarðinum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.