Bændablaðið - 09.06.2022, Side 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
Gróffóðurkeppni Yara 2022
Kynning á keppendum
1. Á Völlum í Múlaþingi.
2. Jörðin er nokkuð stór. Mikið fjalllendi,
láglendi nýtt sem beitiland, til heyskapar
og undir skógrækt.
3. Mjólkurkýr og uppeldi, hestar.
4. Helsta áskorunin er að undirbúa túnið,
finna réttan áburð og að lokum framleiða
gott fóður.
5. Vallarfoxgras og fjölært rýgresi.
6. Kalk frá Sláturfélagi Suðurlands,
2 tonn/ha.
7. Landbúnaður, hestar, lestur og að ferðast.
1. Hranastaðir eru í Eyjafjarðarsveit.
2. Um 250 ha, þar af ræktaðir 110 ha.
3. Kúa- og hænsnabú.
4. Mesta áskorunin er að ná að slá á
hárréttum sláttutíma og fá gott veður
í kjölfarið.
5. Grasfræblanda 1 frá Bústólpa.
6. Nei.
7. Ferðalög og útivist, blöndum því
oft saman og förum í skemmtilegar
gönguferðir í góðum félagsskap.
Ellen Thamdrup og Sæmundur Guðmundsson
Gíslastaðir
Arnar Árnason og Ásta Arnbjörg Pétursdóttir
Hranastaðir
Sláturfélag Suðurlands svf. | Fosshálsi 1, Reykjavík - 575-6000 | yara@yara.is | www.yara.is
1. Hvar er bærinn?
2. Stærð jarðar og þar af ræktað land?
3. Gerð bús?
4. Hvað telur þú vera stærstu áskorunina í
keppninni?
5. Hvert er sáðgresi keppnisspildunnar?
6. Hefur keppnisspildan verið kölkuð? Ef svo
er þá með hvaða kalkgjafa og hve mikið?
7. Áhugamál?
Spurningalistinn
Hranastaðir
Gíslastaðir
Saga daganna:
Sautjándi júní
Í íslensku almanaki kemur fram,
að við stofnun Íslenska lýðveld-
isins, árið 1944, hafi 17. júní verið
valinn sem þjóðhátíðardagur
Íslendinga til heiðurs og minningar
um framlag Jóns Sigurðssonar
forseta (f. 17. 1811–d. 07.12. 1879)
í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga frá
Dönum.
Þennan dag er mikið um hátíðahöld
víða um land og gjarnan eru sungnir
ættjarðarsöngvarnir fallegu, Hver á sér
fegra föðurland og Lands míns föður.
Í blaðinu Ísafold árið 1876 eru
auglýst „hátíðahöld og skemmtanir
vegna sumardagsins fyrsta, þar sem
Jóni Sigurðssyni er fagnað“ og svo
næst, tíu árum síðar kemur fram að
Þorlákur Ó. Johnson, kaupmaður í
Reykjavík, hafi, upp á sitt einsdæmi,
staðið fyrir hátíðinni sem slíkri.
Aðrar heimildir kynna daginn til
leiks árið 1907, en þá hafi helmingur
bæjarbúa í Reykjavík, um fimm
þúsund manns, mætt á Austurvöll,
lúðrar voru blásnir og ræður haldnar,
allt til heiðurs fæðingardags forsetans
fyrrverandi, Jóns Sigurðssonar.
Nokkrum árum síðar, 1911 var svo
haldin sérstök hátíðarguðsþjónusta í
Dómkirkjunni og að henni lokinni
var farið í skrúðgöngu að leiði Jóns
þar sem blómsveigur var lagður.
Ungmennasamband Íslands hélt fyrsta
allsherjar íþróttamótið á Melavellinum,
tónlistaratriði til skemmtunar og rétt er
að nefna að þennan dag var Háskóli
Íslands settur, en við það tilefni var
hinum bláhvíta fána flaggað af svölum
Alþingishússins, sem var eitt hitamál
þjóðarinnar á þessum tíma – staða
íslenska fánans.
Vestfirðir, Akureyri og svo
Íslendingafélagið í Winnipeg héldu
þennan dag hátíðlegan samhliða
Reykvíkingum og var í kjölfarið
farið að tala um þennan dag sem
þjóðhátíðardag Íslendinga
Kona í gervi fjallkonunnar – sem
tákngervingur Íslands – kom svo
fyrst fram á Íslendingadeginum í
Winnipeg í Kanada 1924 og eftir
lýðveldisstofnun á Íslandi 1944 hefur
kona í skautbúningi jafnan flutt ávarp
fjallkonunnar við hátíðahöld 17. júní.
Á millistríðsárunum var þó 1.
desember einnig talinn þjóðhátíðar-
dagur, en Ísland varð fullvalda ríki
1. des. árið 1918. Fullveldisdeginum
var þó frekar fagnað innandyra, enda
ekki eins hægt um vik að efla til
skrúðgöngu og þurfa að ösla krap upp
að ökklum. Þar sem hátíðahöldin urðu
veigameiri er árstíminn var annar, varð
sú þróun að 17. júní hafði betur sem
dagur þjóðhátíðar þótt 1. desember
hefði og hafi enn mikla þýðingu í
hjörtum okkar Íslendinga.
Árið 1945 lýsti svo Ólafur
Thors, þáverandi forsætisráðherra,
því yfir að 17. júní væri formlega
þjóðhátíðardagur landsins.
Nú, þegar rúm öld er liðin frá
fyrstu hátíðahöldum, hefur yfirbragð
þeirra eðlilega breyst nokkuð í takt
við tímann. Enn eru skrúðgöngur
við lýði, lúðrasveitir blása og ávarp
fjallkonunnar alltaf jafn hátíðlegt, en
nú er meira um gasblöðrur, leiktæki
og skemmtidagskrá fyrir börn. /SP
Myndir frá sumardeginum fyrsta í Reykjavíkurborg, fánum prýdd skrúðganga í lögreglufylgd, Lúðrasveit Reykjavíkur og fjallkonan, búin skautbúningi, einum helsta sparibúningi íslenskra kvenna.