Bændablaðið - 09.06.2022, Blaðsíða 45

Bændablaðið - 09.06.2022, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is FRISTADS er ný vinnufatalína hjá Dynjanda. Fallegur og vandaður fatnaður sem hentar íslenskum aðstæðum afar vel. Kíktu í vefverslun okkar dynjandi.is 匀欀漀爀爀椀 攀栀昀 ∠ 䈀氀搀猀栀昀椀 ㄀㈀ ∠ ㄀㄀  刀瘀欀 ∠ 㔀㜀㜀ⴀ㄀㔀㄀㔀 ∠ 眀眀眀⸀猀欀漀爀爀椀⸀椀猀 刀愀昀最攀礀洀椀爀椀渀渀  搀爀琀琀愀爀瘀氀椀渀渀椀 漀爀椀渀渀 最愀洀愀氀氀 漀最 氀切椀渀渀 㼀 嘀攀爀琀甀 琀椀氀戀切椀渀  瘀漀爀瘀攀爀欀椀渀 洀攀 刀䄀䘀䜀䔀夀䴀䄀刀 Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 STÝRISENDAR gerðir dráttarvéla HECHT COCIS Rafmagnsbifhjól Drægni 60 - 120 km. Götuskráð. Verð 249.000 kr. Helluhraun 4, Hafnarfirði sími 565 2727 & 892 7502 www.rag.is HECHT 2636 Vélhjólbörur Verð 405.480 með vsk HECHT 59399 Rafmagnsfjórhjólin komin aftur!Gnúpverjahreppur: Hreppasvipan lögð á hilluna – Elsti verðlaunagripur hestaíþróttarinnar Fyrstu heimildir um gæðinga­ keppni í hestaíþróttum er frá keppni í Gnúpverjahreppi í ágúst 1944, en keppnin fór fram við Sandlækjarós. Á þessum kappreiðum var veittur sérstakur verðlaunagripur, Hreppasvipan, en heimildir herma að þetta sé elsti verðlaunagripur sem veittur er á hestaþingum hérlendis. Þegar veðmálin lögðust af voru til hestaáhugamenn sem þóttu mótin fremur einhæf og ekki eins skemmtileg. Sveinn Sveinsson á Hrafnkelsstöðum og Einar Gestsson á Hæli vildu gera tilraun til að glæða áhuga á hestaíþróttinni og ákváðu að halda hestaþing við Sandlækjarós þar sem í fyrsta skipti var boðið upp á grein sem átti að sýna frekar gangfegurð og gæðingsfas heldur en spretthraða. Þarna var lagður grunnurinn að gæðingakeppni eins og við þekkjum hana í dag. Hreppasvipan var veitt í fyrsta skiptið á þessu móti og er svipan farandgripur. Hugmyndin að þessum grip er komin frá Eiríki Einarssyni frá Hæli og um 70 öðrum brottfluttum Hreppamönnum. Þessir gömlu hestastrákar fengu veður af því að stofna ætti hestamannafélag í Hreppnum og tóku sig til og létu smíða veglega svipu. Svipan var veitt á þessu móti en ári síðar var stofnað hestamannafélag Hreppanna. Svipan er silfurbúin og var nafninu Hreppasvipan smellt á stéttina í gullstöfum. Svipunni fylgdi bréf þar sem útlistaðar voru reglur varðandi gripinn og hvernig skyldi standa að vali á handhafa hennar. Reglurnar voru mjög rúmar en svipuna átti að veita þeim hesti sem talið var, að mati dómnefndar, búa yfir mestu gæðingskostunum. Allar götur síðan hefur svipan verið veitt hæstdæmda alhliða gæðingi félagsmanns. Gulltoppur hinn vakri Fyrsti handhafi hreppasvipunnar var Gulltoppur Jóns Ólafssonar í Eystra-Geldingaholti, en hann hlaut einróma lof dómara, sem voru þeir Gunnar Bjarnason ráðunautur, Ásgeir Jónsson frá Gottorp og Björn Gunnlaugsson, formaður Fáks. Í bókinni Fákur – Þættir um hesta, menn og kappreiðar, sem kom út árið 1949, er sagt frá þessum kappreiðum og er Gulltoppi þar lýst: „Vakur í bezta lagi, hefir fjölbreytni í gangi og gangmýkt, prýðilegt fjör, gæfa lund, og virðist vera mjög vel taminn. Allur er hann hinn reiðhestslegasti.“ Til gamans má geta að þar er einnig tekið fram að Gulltoppur var sá eini í hópi skeiðhesta sem rann sprettfærið á kostum og að veitt voru 150 kr. í verðlaunafé. Gulltoppur átti eftir að hljóta þann heiður að verða handhafi Hreppasvipunnar alls sex sinnum en þar á eftir var Blær Hermanns í Langholtskoti handhafi hennar fjórum sinnum og Þytur Sigfúsar í Vestra-Geldingaholti þrisvar sinnum. Ári eftir að hestamannafélag Hreppanna var stofnað bættust Skeiðamenn í hópinn og var nafni félagsins breytt í hestamannafélagið Smára. Síðasta sumar, 2021, samþykktu Smáramenn að sameinast hestamannafélögunum Loga í Biskupstungum og Trausta í Laugardal í eitt félag, sem nú hefur hlotið nafnið Jökull. Ákveðið var að hætta að veita svipuna og verður hún geymd til sýnis hjá hestamannafélaginu. Síðasti hand hafi svipunnar er því Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk, en knapi á honum var Kristín Magnúsdóttir. /HF Síðasti handhafi svipunnar er Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk, en knapi á honum var Kristín Magnúsdóttir. Mynd / Bára Másdóttir Saga verðlaunagripsins nær aftur til ársins 1944 þegar fyrsta gæðingakeppni var haldin. Mynd / Aðsend LÍF&STARF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.