Bændablaðið - 09.06.2022, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
Skemmtanir yfir sumartímann
hafa verið við lýði svo lengi sem
elstu menn muna.
Hlakkað hefur verið til
Sólstöðuhátíða um allt land þar sem
viðstaddir gæða sér á pönnukökum
og sólarkaffi, bíladagar á Akureyri
kitla aðra, Vopnaskak Vopnafjarðar
enn aðra og svo auðvitað hátíðir
verslunarmannahelgarinnar í
bland við allar þær tónlistarhátíðir,
hannyrðadaga, miðaldadaga og
götubitahátíðir sem fyrirfinnast –
svo eitthvað sé nefnt.
Nú þegar þetta er sett á blað
hefur fyrsta helgi júnímánaðar
þegar runnið upp og því ekki hægt
að stinga upp á skemmtunum yfir
hvítasunnuna. Einhverjir hafa
mögulega tekið þátt í Color Run
hlaupi Reykvíkinga, Bjórhátíðinni
á Hólum eða annars lags gleði
– á meðan aðrir hafa furðað sig
á hvers vegna aðstandendur
Sjómannadagsins hafi ekki blásið
í lúðra sína.
Samkvæmt vefsíðu Brim kemur
fram í tilkynningu stjórnarformanns
Sjómannadagsráðs, Aríels Péturs-
sonar, að þótt sjómannadagurinn
sé alla jafna haldinn fyrstu helgina
í júní, beri nú hvítasunnuna upp
á þá helgi í ár og því ákveðið að
hátíðahöld í tilefni hans verði aðra
helgina í júní eða þann tólfta.
Einnig kemur fram að í ár verði
öllu tjaldað til þann dag og þó áður
hafi sjómannadagurinn verið hluti af
Hátíð hafsins verði það ekki nú í ár.
En nú skulum við líta yfir það sem
helst er á döfinni í júnímánuði innan
hvers landshluta. Júlí og ágúst verða
svo teknir er þar að kemur. Svona
eftir bestu getu og með þakklæti
til þeirra er svara tölvupóstum
á markaðsstofum þeirra. Þar má
einnig finna frekari upplýsingar um
neðangreind hátíðahöld.
Annað sem gott er að hafa bak
við eyrað er Sumartónleikaröð Bláu
kirkjunnar á Seyðisfirði og svo
má enginn gleyma Ljósanóttum
Reykjanesbæjar sem eru dagana
1.- 4. september næstkomandi. /SP
Hátíðir sumarsins
HRINGINN Í KRINGUM LANDIÐ
Austurland & Austfirðir
12. júní Heimamyndadagar á Seyðisfirði.
15. júní Heimamyndadagur á Djúpavogi.
20.-23. júní Námskeiðið Útsaumur & útiveraHallormsstaðaskóla.
18.-25. júní Gönguvikan Á fætur í Fjarðabyggð, fjölskylduvænar
gönguferðir og afþreying.
22.-23. júní Smiðjuhátíð Tækniminjasafnsins á Seyðisfirði með
breyttu sniði: Sýning í gömlu vjelasmiðjunni
og víðar um skriðuföllin, boðið verður upp á ljósmyndanámskeið,
kótilettukvöld og tónleikar haldnir með Ragnheiði Gröndal og
Guðmundi Péturssyni.
25. júní Skógardagurinn mikli í Hallormsstaðarskógi.
Norðurland & Norðausturland
17.-20. júní Sólstöðuhátíðin á Kópaskeri lengist um einn dag í ár,
tónleikar með Bríeti þann 20. júní.
17.-20. júní Sólstöðuhátíð í Grímsey, dansleikur, sjávarréttakvöld
og varðeldur.
16.-18. júní Bíladagar á Akureyri. Bílasýning, drift, burn-out, sand-
og götuspyrna, eitthvað fyrir alla.
24.-26. júní Lummudagar! Notaleg fjölskylduhátíð í Skagafirði með
fjölbreyttri dagskrá.
24.-26. júní Bæjarhátíðin Hofsós heim. Varðeldur, sjósund & markaðir.
Reykjanes, Suðurland, Suðaustur & Suðvesturland
10.-12. júní Bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík.
10.-12. júní Upp í sveit – Sveitahátíð í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
10.-12. júní Hátíð hafsins í Reykjavík.
12. júní Sjómannadagurinn.
17. júní Þjóðhátíðardagur Íslendinga. Hátíðahöld víða um land.
15.-19. júní Víkingahátíðin í Hafnarfirði.
18.-21. júní Tónlistarhátíðin Secret Solstice í Reykjavík.
24.-26. júní Hvalfjarðardagar.
24.-26. júní Humarhátíð á Höfn í Hornafirði þar sem boðið er upp
á humarsúpu og fjölbreytta skemmtidagskrá. Sömu
helgi er í gangi flughátíð á Hornafjarðarflugvelli, sem fjölskylda Vignis
Þorbjörnssonar heldur honum til heiðurs, en hann sinnti flugþjónustu
Hornafjarðarflugvallar nánast allt sitt líf.
25. júní Jónsmessuhátíð Eyrarbakka. Varðeldur, markaðir o.fl.
30. júní-3. júlí Goslokahátíð Vestmannaeyja þar sem lokum eldgossins
á Heimaey 1973 er fagnað.
Vesturland, Norðvesturland & Vestfirðir
24.-26. júní Hamingjudagar á Hólmavík fyrir alla fjölskylduna.
24.-26. júní Brákarhátíð – Fjölskylduhátíð í Borgarnesi og svo má
ekki gleyma Landsmóti UMFÍ fyrir aldurshópinn 50+
24.-26. júní Danskir dagar á Stykkishólmi.
30. júní-2. júlí Markaðshelgin – Fjölskylduhátíð í Bolungarvík.
30. júní-3. júlí Írskir dagar – Bæjarhátíð á Akranesi.
Myndir / Ragnar Th / Höfuðborgarstofa.
Á döfinni í júní ...
Saga daganna:
Hátíð hafsins
Í Morgunblaðinu laugardaginn 5.
júní árið 1999 er fjallað um fyrsta
skiptið þegar Hátíð hafsins, er
haldin hátíðleg, helgina 4.-6. júní.
Var hugsunin á bak við þetta
samstarfsverkefni Sjómanna-
dagsráðs, Reykjavíkurborgar,
Reykjavíkurhafnar og Útvegs-
mannafélags Reykjavíkur, að
sameina skyldi hafnardaginn og
sjómannadaginn, minna með því
á mikilvægi sjómannastéttarinnar.
Var mikið um gleði þessa fyrstu hátíð,
haldið var Íslandsmót í handflökun,
listsýning, minningarguðsþjónusta,
skemmtisiglingar, auk þess sem
keppt var í dorgveiði barna.
Tókst þessi fyrsta Hátíð hafsins
með eindæmum vel og hefur gert,
allt fram til dagsins í dag. /SP
(Svo er nú sjálfsagt eitthvað sem
hefur ekki komist á lista, en hér
að ofanverðu er ýmislegt upptalið
sem má skemmta sér við.)