Bændablaðið - 09.06.2022, Qupperneq 30

Bændablaðið - 09.06.2022, Qupperneq 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 Auglýst hefur verið eftir 15 naut gripabændum til viðbótar til þátttöku í verkefninu Lofts­ lagsvænn landbúnaður. Tvö ár eru liðin síðan verkefnið var sett af stað en það er hluti af aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Svo virðist vera sem stjórnvöld ætli að bæta verulega í stuðning við verkefnið í náinni framtíð. Svandís Svavarsdóttir mat væla ráðherra talaði um það við setningu síðasta Búnaðarþings að hún sæi það fyrir sér að verkefnið muni skila auknum árangri á komandi árum þannig að hægt sé að víkka það út til svo miklu fleiri bænda. Verkefnið gengur í grund­ vallaratriðum út á að bændurnir geri aðgerðaráætlun fyrir búin um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka kolefnisbindingu. Nautgripirnir alls um 540 „Við fórum inn í verkefnið með blandað bú,“ segir Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, sem býr ásamt Ómari Helgasyni í Lambhaga á Rangárvöllum. Þar reka þau ásamt öðrum nautgripa­ og sauðfjárbú. Þau segja að aðalstarfið sé þó mjólkur­ og nautakjötsframleiðsla og þeirra nálgun á markmið verkefnisins sé fyrst og fremst í gegnum þann hluta búskaparins. Þau eru með 110 mjólkurkýr og 70 holdakýr – en alls eru nautgripirnir á búinu um 540. Svo eru þau með 90 kindur. Ræktað land er um 300 hektarar, bæði slegið og beitt. Jörðin er um 450 hektarar að heildarstærð. Um 60 hektara landgræðsluland eru þau með á Geitasandi í landi Landgræðslunnar. Loftslagsnálgunin er sú sem koma skal „Við komum inn í byrjun árs 2021 og það má segja að ástæðan fyrir því að við sóttum um hafi verið sú að við teljum að þessi nálgun sé sú sem koma skal. Þetta er líka spurning um ímyndina – það er þörf á því að auka velvild almennings í garð landbúnaðarins á Íslandi og að við sýnum að við séum meðvituð um þessi mál eins og hver annar Íslendingur,“ segir Margrét Harpa. Ómar bætir við að einnig hafi verið sú hugsun að athuga hvort það væri eitthvað í búrekstrinum sem mætti endurskoða til framfara. „Maður vill auðvitað hagræða eins og hægt er og í gegnum verkefnið var hægt að sækja sér ráðgjöf, sem hefur reynst okkur vel.“ Engir umhverfissóðar Þau segjast síður en svo þurfa að gangast við því að vera einhvers konar umhverfissóðar – fjölskyldan hafi stundað landgræðslu af krafti og fékk landgræðsluverðlaun árið 2020. „En það er eitt og annað í umræðunni og í verkefninu sem segja má að orki tvímælis,“ segir Ómar. „Þarna er til dæmis mikil áhersla á skógrækt en það hentar okkur alls ekki og að mínu mati ekki á okkar landsvæði hér á Suðurlandi. Þetta ætti að taka frá sem landbúnaðarland fyrir búfé og akuryrkju – en það vantar alveg skipulagningu og flokkun á því sem er hugsað til notkunar fyrir landbúnað í framtíðinni. Þú ræktar til dæmis ekki land svo glatt á svæðum þar sem skógrækt hefur verið stunduð,“ bætir hann við. Margrét Harpa segir að þetta snúist allt einmitt um þetta, hvort við ætlum að vera með eigin matvælaframleiðslu á Íslandi. „Ef við ætlum að gera það, verðum við að vernda svæðin sem eru hentug til þess.“ Nóg er til af landi á Íslandi sem hentar ekki til akuryrkju og er þá kjörið til skógræktar, eins og til dæmis Hekluskógaverkefnið í Rangárvallasýslu. Eitt og annað hægt að bæta í verkefninu Margrét Harpa tekur einnig undir með Ómari að það sé svigrúm til að bæta eitt og annað varðandi útfærslu verkefnisins. Þau hafi talið, þegar þau fóru inn í verkefnið, að þeirra framlag til landgræðslu myndi telja talsvert varðandi þann hluta verkefnisins sem snýr að kolefnisbindingu. „En svo kom í ljós að grasræktun okkar á söndunum hérna fyrir ofan, í landi Landgræðslunnar telst ekki til kolefnisbindingar nema að mjög litlu leyti. Landið okkar er líka mjög vel gróið og engin dauð svæði í því sem hefði verið hægt að nýta til skógræktar. Við skoðuðum því að fara í skjólbeltagerð eða rækta skógarlundi, en þá kemur það í ljós Margrét Harpa Guðsteinsdóttir og Ómar Helgason eru með 110 mjólkurkýr og 70 holdakýr í Lambhaga en alls eru nautgripirnir á búinu um 540. Myndir / smh Fjósið er að sögn Lambhagabænda dæmigert tveggja róbóta fjós. Það var flutt inn í það árið 2019. Grunnflöturinn er 1.700 fermetrar og þau gætu verið með 120 kýr, en eru nú með 110. Þau eru með „kanalkerfi“ í haughúsinu og gjafakerfi þeirra gerir það að verkum að það er nánast fullkomin nýting á fóðrinu. Með flutningunum yfir í nýtt fjós jókst nyt kúnna mjög mikið. Margrét Harpa og Ómar eru meðvituð um að minnka metangasmyndunina í haughúsum, með haugmeltu og því að hafa skítinn á hreyfingu. Mynd / Lambhagi Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is Verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður hýsir bændur með mismunandi möguleika til árangurs: Lambhagabændur rýna í einstaka þætti búrekstrarins – Fengu landgræðsluverðlaun 2020 en þeirra landgræðsla telur lítið inn í loftslagsbókhald verkefnisins LANDBÚNAÐUR&MARKAÐSMÁL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.