Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
Fátt er betra en djúsí kjúklinga-
vængir sem þarf ekki að hafa
mikið fyrir að ná af beininu.
Vængina er hægt að elda á marga
vegu, en þeir eiga til að þorna
svolítið. Til að forðast það er gott að
forsjóða þá. Úr soðinu er svo hægt að
búa til gljáa til að velta kjúklingnum
upp úr í lokin.
Í staðinn fyrir að nota venjulegan
pott er eitt heimilistæki sem vert
er að kynna. Nei, ekki Air-fryer,
loftsteikingarpottur, það þarf ekkert
að kynna þá. Við erum að tala um
þrýstingspott. Gamla góða hraðsuðu-
pottinn beint frá síðustu öld. Þeir
áttu reyndar til að springa á hellum
um allar sveitir í gamla daga en
nýtískuútgáfan gerir það ekki – eða
við vonum það.
Heiti potturinn
Í hraðsuðupottinn fara tveir, þrír
pakkar af vængjum. Skilja flata
hlutann og trommukjuðann að.
Klippa svo bláendann af þeim
flata. Allt fer hráefnið í pottinn, líka
endarnir því í þeim er allt smekkfullt
af kollageni sem umbreytt verður
í gelatín.
Endarnir fara í botninn ásamt
bolla af vatni og vængirnir fara út í
en ofan á gufusoðsgrind, allsberir og
ókryddaðir. Sjóða kjúklinginn í 2-3
mínútur undir þrýstingi.
Potturinn er svo látinn standa og
þrýstingurinn látinn hjaðna náttúrlega
í 5 mínútur. Allt tekur þetta þó tæpar
15 mínútur því þrýstingurinn þarf
jú að að byggjast upp. Ef enginn er
þrýstingspotturinn er kjúklingurinn
látinn malla í eins litlu vatni og hægt
er í 20 mínútur eða svo.
Grillið
Á meðan er grillið undirbúið; kol
sett í stromp eða gasgrillið hitað upp
í rúmlega miðlungshita.
Þegar kjúklingurinn er búinn að
baða sig í þrýstingspottinum mun
hann ekki líta vel út. Allur fölur og
bara frekar óaðlaðandi en tilbúinn
að fá á sig krydd.
Ekki vera hrædd við smá MSG,
það gerir mat ljúffengan og hefur
engan skaðað – held ég.
Kjúklingurinn er svo gott sem
fulleldaður og þarf því bara að
dökkna smá. Kannski 10 mínútur
á grillinu eða svo. Snúa nokkrum
sinnum svo ekkert brenni.
Á meðan kjúklingurinn fær á sig
lit er vökvinn sem eftir er í pottinum,
ásamt vængjaendunum, settur í stóra
pönnu og soðinn niður þangað til
um desilítri verður eftir. Þegar allt
er að verða tilbúið eru endarnir
veiddir upp úr soðinu og vökvinn
kryddaður með nokkrum klípum
af sömu kryddblöndu og vængirnir
fengu ásamt vænum slurk af heitri
sósu (hot sauce).
Smjörklípa, kannski matskeið
eða svo er hrærð saman við sósuna í
lokin. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn
er honum velt upp úr sósunni og þá
er hann tilbúinn.
Hægt að breyta í BBQ vængi
með því að setja slurk af grillsósu
(barbecue) út í eða hafa soðið bara
léttkryddað fyrir þá sem slíkt vilja.
Þeim sem finnst gráðostur ómissandi
geta stappað smá af honum í
mæjónes og sýrðan rjóma en það
þarf ekki því þetta er djúsí stöff.
Brokkólírunnar
Það er mjög fullorðins að fá sér
brokkólí með vængjunum. Það er
líka svakalega gott, er súpereinfalt
og tekur bara nokkrar mínútur.
Brokkólíið er skorið í runna og
smurt bragðlítilli olíu. Brokkólíið
fer á grillið hjá kjúklingnum til að
fá á sig smá lit.
Næst er að setja smjörklípu í
pönnu og fínt saxaðan hvítlauk út í.
Þegar allt ilmar eins og hvítlaukur
eftir 30 sekúndur eða svo er
brokkólíinu bætt út í og blandað við
hvítlaukssmjörið.
Þá er að sulla smá af kjúklinga-
soðinu á pönnuna og setja lok eða
álpappír yfir.
Ef einhver er vegan í kjúklinga-
vængjaveislunni er hægt að nota
kranavatn. Gufusjóða þannig
brokkólíið í mínútu eða tvær, þá er
það tilbúið.
Hægt er að skipta brokkólíinu út
fyrir blómkál, grænkál eða bara hvað
sem hugurinn girnist.
Þunnar ræmur af gulrót eða
kannski sellerí fyrir hreinstefnufólk.
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Haukur og Herdís keyptu Selja-
tungu, þá í Gaulverjabæjarhreppi,
árið 1997 og fluttu þangað með
þrjá syni sína.
Þau hafa síðan þá bætt húsakost
og aukið framleiðslu og ræktun til
muna.
Býli: Seljatunga.
Staðsett í sveit: Flóahreppur í
Árnessýslu.
Ábúendur: Haukur Sigurjónsson
og Herdís E. Gústafsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Burtfluttir þrír synir, tvær tengdadætur
og eitt barnabarn, hundurinn Svali og
kettirnir Gosi og Katti.
Stærð jarðar? Um 200 ha.
Gerð bús? Mjólkur- og kjöt-
framleiðsla.
Fjöldi búfjár og tegundir? Um
200 nautgripir á öllum aldri, 14 kindur
og tvö hross.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Dagarnir byrja á mjöltum og gjöfum
og svo eru öll þau störf sem til falla
hverju sinni.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Alltaf gaman í heyskap
í góðri tíð en slítandi og leiðinlegt
í vætutíð.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir
fimm ár? Aðstaðan býður upp á
meiri framleiðslu og vonandi verður
hægt að auka hana.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í framleiðslu íslenskra búvara?
Hreinleiki og góð markaðssetning.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk og ostur.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Heimareykt hangikjöt.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Það var á öðru árinu
okkar í Seljatungu.
Þá kveiktum við í sinu eins og
tíðkaðist víða í þá daga og eldurinn
fór úr böndunum.
Allt fór þó vel að lokum hjá
okkur, en það var ekki brennd sina
hér aftur.
Hálfgrillaðir kjúklingavængir
Seljatunga
Haraldur Jónasson
haradlur@gmail.com
Síðustu aldar hraðsuðupottur.
Beint af grillinu. Myndir / Hari
1 tsk. salt
1 tsk. pipar
1 tsk. paprikuduft
1 tsk. þurkuð steinselja
½ tsk. origano
½ tsk. Aromat (salt-MSG)
½ tsk. chiliduft
½ tsk. laukduft
¼ tsk. hvítlauksduft
Kryddblanda