Bændablaðið - 09.06.2022, Page 24

Bændablaðið - 09.06.2022, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 Skemmtanir yfir sumartímann hafa verið við lýði svo lengi sem elstu menn muna. Hlakkað hefur verið til Sólstöðuhátíða um allt land þar sem viðstaddir gæða sér á pönnukökum og sólarkaffi, bíladagar á Akureyri kitla aðra, Vopnaskak Vopnafjarðar enn aðra og svo auðvitað hátíðir verslunarmannahelgarinnar í bland við allar þær tónlistarhátíðir, hannyrðadaga, miðaldadaga og götubitahátíðir sem fyrirfinnast – svo eitthvað sé nefnt. Nú þegar þetta er sett á blað hefur fyrsta helgi júnímánaðar þegar runnið upp og því ekki hægt að stinga upp á skemmtunum yfir hvítasunnuna. Einhverjir hafa mögulega tekið þátt í Color Run hlaupi Reykvíkinga, Bjórhátíðinni á Hólum eða annars lags gleði – á meðan aðrir hafa furðað sig á hvers vegna aðstandendur Sjómannadagsins hafi ekki blásið í lúðra sína. Samkvæmt vefsíðu Brim kemur fram í tilkynningu stjórnarformanns Sjómannadagsráðs, Aríels Péturs- sonar, að þótt sjómannadagurinn sé alla jafna haldinn fyrstu helgina í júní, beri nú hvítasunnuna upp á þá helgi í ár og því ákveðið að hátíðahöld í tilefni hans verði aðra helgina í júní eða þann tólfta. Einnig kemur fram að í ár verði öllu tjaldað til þann dag og þó áður hafi sjómannadagurinn verið hluti af Hátíð hafsins verði það ekki nú í ár. En nú skulum við líta yfir það sem helst er á döfinni í júnímánuði innan hvers landshluta. Júlí og ágúst verða svo teknir er þar að kemur. Svona eftir bestu getu og með þakklæti til þeirra er svara tölvupóstum á markaðsstofum þeirra. Þar má einnig finna frekari upplýsingar um neðangreind hátíðahöld. Annað sem gott er að hafa bak við eyrað er Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar á Seyðisfirði og svo má enginn gleyma Ljósanóttum Reykjanesbæjar sem eru dagana 1.- 4. september næstkomandi. /SP Hátíðir sumarsins HRINGINN Í KRINGUM LANDIÐ Austurland & Austfirðir 12. júní Heimamyndadagar á Seyðisfirði. 15. júní Heimamyndadagur á Djúpavogi. 20.-23. júní Námskeiðið Útsaumur & útiveraHallormsstaðaskóla. 18.-25. júní Gönguvikan Á fætur í Fjarðabyggð, fjölskylduvænar gönguferðir og afþreying. 22.-23. júní Smiðjuhátíð Tækniminjasafnsins á Seyðisfirði með breyttu sniði: Sýning í gömlu vjelasmiðjunni og víðar um skriðuföllin, boðið verður upp á ljósmyndanámskeið, kótilettukvöld og tónleikar haldnir með Ragnheiði Gröndal og Guðmundi Péturssyni. 25. júní Skógardagurinn mikli í Hallormsstaðarskógi. Norðurland & Norðausturland 17.-20. júní Sólstöðuhátíðin á Kópaskeri lengist um einn dag í ár, tónleikar með Bríeti þann 20. júní. 17.-20. júní Sólstöðuhátíð í Grímsey, dansleikur, sjávarréttakvöld og varðeldur. 16.-18. júní Bíladagar á Akureyri. Bílasýning, drift, burn-out, sand- og götuspyrna, eitthvað fyrir alla. 24.-26. júní Lummudagar! Notaleg fjölskylduhátíð í Skagafirði með fjölbreyttri dagskrá. 24.-26. júní Bæjarhátíðin Hofsós heim. Varðeldur, sjósund & markaðir. Reykjanes, Suðurland, Suðaustur & Suðvesturland 10.-12. júní Bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík. 10.-12. júní Upp í sveit – Sveitahátíð í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. 10.-12. júní Hátíð hafsins í Reykjavík. 12. júní Sjómannadagurinn. 17. júní Þjóðhátíðardagur Íslendinga. Hátíðahöld víða um land. 15.-19. júní Víkingahátíðin í Hafnarfirði. 18.-21. júní Tónlistarhátíðin Secret Solstice í Reykjavík. 24.-26. júní Hvalfjarðardagar. 24.-26. júní Humarhátíð á Höfn í Hornafirði þar sem boðið er upp á humarsúpu og fjölbreytta skemmtidagskrá. Sömu helgi er í gangi flughátíð á Hornafjarðarflugvelli, sem fjölskylda Vignis Þorbjörnssonar heldur honum til heiðurs, en hann sinnti flugþjónustu Hornafjarðarflugvallar nánast allt sitt líf. 25. júní Jónsmessuhátíð Eyrarbakka. Varðeldur, markaðir o.fl. 30. júní-3. júlí Goslokahátíð Vestmannaeyja þar sem lokum eldgossins á Heimaey 1973 er fagnað. Vesturland, Norðvesturland & Vestfirðir 24.-26. júní Hamingjudagar á Hólmavík fyrir alla fjölskylduna. 24.-26. júní Brákarhátíð – Fjölskylduhátíð í Borgarnesi og svo má ekki gleyma Landsmóti UMFÍ fyrir aldurshópinn 50+ 24.-26. júní Danskir dagar á Stykkishólmi. 30. júní-2. júlí Markaðshelgin – Fjölskylduhátíð í Bolungarvík. 30. júní-3. júlí Írskir dagar – Bæjarhátíð á Akranesi. Myndir / Ragnar Th / Höfuðborgarstofa. Á döfinni í júní ... Saga daganna: Hátíð hafsins Í Morgunblaðinu laugardaginn 5. júní árið 1999 er fjallað um fyrsta skiptið þegar Hátíð hafsins, er haldin hátíðleg, helgina 4.-6. júní. Var hugsunin á bak við þetta samstarfsverkefni Sjómanna- dagsráðs, Reykjavíkurborgar, Reykjavíkurhafnar og Útvegs- mannafélags Reykjavíkur, að sameina skyldi hafnardaginn og sjómannadaginn, minna með því á mikilvægi sjómannastéttarinnar. Var mikið um gleði þessa fyrstu hátíð, haldið var Íslandsmót í handflökun, listsýning, minningarguðsþjónusta, skemmtisiglingar, auk þess sem keppt var í dorgveiði barna. Tókst þessi fyrsta Hátíð hafsins með eindæmum vel og hefur gert, allt fram til dagsins í dag. /SP (Svo er nú sjálfsagt eitthvað sem hefur ekki komist á lista, en hér að ofanverðu er ýmislegt upptalið sem má skemmta sér við.)

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.