Bændablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Miðvikudagur 25. maí 2022 55
Það er viss ánægja að keyra í lok
maí framhjá bílflökunum fyrir
ofan Draugahlíð í Svínahrauni og
sjá að tala látinna í umferðinni það
sem af er ári er ekki nema tveir
eftir fyrstu fimm mánuði ársins.
Vissulega er það tveimur of
mikið, en frá því að ég sá þessa
uppsetningu á varúðarskilti fyrst
hugsaði ég hvort ég myndi sjá þetta
skilti sýna töluna 0 einhvern tímann,
en ég er örugglega ekki einn um
þessa hugsun.
Ef allir sem eru í umferðinni
hugsuðu um að gera sitt besta er
það möguleiki, en þá þarf að hjálpast
að, vinna saman og virða lög og taka
tillit til annarra í umferðinni.
Taktu mark á gulu
blikkljósunum, þar er hætta
Gul blikkandi ljós á ökutækjum
eru ætluð til að vara við hættum og
hugsunin með þeim er aðallega að
hægja á umferð í þeirra nágrenni.
Þó er visst vandamál með þessi ljós,
menn gleyma að slökkva þessi ljós
og aðrir ofnota gulu viðvörunarljósin
og aka á umferðarhraða með ljósin
blikkandi.
Gul blikkandi ljós á bara að nota
þegar ekið er undir umferðarhraða,
bíll stopp eða ekið með farm sem
stendur mikið út af bíl, er í yfirhæð.
Í of mörg skipti sér maður bíla
með gulblikkandi ljós sem heldur
umferðarhraða og er með tryggilega
festan farm á palli. Vegna þess að of
margir ofnota þessi viðvörunarljós
þá tekur fólk ekkert mark á þessum
ljósum og hægir ekkert á þegar það
sér þessi ljós og of oft verður slys.
Að lágmarka hættu er eitthvað
sem allir geta
Á flestum dráttarvélum, gröfum og
öðrum hægfara vinnuvélum eru gul
blikkandi ljós, eitt eða fleiri. Þessi
ljós þarf að muna eftir að kveikja ef
ekið er á umferðargötum sem ætluð
er almennri umferð. Stundum er þó
aftanívagn með svo háan farm að
hann skyggir á ljósið. Það eru hins
vegar til lítil aukaljós sem ganga
fyrir rafhlöðu sem hægt er að setja
aftan á vagna og önnur tæki. Hef
góða reynslu af svona ljósi.
Sjálfur vinn ég oft í vegköntum
við að þjónusta bíla og vinnuvélar
sem hafa bilað í umferðinni. Þótt
bílarnir sem ég vinn á séu vel
útbúnir blikkljósum eru alltof margir
bílstjórar sem hægja of lítið á sér
þegar þeir aka framhjá. Í verstu
tilfellum neita ég að vinna við bíla
þar sem þeir stoppa og læt flytja þá
á öruggari stað.
Setti vin í hættu
sem ég þorði ekki!
Fyrir skemmstu var ég beðinn um
aðstoð á þungri umferðargötu, bíllinn
á miðri akrein á mjög vondum stað.
Bilunarlýsing var um klukkutíma
vinna og öll aðkoma til að vinna við
bílinn var umferðarmegin. Ég sagði
nei, það verður að flytja bílinn, og
benti á flutningsaðila sem sótti bílinn.
Á meðan hann var að setja bílinn
bilaða á sinn bíl með allt blikkandi
gult og með varúðarþríhyrning um
50 metrum fyrir aftan, varð þriggja
bíla árekstur fyrir aftan bílinn bilaða
og einn farþegi fluttur í burtu með
sjúkrabíl. Þarna hefði getað farið
verr, en í verstu svona tilfellum
hef ég leitað til lögreglu með blá
blikkandi ljós fyrir aftan mig
meðan ég vinn verk á hættulegum
stöðum. Að fá lögreglu til að vera
þarna fyrir aftan í um klukkutíma
var að mínu mati of langur tími,
en það er hugsanlega til lausn sem
Samgöngustofa gæti veitt.
Væri möguleiki á lausu
bláblikkandi fyrir útvalda?
Það hafa orðið mjög alvarleg slys
við vinnu á biluðum bílum í
vegköntum og á vegi. Oft hugsar
maður, hvenær kemur röðin að
mér eða einhverjum öðrum sem
vinna við sambærilegar aðstæður?
Ef Samgöngustofa gæti leyft
okkur sem vinnum við þessar
hættulegu aðstæður að nota
laust, blátt blikkandi ljós fyrir
aftan okkur í 10-20 mínútur væri
hægt að draga mikið úr aðstoð
frá lögreglu. Varla vill neinn
að umferðarlögum verði breytt,
en til samanburðar eru reglur í
Ástralíu þær að ef ekið er framhjá
gulblikkandi ljósum í vegkanti á
meiri hraða en 30 mílum (48 km
hraða) fær viðkomandi sekt. Það
sama gildir um að tala í síma í
akstri og viðkomandi fær 5 punkta
í ökuferilsskrá að auki.
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Bænda
Smáauglýsingar 56-30-300
STRÝTU GRANDI SPOR LJÁ BLEYTU-
KRAP GÁSKI SIÐA
ÓGURLEGA
ÍÞRÓTT
STREITA
FYRST
FÆDD
SKJÖGUR
ÓTRAUST-
UR
BILUN
NAUMUR
MÓRA
TUNNU
Í RÖÐ
BLÓM
NAGA
STÍGANDI
FRAM-
KVÆMA
TVEIR
EINSSKEINA
UMSÖGN
NÝLEGA
KRÆKLA
STAMPUR
KNÖTTUR
VEIKI
HRÆÐA MUNNBITISKAPA
MÆLI-
EINING
HINDRA
TÓNN
Á NÝ
RÚM
TUDDI
VÍTA
LABB
GARGA
ÖXULL
REKALD
ÞEKKJA
AFLI
ÚT
HEITIVIÐMÓT
ÓSVIKINN
HARMA
BÓK
SIGTI
TÁL
VAFRA
GRIPUR
SAMTÖK
SJÓN
ORG
ÁRÁS
RÓMVERSK
TALA
TVEIR
EINSBÓLGNA
STUNDA
ÁRANS
GIRNDÁN
DÍNAMÓR
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
174
RÁNDÝR LITLAUS STRÍÐNI LÆSA ÁSTAND NAUÐ
BLANDA
GEÐI VIÐ SKIPAST
GREINAR-
MUNUR TIL BAKA
SKÁN
FLETTA
FITU-
LÍTILL
LEYFI
ELDS-
NEYTI
TRAMPA
AF-
RAKSTUR
HLYNNA AÐ
TVEIR EINS
GÆLUNAFN
URMULL
HAGURBETRUN
ÆR
SNÍKJUR
NÓTA
VÍÐUR
TÍMABIL
Í RÖÐ
NÁTTA
MASSI
MULDUR
SÆGUR
MEGNAÐI
ÞEYTAST
FJAR-
STÆÐA
KATTAR-
DÝR
SÍÐRI
EINFALT
PLAN
MÆLI-
EINING
TVEIR
EINS
MANNA-
LÆTI
ÍLÁT
SKADDA
PRÝÐA
SKIL
SÁÐJÖRÐ
RÆNU-
LEYSI
ÚR HÓFI
TÓNLIST
MÁLHELTI
LOFT-
SIGLING
SALTA
KALLORÐ
MERKISPIL
MEITLA
ÖFUG RÖÐ
ÖFUG RÖÐ
Í RÖÐ
HUGAR-
BURÐUR
KK NAFN
ORKA
GLÓÐARDREITILL
HLUT-
TAKANDI
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
175
Að fara aðeins hægar í umferðinni er sumum erfitt
Lögreglan hefur oft varið mig í stuttan tíma með bláum ljósum. Mynd / HLJ
Þarna varð slys, þrátt fyrir gul ljós og þríhyrning á réttum stað.
Mynd / Alexander Már Steinarsson
Of oft þarf að kalla til lögreglu til að tryggja öryggi við stutta vinnu. Mynd / HLJ