Bændablaðið - 09.06.2022, Page 56

Bændablaðið - 09.06.2022, Page 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 Fátt er betra en djúsí kjúklinga- vængir sem þarf ekki að hafa mikið fyrir að ná af beininu. Vængina er hægt að elda á marga vegu, en þeir eiga til að þorna svolítið. Til að forðast það er gott að forsjóða þá. Úr soðinu er svo hægt að búa til gljáa til að velta kjúklingnum upp úr í lokin. Í staðinn fyrir að nota venjulegan pott er eitt heimilistæki sem vert er að kynna. Nei, ekki Air-fryer, loftsteikingarpottur, það þarf ekkert að kynna þá. Við erum að tala um þrýstingspott. Gamla góða hraðsuðu- pottinn beint frá síðustu öld. Þeir áttu reyndar til að springa á hellum um allar sveitir í gamla daga en nýtískuútgáfan gerir það ekki – eða við vonum það. Heiti potturinn Í hraðsuðupottinn fara tveir, þrír pakkar af vængjum. Skilja flata hlutann og trommukjuðann að. Klippa svo bláendann af þeim flata. Allt fer hráefnið í pottinn, líka endarnir því í þeim er allt smekkfullt af kollageni sem umbreytt verður í gelatín. Endarnir fara í botninn ásamt bolla af vatni og vængirnir fara út í en ofan á gufusoðsgrind, allsberir og ókryddaðir. Sjóða kjúklinginn í 2-3 mínútur undir þrýstingi. Potturinn er svo látinn standa og þrýstingurinn látinn hjaðna náttúrlega í 5 mínútur. Allt tekur þetta þó tæpar 15 mínútur því þrýstingurinn þarf jú að að byggjast upp. Ef enginn er þrýstingspotturinn er kjúklingurinn látinn malla í eins litlu vatni og hægt er í 20 mínútur eða svo. Grillið Á meðan er grillið undirbúið; kol sett í stromp eða gasgrillið hitað upp í rúmlega miðlungshita. Þegar kjúklingurinn er búinn að baða sig í þrýstingspottinum mun hann ekki líta vel út. Allur fölur og bara frekar óaðlaðandi en tilbúinn að fá á sig krydd. Ekki vera hrædd við smá MSG, það gerir mat ljúffengan og hefur engan skaðað – held ég. Kjúklingurinn er svo gott sem fulleldaður og þarf því bara að dökkna smá. Kannski 10 mínútur á grillinu eða svo. Snúa nokkrum sinnum svo ekkert brenni. Á meðan kjúklingurinn fær á sig lit er vökvinn sem eftir er í pottinum, ásamt vængjaendunum, settur í stóra pönnu og soðinn niður þangað til um desilítri verður eftir. Þegar allt er að verða tilbúið eru endarnir veiddir upp úr soðinu og vökvinn kryddaður með nokkrum klípum af sömu kryddblöndu og vængirnir fengu ásamt vænum slurk af heitri sósu (hot sauce). Smjörklípa, kannski matskeið eða svo er hrærð saman við sósuna í lokin. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn er honum velt upp úr sósunni og þá er hann tilbúinn. Hægt að breyta í BBQ vængi með því að setja slurk af grillsósu (barbecue) út í eða hafa soðið bara léttkryddað fyrir þá sem slíkt vilja. Þeim sem finnst gráðostur ómissandi geta stappað smá af honum í mæjónes og sýrðan rjóma en það þarf ekki því þetta er djúsí stöff. Brokkólírunnar Það er mjög fullorðins að fá sér brokkólí með vængjunum. Það er líka svakalega gott, er súpereinfalt og tekur bara nokkrar mínútur. Brokkólíið er skorið í runna og smurt bragðlítilli olíu. Brokkólíið fer á grillið hjá kjúklingnum til að fá á sig smá lit. Næst er að setja smjörklípu í pönnu og fínt saxaðan hvítlauk út í. Þegar allt ilmar eins og hvítlaukur eftir 30 sekúndur eða svo er brokkólíinu bætt út í og blandað við hvítlaukssmjörið. Þá er að sulla smá af kjúklinga- soðinu á pönnuna og setja lok eða álpappír yfir. Ef einhver er vegan í kjúklinga- vængjaveislunni er hægt að nota kranavatn. Gufusjóða þannig brokkólíið í mínútu eða tvær, þá er það tilbúið. Hægt er að skipta brokkólíinu út fyrir blómkál, grænkál eða bara hvað sem hugurinn girnist. Þunnar ræmur af gulrót eða kannski sellerí fyrir hreinstefnufólk. MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Haukur og Herdís keyptu Selja- tungu, þá í Gaulverjabæjarhreppi, árið 1997 og fluttu þangað með þrjá syni sína. Þau hafa síðan þá bætt húsakost og aukið framleiðslu og ræktun til muna. Býli: Seljatunga. Staðsett í sveit: Flóahreppur í Árnessýslu. Ábúendur: Haukur Sigurjónsson og Herdís E. Gústafsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Burtfluttir þrír synir, tvær tengdadætur og eitt barnabarn, hundurinn Svali og kettirnir Gosi og Katti. Stærð jarðar? Um 200 ha. Gerð bús? Mjólkur- og kjöt- framleiðsla. Fjöldi búfjár og tegundir? Um 200 nautgripir á öllum aldri, 14 kindur og tvö hross. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Dagarnir byrja á mjöltum og gjöfum og svo eru öll þau störf sem til falla hverju sinni. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Alltaf gaman í heyskap í góðri tíð en slítandi og leiðinlegt í vætutíð. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Aðstaðan býður upp á meiri framleiðslu og vonandi verður hægt að auka hana. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í framleiðslu íslenskra búvara? Hreinleiki og góð markaðssetning. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk og ostur. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Heimareykt hangikjöt. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Það var á öðru árinu okkar í Seljatungu. Þá kveiktum við í sinu eins og tíðkaðist víða í þá daga og eldurinn fór úr böndunum. Allt fór þó vel að lokum hjá okkur, en það var ekki brennd sina hér aftur. Hálfgrillaðir kjúklingavængir Seljatunga Haraldur Jónasson haradlur@gmail.com Síðustu aldar hraðsuðupottur. Beint af grillinu. Myndir / Hari 1 tsk. salt 1 tsk. pipar 1 tsk. paprikuduft 1 tsk. þurkuð steinselja ½ tsk. origano ½ tsk. Aromat (salt-MSG) ½ tsk. chiliduft ½ tsk. laukduft ¼ tsk. hvítlauksduft Kryddblanda

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.