Bændablaðið - 09.06.2022, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
Auglýst hefur verið eftir 15
naut gripabændum til viðbótar
til þátttöku í verkefninu Lofts
lagsvænn landbúnaður. Tvö ár eru
liðin síðan verkefnið var sett af stað
en það er hluti af aðgerðaráætlun
stjórnvalda í loftslagsmálum.
Svo virðist vera sem stjórnvöld
ætli að bæta verulega í stuðning við
verkefnið í náinni framtíð. Svandís
Svavarsdóttir mat væla ráðherra
talaði um það við setningu síðasta
Búnaðarþings að hún sæi það fyrir
sér að verkefnið muni skila auknum
árangri á komandi árum þannig að
hægt sé að víkka það út til svo miklu
fleiri bænda.
Verkefnið gengur í grund
vallaratriðum út á að bændurnir geri
aðgerðaráætlun fyrir búin um að
draga úr losun gróðurhúsalofttegunda
og auka kolefnisbindingu.
Nautgripirnir alls um 540
„Við fórum inn í verkefnið með
blandað bú,“ segir Margrét Harpa
Guðsteinsdóttir, sem býr ásamt
Ómari Helgasyni í Lambhaga
á Rangárvöllum.
Þar reka þau ásamt öðrum
nautgripa og sauðfjárbú. Þau
segja að aðalstarfið sé þó mjólkur
og nautakjötsframleiðsla og þeirra
nálgun á markmið verkefnisins
sé fyrst og fremst í gegnum þann
hluta búskaparins. Þau eru með 110
mjólkurkýr og 70 holdakýr – en alls
eru nautgripirnir á búinu um 540.
Svo eru þau með 90 kindur.
Ræktað land er um 300 hektarar,
bæði slegið og beitt. Jörðin er um
450 hektarar að heildarstærð.
Um 60 hektara landgræðsluland
eru þau með á Geitasandi í landi
Landgræðslunnar.
Loftslagsnálgunin er sú
sem koma skal
„Við komum inn í byrjun árs 2021
og það má segja að ástæðan fyrir
því að við sóttum um hafi verið
sú að við teljum að þessi nálgun
sé sú sem koma skal. Þetta er líka
spurning um ímyndina – það er þörf
á því að auka velvild almennings í
garð landbúnaðarins á Íslandi og að
við sýnum að við séum meðvituð
um þessi mál eins og hver annar
Íslendingur,“ segir Margrét Harpa.
Ómar bætir við að einnig hafi
verið sú hugsun að athuga hvort það
væri eitthvað í búrekstrinum sem
mætti endurskoða til framfara.
„Maður vill auðvitað hagræða
eins og hægt er og í gegnum
verkefnið var hægt að sækja sér
ráðgjöf, sem hefur reynst okkur vel.“
Engir umhverfissóðar
Þau segjast síður en svo þurfa að
gangast við því að vera einhvers
konar umhverfissóðar – fjölskyldan
hafi stundað landgræðslu af krafti og
fékk landgræðsluverðlaun árið 2020.
„En það er eitt og annað í
umræðunni og í verkefninu sem segja
má að orki tvímælis,“ segir Ómar.
„Þarna er til dæmis mikil áhersla
á skógrækt en það hentar okkur alls
ekki og að mínu mati ekki á okkar
landsvæði hér á Suðurlandi. Þetta ætti
að taka frá sem landbúnaðarland fyrir
búfé og akuryrkju – en það vantar
alveg skipulagningu og flokkun
á því sem er hugsað til notkunar
fyrir landbúnað í framtíðinni. Þú
ræktar til dæmis ekki land svo glatt
á svæðum þar sem skógrækt hefur
verið stunduð,“ bætir hann við.
Margrét Harpa segir að þetta
snúist allt einmitt um þetta, hvort
við ætlum að vera með eigin
matvælaframleiðslu á Íslandi.
„Ef við ætlum að gera það,
verðum við að vernda svæðin sem
eru hentug til þess.“
Nóg er til af landi á Íslandi sem
hentar ekki til akuryrkju og er þá
kjörið til skógræktar, eins og til
dæmis Hekluskógaverkefnið í
Rangárvallasýslu.
Eitt og annað hægt að bæta
í verkefninu
Margrét Harpa tekur einnig undir
með Ómari að það sé svigrúm til
að bæta eitt og annað varðandi
útfærslu verkefnisins. Þau hafi talið,
þegar þau fóru inn í verkefnið, að
þeirra framlag til landgræðslu
myndi telja talsvert varðandi þann
hluta verkefnisins sem snýr að
kolefnisbindingu.
„En svo kom í ljós að grasræktun
okkar á söndunum hérna fyrir ofan,
í landi Landgræðslunnar telst ekki
til kolefnisbindingar nema að mjög
litlu leyti. Landið okkar er líka
mjög vel gróið og engin dauð svæði
í því sem hefði verið hægt að nýta
til skógræktar. Við skoðuðum því
að fara í skjólbeltagerð eða rækta
skógarlundi, en þá kemur það í ljós
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir og Ómar Helgason eru með 110 mjólkurkýr og 70 holdakýr í Lambhaga en alls eru nautgripirnir á búinu um 540. Myndir / smh
Fjósið er að sögn Lambhagabænda dæmigert tveggja róbóta fjós. Það var flutt inn í það árið 2019. Grunnflöturinn
er 1.700 fermetrar og þau gætu verið með 120 kýr, en eru nú með 110. Þau eru með „kanalkerfi“ í haughúsinu og
gjafakerfi þeirra gerir það að verkum að það er nánast fullkomin nýting á fóðrinu. Með flutningunum yfir í nýtt fjós
jókst nyt kúnna mjög mikið. Margrét Harpa og Ómar eru meðvituð um að minnka metangasmyndunina í haughúsum,
með haugmeltu og því að hafa skítinn á hreyfingu. Mynd / Lambhagi
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður hýsir bændur með mismunandi möguleika til árangurs:
Lambhagabændur rýna í
einstaka þætti búrekstrarins
– Fengu landgræðsluverðlaun 2020 en þeirra landgræðsla telur lítið inn í loftslagsbókhald verkefnisins
LANDBÚNAÐUR&MARKAÐSMÁL