Bændablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 54
Bændablaðið | Miðvikudagur 25. maí 202254 Ég hef verið svolítið mikið að prófa rafmagnsbíla undanfarin blöð og var ég spurður út í hvort ekki væri kominn tími á að prófa fjölskyldubíl til ferðalaga sem getur dregið hjólhýsi. Fyrir valinu varð KIA Sorento, örlítið breyttur til að keyra hefðbundna malarvegi og betri fjallvegi. Margir gera kröfur um getu bíla Þessi KIA Sorento sem ég prófaði er breyttur bíll, upphækkaður úr að lægsti punktur bílsins fór úr 18 cm í 22 cm, á 31 tommu dekkjum og fyrir vikið er hann með hærri dekk sem gefa góða fjöðrun og er bíllinn afar þægilegur í akstri á malarvegum. Dráttargeta bílsins er 2500 kg (miðað við að aftanívagn sé með bremsubúnaði). Vélin er 2,2 CRDi dísilvél sem á að skila 202 hestöflum, skiptingin er 8 þrepa og nánast stiglaus. Uppgefin meðaleyðsla í blönduðum akstri eru 6,5 lítrar af dísil á hundraðið (á þeim 111 km sem ég ók sagði aksturstölvan að ég hefði verið að eyða 8,9 lítrum á hundraðið og var ég mest innanbæjar). Að öllu þessu ofantöldu finnst mér þetta vera fullkominn bíll til ferðalaga, kraftmikill, dráttargeta góð, fjöðrun á vondum vegum fín og eyðir ekki miklu. Prufuaksturinn Eins og með alla bíla þá byrjaði ég á að hávaðamæla bílinn á 90. Þegar ég var að ná 90 km hraða fór hávaðinn upp undir 75db, en þegar ég var komin í jafna keyrslu á 90 í efsta þrepi mældist hávaðinn inni í bílnum nokkuð stöðugur á bilinu 69-70db. Akreinalesarinn var að virka fínt og blindhornsvarinn varaði með hljóðmerki við hættu frá hlið. Næst tók ég innanbæjarrúnt og skemmda malbikið sem ég hef kvartað undan á þungum rafmagnsbílum undanfarið var allt í einu horfið nema stærstu holurnar og ójöfnurnar sem náðu að lemja fjöðrunina upp. Bíllinn var lipur í umferðinni á öllum stillingunum á skipting- unni, en í boði er að keyra í fjórum mismunandi stillingum, comfort, eco, sport og smart. Skemmtilegastur fannst mér bíllinn í sport-stillingunni, en þá sýndi líka aksturstölvan töluvert meiri eyðslu. Á lausum malarvegi var ég ánægður með stöðuleika bílsins og fjöðrun góð. Á grófum og holóttum malarslóða fannst mér bíllinn mjög góður, miklu betri en ég hafði fyrirfram ímyndað mér. Rúmgóður og þægilegur í 5 sætum af 7 Sætin í fremstu tveim sætaröðunum eru mjög þægileg og þá sérstaklega fremstu tvö, en í öftustu tveimur fannst mér ég vera of krepptur og myndi halda að þau væru varla fyrir hærra fólk en 150 cm. Víða eru USB tenglar í bílnum til að hlaða síma og einnig úrtak fyrir 12 volta rafmagn. Geymsluhólf eru mörg og hólf fyrir drykkjarföng handa öllum farþegum nema þeim sem er í miðjunni í miðsætaröðinni. Farangursrýmið er stórt (sérstak- lega ef öftustu tvö sætin eru ekki í notkun). Varadekk er það sem ég kalla aumingi og er staðsett undir bílnum aftast. Til að maður sé löglegur í akstri þarf að kveikja ljósin, en það er í lagi að hafa ljósatakkann alltaf kveiktan því að eftir að bílnum er læst þá slekkur hann ljósin sjálfkrafa eftir um 10 sek. Verð og verð á breytingu Fjórar mismunandi gerðir eru af KIA Sorento, Style, Luxury, Luxury plus og GT-Line. Verð er frá 9.290.777 upp í 10.990.777. Bíllinn sem ég prófaði nefnist KIA Sorento Arctic Edition og er sérbreyttur fyrir íslenskar aðstæður. Verð á þessari breytingu er ekki nema 470.000 og að mínu mati er breytingin hverrar krónu virði. Meira veggrip, mýkri akstur og aukið flot fyrir akstur í snjó og sandi. VÉLABÁSINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is OG VINNUM ÚR ÞEIM LAUSNIR TÖKUM AÐ OKKUR VERKEFNI VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is með 7 ára ábyrgð KIA Sorento 31 tommu breyttur. Myndir / HLJ Fjöðrunin var góð og mjúk á þessum grófa vegi og mjög lítið malarvegahljóð undir bílnum. Ég er 175 sentímetrar á hæð og í öftustu sætaröðinni fannst mér ég of krepptur, svo þarna er ekki pláss fyrir hærri en 150 cm. Það var komið myrkur þegar ég skilaði bílnum, en bakkmyndavélin var björt og skýr. Fjórar stillingar fyrir vélina og þrjár fyrir mismunandi torfærur og snjó. Miðað við gróf dekk og stóra dísilvél er þetta ágætis mæling á hávaða inni í bíl á 90. Hæð 1.840 mm Breidd 1.900 mm Lengd 4.810 mm Helstu mál og upplýsingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.