Bændablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Miðvikudagur 25. maí 202222 Viðvarandi fæðuóöryggi í vestanverðri Afríku samkvæmt skýrslu FAO: Yfir 38 milljónir manna munu búa við fæðuskort á næstu mánuðum Matvæla- og landbúnaðar- stofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) gaf út sérstaka aðvörun 16. maí síðastliðinn vegna matvælakreppu og viðvarandi fæðuskorts í Vestur-Afríku og Sahel´. Búist er við að ástandið eigi eftir að versna til muna á næstu mánuðum. Samkvæmt gögnum FAO er áætlað að 27,3 milljónir manna hafi þurft að upplifa mikið fæðuóöryggi frá mars og fram á þennan dag í Vestur- Afríku og Sahel‘. Ástæðan er svæðisbundinn uppskerubrestur á síðasta ári. Búist er við að fjöldinn sem býr við neyðarástand vegna matarskorts muni aukast í 38,3 milljónir á milli júní og ágúst ef ekki verði aukið við hjálparaðstoð. Þetta er meiri fjöldi fólks sem er í neyð en áður hefur sést á þessu svæði. Inn í þetta spila harðnandi pólitísk átök, hátt matvælaverð og þjóðhagslegar áskoranir samhliða áhrifunum af Covid-19 heimsfaraldrinum. Stríðsátök í Úkraínu hafa leitt til minna framboðs og hækkandi verðs á kornvörum og áburði sem og hækkandi verðs á eldsneyti. Staðan hefur snarversnað frá 2019 Áætlaður fólksfjöldi sem býr við mataróöryggi hefur vaxið síðan 2014 og næstum fjórfaldast á milli 2019 og 2022. Lítið framboð af áburði og hátt verð mun ýta enn undir þennan vanda. Þá er því spáð að óhagstæð veðurskilyrði muni einnig leiða til minni kornframleiðslu á árinu 2022. Samkvæmt skýrslu FAO er mesti fjöldinn sem verður fyrir áhrifum fæðuskorts í Nígeríu, eða 19,45 milljónir manna. Þá kemur Níger með 4,4 milljónir, Búrkína Fasó með 3,45 milljónir, Tsjad með 2,1 milljón og Malí með 1,84 milljónir manna. Þá er því einnig spáð að 1,6 milljónir manna muni upplifa fæðuskort í Sierra Leone á þessu ári, 1,2 milljónir í Gíneu og 830 þúsund í Benín. Vaxandi átök gera ástandið enn verra Það bætir ekki ástandið að vaxandi átök hafa verið á þessum svæðum á undanförnum tveim árum. Á það einkum við Mið- Sahel og við Chad vatnið (Burkina Faso, Chad, Malí, Nígeríu og Nígeríu), en einnig í norðurhlutum strandríkja, eins og í Benín, Tógó og á Fílabeinsströndinni. Mikil aukning ofbeldis hefur valdið stórfelldum tilfærslum, sem neytt hefur fjölda fólks til að yfirgefa heimili og hverfa frá sinni uppskeru. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Sameinuðu þjóðanna, Samhæfing mannúðarmála (OCHA), voru frá og með mars 2022 um 6 milljónir manna á flótta í Búrkína Fasó, Tsjad, Malí, Nígeríu og Nígeríu, samanborið við 5,15 milljónir snemma árs 2021. Þá leituðu enn 1,17 milljónir manna skjóls sem flóttamenn víðs vegar um nágrannahéruð. /HKr. Búist er við að fjöldinn sem býr við neyðarástand í vestanverðri Afríku vegna matarskorts muni aukast í 38,3 milljónir á milli júní og ágúst ef ekki verði aukið við hjálparaðstoð. Mynd / FAO World Food Programme um fæðuöryggi á heimsvísu: Um 193 milljónir manna búa við alvarlegt fæðuóöryggi Matarverð hefur hækkað að undanförnu um allan heim og ýtt undir fátækt, hungur og pólitískan óstöðugleika. Þó að engar skyndilausnir séu til við kreppunni ættu betur stæðu lönd að minnsta kosti að reyna að gera hana ekki verri, sagði í grein á vef Bloomberg í byrjun maí. Vísað er til skýrslu World Food Programme sem segir að um 193 milljónir manna um allan heim búi við alvarlegt fæðuóöryggi. Að hluta til stafar það af þrýstingi á alþjóðlegum matvælamörkuðum sem hafa verið að byggjast upp í nokkurn tíma. Hækkun orkuverðs árið 2021 jók kostnað við áburð og eldsneyti sem hefur neikvæð áhrif á landbúnað. Þurrkar eyðilögðu uppskeru í öflugum matvælaframleiðslulöndum eins og Brasilíu, Bandaríkjunum og Kanada. Þá urðu víða miklar tafir á flutningum af völdum heimsfaraldursins. Innrás Rússa í Úkraínu hefur aukið á matvælakreppuna. Fyrir stríðið voru löndin tvö að framleiða næstum 30% af hveiti sem verslað var með á heimsvísu. Úkraína lagði til um það bil helming af sólblómaolíu á heimsmarkaði og Rússland einn áttunda af áburði. Refsiaðgerðir gegn Rússlandi hafa hækkað orkuverðið enn frekar og gert áburðinn enn dýrari. /HKr. Ört hækkandi verð á landbúnaðarvörum í Evrópu: Framkvæmdastjórn ESB reynir að bera sig vel Samkvæmt nýjustu tölum fram kvæmda stjórnar Evrópu- sambandsins um skammtíma- útlit í landbúnaði munu Evrópu- sambandslöndin að mestu vera sjálfum sér næg um matvæli út þetta ár. Eigi að síður eru miklar áhyggjur fyrir hækkandi matvæla- verði og verðbólgu í löndunum. Í skýrslunni segir að innrás Rússa í Úkraínu 24. febrúar 2022 hafi verulega raskað alþjóðlegum landbúnaðarmörkuðum og skapað meiri óvissa um framboð á heimsvísu í náinni framtíð. Stríðið hefur m.a. áhrif á framboð á korn og olíufræi, og bætir við óstöðugleika á markaði sem þegar var spennuþrunginn. Þetta valdi líka áhyggjum af fæðuöryggi í ríkjum ESB til lengri tíma og kerfislægum vanda sem stafar af innflutningi á fóðri og áburði sem stórlega hefur dregið úr, einkum frá Úkraínu, Rússlandi og Hvíta-Rússlandi. Evrópusambandið reynir þó að bera sig vel og framkvæmdastjórn þess segir að framboð á matvælum, fóðri og áburði séu ekki aðal- áhyggjuefnið er varðar framboð á korni á markaðsárinu 2022/23, sem hefst í júlí næstkomandi. Telur framkvæmdastjórnin að ESB ríkin verði að „mestu“ sjálfum sér næg um matvæli þar sem afgangur hafi verið af vöruskiptum með landbúnaðarvörur. Þá megi búast við að innri markaður ESB sanni enn og aftur hlutverk sitt við að draga úr sveiflum og áföllum. „Það eru engu að síður áhyggjur varðandi hagkvæmni í framleiðslu vegna hás markaðsverðs og verðbólguþróunar,“ segir m.a. í skýrslunni. Þar segir einnig: „Helsta áhyggjuefnið er því vegna verðlagsþróunar. Sem afleiðing af stríðinu, hefur verð á orku, áburði, hveiti og sojabaunum rokið upp. Búist er við að það geri það áfram á þessu ári og mun vega enn þyngra í hækkandi verðbólgustigi. ECB spáir nú 5,1% verðbólgu fyrir ESB árið 2022 og að hún hækki um 2,1% til viðbótar á árinu 2023. Þetta vekur spurningar um getu bænda til að kaupa áburð, fóður og borga þeirra orkureikning. Sérstaklega fyrir bændur sem eru með orkufrek og fóðurfrekan rekstur. Ástandið vekur einnig spurningar um getu lágtekjuheimila til að kaupa matvörur.“ /HKr. UTAN ÚR HEIMI Genabreytt svínshjarta sem grætt var í sjúkling reyndist vera sýkt af svínaveiru Fyrr á þessu ári var grætt genabreytt svínshjarta í Banda- ríkjamann sem þjáðist af ólækn- andi hjartasjúkdómi. Aðgerðin sem slík tókst vonum framar en nú hefur komið í ljós að ígrædda svínshjartað var sýkt af svínaflensu og hjartaþeginn látinn tveimur mánuðum síðar. Aðgerðin, sem var framkvæmd á vegum University of Maryland School of Medicine, þótti marka tímamót og vera stórt skref fram á við í rannsóknum og framkvæmd á millitegunda líffæragjafa. Sjúkling- urinn sem um ræðir var við dauðans dyr þegar hann undirgekkst hjarta- aðgerð í janúar síðastliðnum. Dældi blóði af krafti Nokkrum dögum eftir að hjarta sjúklingsins var skipt út fyrir svínshjartað virtist allt í lukkunnar velstandi og hjartaþeginn sat uppi í rúmi sínu. Mælingar sýndu að hjartað dældi blóði af krafti um líkamann og vann eins og hjarta rokkstjörnu í góðu líkamlegu formi. Rúmum mánuði eftir aðgerð ina fór að halla undan fæti hjá hjarta þeganum og tveimur mánuðum eftir aðgerðina var hann látinn. Í yfirlýsingu sem Maryland School of Medicine sendi frá sér vegna andlátsins í mars síðastliðinn sagði talsmaður háskólans að engin augljós orsök væri tilgreind fyrir andlátinu og að beðið væri frekari niðurstaðna rannsókna því tengdu. Hjartað sýkt Núna hefur komið í ljós að svínshjartað sem notað var við ígræðsluna var sýkt af svokallaðri svínacýtómegalóveiru og að með aðgát hefði verið hægt að koma í veg fyrir sýkingu og dauða sjúklingsins af hennar völdum. Líffærasvín Svín sem notuð eru við rannsóknir á millitegundaígræðslum eru séralin og eiga því að vera laus við vírusa. Líftæknifyrirtækið Revivicor, sem ól svínið, hefur neitað að tjá sig um málið og ekki sent frá sér yfirlýsingu vegna þess. Sérfræðingar á sviði milliteg- unda ígræðslu segja að þrátt fyrir dauða sjúklingsins af völdum veirunnar hafi aðgerðin gengið vel og að í framtíðinni ætti að vera hægt að koma í veg fyrir sýkingar af þessu tagi. Helsta hindrunin fyrir líffæra- ígræðslu úr dýrum í menn er ónæmis kerfi mannsins sem ræðst á framandi frumur í ferli sem kallast höfnun. Til að forðast höfnun hafa líftæknifyrirtæki verið að þróa svín þar sem búið er að fjarlægja sum gen og bæta öðrum við til að draga úr hættu á höfnun. Tilraunir á heiladauðu fólki Rannsóknir með millitegunda- ígræðslur hafa aukist talsvert síðustu árin og hafa meðal annars verið gerðar tilraunir með að græða lifur, nýru og hjarta úr bavíönum og svínum í heiladautt fólk. Veirur geta stökkbreyst í nýjum hýsli Þeir sem lengst hafa gengið í að gagnrýna aðgerðir af þessu tagi segja að með milliteg- undaígræðslum skapist mögu- leikar á að hættulegir vírusar berist milli tegunda og stökkbreytist í nýja hýslinum. Þeir geti síðan borist með heilbrigðisstarfsfólki út í samfélagið og valdið faraldri. /VH Svín sem notuð eru við rannsóknir á millitegundaígræðslum eru séralin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.