Bændablaðið - 25.05.2022, Page 47
Bændablaðið | Miðvikudagur 25. maí 2022 47
Sími 431 1201 I rafstodin@rafstodin.is
Nýlagnir
Endurnýjun lagna
Netlagnir
Ljósleiðaratengingar
Öll almenn
raflagnavinna
Scanice er komið í samstarf við fyrirtækið Lark, einn stærsta framleiðanda á stöðuhýsum og
öðru tilheyrandi. Við bjóðum upp á ýmsar útgáfur húsa til dæmis sérstakra húsa sem hönnuð
eru með ferðaþjónustu í huga. Möguleikarnir eru margir og flestar óskir hægt að uppfylla.
Heyrið í okkur!
Scanice
I n n f l u t t a f
www.scan ice . i s +354-8985469
Vallargata 1, 580 Siglufjörður · s. 898 5469 · info@scaniceexport.com · www.scanice.is
Við Norðurlandsveg - 560 VarmahlíðSími: 453 8888 - Opið virka daga kl. 9-17
HRINGGERÐI
Fylgstu með okkur á
velavalehf
Dæmi um stærðir:
Ø10m (10 grindur, 1 hlið og tengipinnar)
Ø12m (12 grindur, 1 hlið og tengipinnar)
Einnig er hægt að kaupa stakar grindur, hlið og tengipinna.
Verið velkomin!
....nóg til af öllum grindum og hliðum!
Vinsæluhringgerðinkomin í hús!
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
Síðastliðið sumar hófu
nemendur Waldorfsskólans
Sólstöfum að rækta iðnaðar
hamp af miklum móð með
það fyrir augum að nýta
jurtina í allt frá tedrykkju
til pítsuofns.
Bændablaðið fjallaði um
málið síðastliðið haust, er
uppskeran átti sér stað, en
nú hafa nemendur – undir
vökulum augum félaganna
Johans Andersen og Gunnars
Wium – þurrkað þónokkurt
magn hampsins, brotið
hann niður í tunnur, hannað
pitsuofninn og meira að
segja svo lánsöm að vera
komin með jógabolta
í hendurnar sem mun
þjóna þeim tilgangi að
steypt verður utan um
hann en ætlunin er að
ofninn góði verði að
hálfu leyti kúlulaga.
Blaðamaður fór á
stúfana og ræddi við
Gunnar sem fræddi hann
um stöðu mála.
„Við erum alveg með
8 tíu lítra tunnur fullar af
tréni, sem er það sem er
inni í stilkunum. En við erum semsé
með trénið sem við ætlum að nota
sem bindingu í steypuna. Ætlum að
blanda saman vatni, tréni og eftir
því sem ég komst næst, kalki af
einhverju tagi.
Við heyrðum í Pálma Einars
syni í Berufirði sem stendur í
verkefni varðandi tilraunaræktun á
iðnaðarhampi og úrvinnslu vara úr
honum, en hann nýtur þess að búa
nálægt á og fékk úr henni leir sem
hann hefur verið að vinna með.
Ég fór því upp í Steypustöð, fékk
hjá þeim prufu af kalki og prófaði
að blanda því og vatni saman við
trénið mitt. Steypublöndunin er
auðvitað á frumstigi enn sem komið
er. Þetta sull lítur kannski svolítið
gróft út, en trénið þarf ekkert að vera
mikið minna til þess að þetta virki.
Krakkarnir hafa verið að sitja við
og brjóta þetta niður með mér en
í raun þarf ég að fá ráðleggingar
um hvernig er hægt að kurla þetta á
fljótvirkari hátt. Miðað við magnið
af hampi sem við höfum tekur það
okkur krakkana alveg fimmtán ár að
brjóta þetta niður,“ segir Gunni og
hlær. „Trjákurlarar hafa komið upp
í umræðunni jú, en helst þyrftum
við að vera með aðgang að einhvers
konar hakkara.
Ég prófaði að setja trénið í
kaffikvörn og það gekk stórfenglega.
En gengur eðlilega einungis fyrir
afar lítið magn í einu.
Annars er kalk víst ekki besta
lausnin fyrir íslenskar aðstæður.
Það dregur hratt í sig vökva, losar
sig við hann svipað hratt reyndar, en
hérlendis gæti þetta farið illa vegna
raka og frosts. Það þyrfti helst þá að
þekja ofninn að utan með einhverju.
Planið er, eins og sést á
myndunum, að hlaða upp eitthvað
beis, einhvern ramma úr trjádrumbum
og fylla hann til dæmis með grjóti,
steypa svo plötu úr venjulegri steypu.
Þar ofan á kæmi svo ofninn, þegar
við höfum náð að steypa hann og slá
utan af honum.
Maður verður bara að prófa sig
áfram með áhugann og forvitnina
að vopni!“
„Svo kom hellingur af blómum og
blöðum með hampinum auðvitað,“
bætir Gunnar við, sem fólk er búið
að vera að drekka í tei – það var til
dæmis selt á jólabasarnum hjá okkur
og var mjög vinsælt. Við höldum
því ótrauð áfram, enda hefur
hampurinn fest sig í sessi sem
liður í starfi okkar hér í skólanum.“
Við kveðjum Gunna sem
er bjartsýnn á framhaldið og
hlökkum til frekari fregna af ferli
pítsuofnsins. /SP
Waldorfsskólinn Sólstöfum:
Staða pítsuofnsins eftir
hampuppskeru haustsins