Bændablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Miðvikudagur 25. maí 2022 47 Sími 431 1201 I rafstodin@rafstodin.is Nýlagnir Endurnýjun lagna Netlagnir Ljósleiðaratengingar Öll almenn raflagnavinna Scanice er komið í samstarf við fyrirtækið Lark, einn stærsta framleiðanda á stöðuhýsum og öðru tilheyrandi. Við bjóðum upp á ýmsar útgáfur húsa til dæmis sérstakra húsa sem hönnuð eru með ferðaþjónustu í huga. Möguleikarnir eru margir og flestar óskir hægt að uppfylla. Heyrið í okkur! Scanice I n n f l u t t a f www.scan ice . i s +354-8985469 Vallargata 1, 580 Siglufjörður · s. 898 5469 · info@scaniceexport.com · www.scanice.is Við Norðurlandsveg - 560 VarmahlíðSími: 453 8888 - Opið virka daga kl. 9-17 HRINGGERÐI Fylgstu með okkur á velavalehf Dæmi um stærðir: Ø10m (10 grindur, 1 hlið og tengipinnar) Ø12m (12 grindur, 1 hlið og tengipinnar) Einnig er hægt að kaupa stakar grindur, hlið og tengipinna. Verið velkomin! ....nóg til af öllum grindum og hliðum! Vinsæluhringgerðinkomin í hús! Íslensk framleiðsla á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum 564-0013 | 865-1237 Síðastliðið sumar hófu nemendur Waldorfsskólans Sólstöfum að rækta iðnaðar­ hamp af miklum móð með það fyrir augum að nýta jurtina í allt frá tedrykkju til pítsuofns. Bændablaðið fjallaði um málið síðastliðið haust, er uppskeran átti sér stað, en nú hafa nemendur – undir vökulum augum félaganna Johans Andersen og Gunnars Wium – þurrkað þónokkurt magn hampsins, brotið hann niður í tunnur, hannað pitsuofninn og meira að segja svo lánsöm að vera komin með jógabolta í hendurnar sem mun þjóna þeim tilgangi að steypt verður utan um hann en ætlunin er að ofninn góði verði að hálfu leyti kúlulaga. Blaðamaður fór á stúfana og ræddi við Gunnar sem fræddi hann um stöðu mála. „Við erum alveg með 8 tíu lítra tunnur fullar af tréni, sem er það sem er inni í stilkunum. En við erum semsé með trénið sem við ætlum að nota sem bindingu í steypuna. Ætlum að blanda saman vatni, tréni og eftir því sem ég komst næst, kalki af einhverju tagi. Við heyrðum í Pálma Einars­ syni í Berufirði sem stendur í verkefni varðandi tilraunaræktun á iðnaðarhampi og úrvinnslu vara úr honum, en hann nýtur þess að búa nálægt á og fékk úr henni leir sem hann hefur verið að vinna með. Ég fór því upp í Steypustöð, fékk hjá þeim prufu af kalki og prófaði að blanda því og vatni saman við trénið mitt. Steypublöndunin er auðvitað á frumstigi enn sem komið er. Þetta sull lítur kannski svolítið gróft út, en trénið þarf ekkert að vera mikið minna til þess að þetta virki. Krakkarnir hafa verið að sitja við og brjóta þetta niður með mér en í raun þarf ég að fá ráðleggingar um hvernig er hægt að kurla þetta á fljótvirkari hátt. Miðað við magnið af hampi sem við höfum tekur það okkur krakkana alveg fimmtán ár að brjóta þetta niður,“ segir Gunni og hlær. „Trjákurlarar hafa komið upp í umræðunni jú, en helst þyrftum við að vera með aðgang að einhvers konar hakkara. Ég prófaði að setja trénið í kaffikvörn og það gekk stórfenglega. En gengur eðlilega einungis fyrir afar lítið magn í einu. Annars er kalk víst ekki besta lausnin fyrir íslenskar aðstæður. Það dregur hratt í sig vökva, losar sig við hann svipað hratt reyndar, en hérlendis gæti þetta farið illa vegna raka og frosts. Það þyrfti helst þá að þekja ofninn að utan með einhverju. Planið er, eins og sést á myndunum, að hlaða upp eitthvað beis, einhvern ramma úr trjádrumbum og fylla hann til dæmis með grjóti, steypa svo plötu úr venjulegri steypu. Þar ofan á kæmi svo ofninn, þegar við höfum náð að steypa hann og slá utan af honum. Maður verður bara að prófa sig áfram með áhugann og forvitnina að vopni!“ „Svo kom hellingur af blómum og blöðum með hampinum auðvitað,“ bætir Gunnar við, sem fólk er búið að vera að drekka í tei – það var til dæmis selt á jólabasarnum hjá okkur og var mjög vinsælt. Við höldum því ótrauð áfram, enda hefur hampurinn fest sig í sessi sem liður í starfi okkar hér í skólanum.“ Við kveðjum Gunna sem er bjartsýnn á framhaldið og hlökkum til frekari fregna af ferli pítsuofnsins. /SP Waldorfsskólinn Sólstöfum: Staða pítsuofnsins eftir hampuppskeru haustsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.