Bændablaðið - 09.06.2022, Blaðsíða 25

Bændablaðið - 09.06.2022, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 Gróffóðurkeppni Yara 2022 Kynning á keppendum 1. Á Völlum í Múlaþingi. 2. Jörðin er nokkuð stór. Mikið fjalllendi, láglendi nýtt sem beitiland, til heyskapar og undir skógrækt. 3. Mjólkurkýr og uppeldi, hestar. 4. Helsta áskorunin er að undirbúa túnið, finna réttan áburð og að lokum framleiða gott fóður. 5. Vallarfoxgras og fjölært rýgresi. 6. Kalk frá Sláturfélagi Suðurlands, 2 tonn/ha. 7. Landbúnaður, hestar, lestur og að ferðast. 1. Hranastaðir eru í Eyjafjarðarsveit. 2. Um 250 ha, þar af ræktaðir 110 ha. 3. Kúa- og hænsnabú. 4. Mesta áskorunin er að ná að slá á hárréttum sláttutíma og fá gott veður í kjölfarið. 5. Grasfræblanda 1 frá Bústólpa. 6. Nei. 7. Ferðalög og útivist, blöndum því oft saman og förum í skemmtilegar gönguferðir í góðum félagsskap. Ellen Thamdrup og Sæmundur Guðmundsson Gíslastaðir Arnar Árnason og Ásta Arnbjörg Pétursdóttir Hranastaðir Sláturfélag Suðurlands svf. | Fosshálsi 1, Reykjavík - 575-6000 | yara@yara.is | www.yara.is 1. Hvar er bærinn? 2. Stærð jarðar og þar af ræktað land? 3. Gerð bús? 4. Hvað telur þú vera stærstu áskorunina í keppninni? 5. Hvert er sáðgresi keppnisspildunnar? 6. Hefur keppnisspildan verið kölkuð? Ef svo er þá með hvaða kalkgjafa og hve mikið? 7. Áhugamál? Spurningalistinn Hranastaðir Gíslastaðir Saga daganna: Sautjándi júní Í íslensku almanaki kemur fram, að við stofnun Íslenska lýðveld- isins, árið 1944, hafi 17. júní verið valinn sem þjóðhátíðardagur Íslendinga til heiðurs og minningar um framlag Jóns Sigurðssonar forseta (f. 17. 1811–d. 07.12. 1879) í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga frá Dönum. Þennan dag er mikið um hátíðahöld víða um land og gjarnan eru sungnir ættjarðarsöngvarnir fallegu, Hver á sér fegra föðurland og Lands míns föður. Í blaðinu Ísafold árið 1876 eru auglýst „hátíðahöld og skemmtanir vegna sumardagsins fyrsta, þar sem Jóni Sigurðssyni er fagnað“ og svo næst, tíu árum síðar kemur fram að Þorlákur Ó. Johnson, kaupmaður í Reykjavík, hafi, upp á sitt einsdæmi, staðið fyrir hátíðinni sem slíkri. Aðrar heimildir kynna daginn til leiks árið 1907, en þá hafi helmingur bæjarbúa í Reykjavík, um fimm þúsund manns, mætt á Austurvöll, lúðrar voru blásnir og ræður haldnar, allt til heiðurs fæðingardags forsetans fyrrverandi, Jóns Sigurðssonar. Nokkrum árum síðar, 1911 var svo haldin sérstök hátíðarguðsþjónusta í Dómkirkjunni og að henni lokinni var farið í skrúðgöngu að leiði Jóns þar sem blómsveigur var lagður. Ungmennasamband Íslands hélt fyrsta allsherjar íþróttamótið á Melavellinum, tónlistaratriði til skemmtunar og rétt er að nefna að þennan dag var Háskóli Íslands settur, en við það tilefni var hinum bláhvíta fána flaggað af svölum Alþingishússins, sem var eitt hitamál þjóðarinnar á þessum tíma – staða íslenska fánans. Vestfirðir, Akureyri og svo Íslendingafélagið í Winnipeg héldu þennan dag hátíðlegan samhliða Reykvíkingum og var í kjölfarið farið að tala um þennan dag sem þjóðhátíðardag Íslendinga Kona í gervi fjallkonunnar – sem tákngervingur Íslands – kom svo fyrst fram á Íslendingadeginum í Winnipeg í Kanada 1924 og eftir lýðveldisstofnun á Íslandi 1944 hefur kona í skautbúningi jafnan flutt ávarp fjallkonunnar við hátíðahöld 17. júní. Á millistríðsárunum var þó 1. desember einnig talinn þjóðhátíðar- dagur, en Ísland varð fullvalda ríki 1. des. árið 1918. Fullveldisdeginum var þó frekar fagnað innandyra, enda ekki eins hægt um vik að efla til skrúðgöngu og þurfa að ösla krap upp að ökklum. Þar sem hátíðahöldin urðu veigameiri er árstíminn var annar, varð sú þróun að 17. júní hafði betur sem dagur þjóðhátíðar þótt 1. desember hefði og hafi enn mikla þýðingu í hjörtum okkar Íslendinga. Árið 1945 lýsti svo Ólafur Thors, þáverandi forsætisráðherra, því yfir að 17. júní væri formlega þjóðhátíðardagur landsins. Nú, þegar rúm öld er liðin frá fyrstu hátíðahöldum, hefur yfirbragð þeirra eðlilega breyst nokkuð í takt við tímann. Enn eru skrúðgöngur við lýði, lúðrasveitir blása og ávarp fjallkonunnar alltaf jafn hátíðlegt, en nú er meira um gasblöðrur, leiktæki og skemmtidagskrá fyrir börn. /SP Myndir frá sumardeginum fyrsta í Reykjavíkurborg, fánum prýdd skrúðganga í lögreglufylgd, Lúðrasveit Reykjavíkur og fjallkonan, búin skautbúningi, einum helsta sparibúningi íslenskra kvenna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.