Bændablaðið - 09.06.2022, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - 551-5464
www.wendel.is - wendel@wendel.is
ÖFLUG VERKFÆRI
FYRIR FAGMANNINN
_________________________
STEINSAGIR
KJARNABORVÉLAR
STEINSAGARBLÖÐ
KJARNABORAR
Steinsög AGP C16
Sögunardýpt 15 cm
Steinsög AGP C14
Sögunardýpt 12,5 cm
Steinsagarblöð í mörgum
stærðum og gerðum
Kjarnaborvél DM6P frá AGP
Borastærð 10 -162 mm
Kjarnaborvél DM12 frá AGP
Borastærð 10 - 350 mm
Kjarnaborar í
öllum stærðum
að slík skógrækt reiknast ekki inn
í loftslagsbókhald verkefnisins.
Við spurðum okkur þess vegna
að því hvað við gætum þá gert –
og niðurstaðan var sú að leggja
aðaláherslu á búrekstrarþáttinn,“
segir hún.
Rýnt í búrekstrarþættina
„Það er margt í verkefninu sem
hefur hvatt okkur til að rýna betur
í einstaka þætti búrekstrarins, til
dæmis varðandi búfjáráburðinn.
Áður en við byrjuðum í verkefninu
vorum við farin að huga að betri
nýtingu á búfjáráburðinum og
byrjuðum að fella hann niður – sem
hefur gefist mjög vel – og eftir að
við hófum þátttöku höfum við farið
enn betur ofan í áburðarmálin. Nú
látum við mæla allt í bak og fyrir;
innihald búfjáráburðarins, tökum
jarðvegssýni og fleira mætti nefna.
Þannig er okkar nálgun í
verkefninu; við horfum mest í það
hvernig hægt sé að bæta búreksturinn
með því til dæmis að stytta eldistíma
gripa, auka frjósemi og afurðir auk
þess að draga úr kostnaði. Þannig
hefur þátttakan í verkefninu orðið
til þess að maður er sífellt að hugsa
um hvernig megi gera betur,“
segir Ómar.
Hagkvæmni stæðuverkunar
Til að nefna fleiri hagnýt atriði sem
þau hafi nýtt sér til betri búrekstrar,
segir Ómar að þau hafi farið út í
stæðuverkun á heyi.
„Hagkvæmnin í því er augljós,
því sparnaður er bæði fjárhagslegur
og loftslagslegur í plastnotkuninni.
Við höfum líka farið að kaupa
aðföng inn í stærri skömmtum. Á
þessum sviðum hefur ráðgjöfin í
verkefninu nýst okkur mjög vel.“
Margrét telur að verkefnið
geti hjálpað til við að rétta af
hina ósanngjörnu umræðu um
loftslagsmál, sem nautgripabændur
þurfi gjarnan að sitja undir.
„Reyndar er staðan nú þannig
að ef fram heldur sem horfir verður
sjálfhætt í nautakjötsframleiðslu,
því staðan varðandi afurðaverð
til bænda er orðin grafalvarleg.
Það hefur engan veginn náð að
halda í við hinar gríðarmiklu
launa- og aðfangaverðshækkanir,“
segir Margrét.
Margrét Harpa og Ómar segjast hafa viljað hagræða eins og hægt væri og
í gegnum verkefnið var hægt að sækja sér ráðgjöf, sem hefur reynst vel.
Gjafarinn gefur tíu sinnum á sólarhring og kýrnar éta nánast alltaf upp allt
heyið. Heyið er saxað úr stæðunni sem gerir heyið mjög lystugt. Steinefnum
er svo bætt saman við og maís.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR
AF CAT RAFSTÖÐVUM
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Stöðvar í gám