Bændablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 44

Bændablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 44
Bændablaðið | Miðvikudagur 25. maí 202244 LÍF&STARF Sumarblóm auka litadýrðina í garðinum og fara vel í beðum, pottum, kerum og svalakössum. Flest sumarblóm þurfa sólríkan stað, skjól til að dafna og blómstra ríkulega. Þau þola ekki frost þannig að óráðlegt er að planta þeim út fyrr en hætta á næturfrosti er liðin hjá. Velja skal sumarblóm með tilliti til vaxtarstaðar því lítið gagn er í að setja blóm sem þurfa mikla sól í skugga, eða hávaxnar plöntur þar sem mikið blæs og þær eiga á hættu að fjúka um koll. Undirbúið jarðveginn vel Nauðsynlegt er að undirbúa jarðveginn vel áður en sumar­ blómunum er plantað, hvort sem það er í beð eða ker. Æskileg jarðvegsdýpt fyrir sumarblóm er 15 til 20 sentímetrar. Stinga skal jarðveginn upp, hreinsa burt grjót, mylja jarðveginn og bæta í hann lífrænum áburði á nokkurra ára fresti. Síðan er jarðvegurinn jafnaður til og lítils háttar af tilbúnum áburði stráð yfir. Hæfilegt bil á milli sumarblóma er 10 til 20 sentímetrar. Þétt plöntun minnkar vinnu við að reyta illgresi þegar líður á sumarið. Gæta skal þess að ræturnar séu blautar þegar plantað er út til að draga úr líkunum á að moldin hrynji af þeim. Blómin eru fljótari að jafna sig eftir útplöntun sé moldin rök. Vökvið vel Við útplöntun skal gæta þess að setja hæstu tegundirnar aftast í beðið og í skjól svo að þær brotni ekki í vindi og raða plöntunum eftir lit og lögun eins og hverjum og einum þykir fara best. Eftir útplöntun þarf að vökva í nokkra daga á eftir, sé þurrt í veðri, en of mikil vökvun kælir moldina og tefur vöxt. Eftir að sumarblómunum hefur verið komið fyrir sjá þau yfirleitt um sig sjálf og þurfa litla umhirðu, nema þá helst að klippt séu af þeim visnuð blóm til að koma í veg fyrir fræmyndun, en hún dregur úr áframhaldandi blómgun. Sumarblóm í pottum og kerum Hægt er að fá margar og fjölbreytilegar gerðir af ílátum undir blóm, til dæmis útipotta, tunnur, körfur og ker úr plasti eða leir. Einnig er boðið upp á gott úrval hengipotta, plast, bast og leir og svalakassa. Þess sem einna helst þarf að gæta að við val á útikeri er að það þoli frost ef það á að standa úti yfir veturinn. Sömu reglur gilda um jarðveg í keri og beði, það verður að vinna hann vel og gæta þess að frárennsli sé gott. Ef ekki er gat á kerinu er nauðsynlegt að setja lag af grófu efni, til dæmis grófan vikur, smásteina eða leirkúlur, í botninn þar sem afrennslisvatn getur safnast fyrir án þess að ræturnar fúni. Þetta á sérstaklega við ef kerið stendur undir berum himni. Ker sem stendur á þurrum stað þarf aftur á móti að vökva reglulega. Yfirleitt eru sumarblómin smá þegar þeim er plantað út á vorin en þau stækka yfir sumarið og því er hæfilegt að planta þeim með 10 til 12 sentímetra millibili. Stórgerðar plöntur, eins og pelargóníur og margarítur, þurfa aftur á móti meira pláss. Kerið kann því að virðast tómlegt til að byrja með en gróðurinn þéttist fljótt. Hægt er að setja allar tegundir sumarblóma í ker. Stjúpur, skrautnálar, sólboði, stjörnublik, flauelsblóm og silfurkambur njóta alltaf mikilla vinsælda en það er ekkert sem mælir gegn því að planta hádegisblómum, nellikum, fagurfíflum, pelargóníum og tóbakshorni. Einnig getur verið fallegt að planta hengijurtum eins og brúðarauga, skjaldfléttu eða hengitóbakshorn út við jaðra kersins og láta plönturnar flæða yfir brúnirnar. Þeir sem eru hagsýnir geta plantað matjurtum í kerin. Blöð ýmissa matjurta geta verið mjög falleg, til dæmis á kartöflum, rófum, hnúðkáli, beðju, salati, steinselju og grænkáli. Það má einnig búa til lítinn kryddjurtagarð í kerinu og planta í það rósmaríni, sítrónumelissu, myntu eða öðrum tegundum kryddjurta. Nokkur falleg sumarblóm Bláhnoða (Ageratum houstonianum). 10 til 30 sentímetra há og fíngerð jurt með bláum og ljósbláum blómum. Einnig til hvít. Vex best í skjóli og á þurrum stað. Hentar vel sem kantblóm og í þyrpingar. Skrauttóbak (Nicotiana × sanderae). Einær jurt, 20 til 60 sentímetrar á hæð. Blómin í ýmsum litum; rauð, bleik, hvít og fjólublá. Viðkvæm fyrir frosti. Þrífst ágætlega þótt hún fái aðeins sól hluta úr degi. Blómviljug og ilmar vel. Fagurfífill (Bellis perennis). 10 til 20 sentímetrar á hæð. Blómin fyllt, hvít, bleik eða rauð. Mjög harðgerður og á það til að sá sér. Fagurfífill er sagður standa fyrir sakleysi, ást og hvatningu. Rómverjar notuðu safann úr fagurfífli til að græða sár. Flauelsblóm (Tagetes patula var. nana). 20 til 35 sentímetrar á hæð. Stönglarnir greinóttir og blöðin skipt. Blómin gul eða rauðgul, einföld eða ofkrýnd. Falleg jurt sem er ættuð frá Mexíkó og þarf sól og skjól. Viðkvæm fyrir frosti. Blóm notuð í matarlit og til að lita textíl. Frúarhattur (Rudbeckia hirta). Hávaxið sumarblóm sem getur náð 60 Tími sumarblómanna Tóbakshorn – milljón bjöllur. Myndir / VH Blóðdropi Krists. Járnjurt. Daggarbrá. Dalía. Sólboði. Ljónsmunni. HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.