Skessuhorn


Skessuhorn - 27.10.2021, Page 9

Skessuhorn - 27.10.2021, Page 9
Hreint ál úr íslenskri orku | nordural.is Norðurál leitar að metnaðarfullu og ábyrgu fólki Íslenski áliðnaðurinn er ein af stærstu útflutningsgreinum landsins og Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Á hverju ári notum við endurnýjanlega raforku til að fram- leiða um 320.000 tonn af áli fyrir erlenda markaði. Hjá okkur starfa um 600 manns með fjölbreytta menntun og bak­ grunn. Störfin eru fjölbreytt og henta öllum, óháð kyni. Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfs­ umhverfi og góðan starfsanda. Starfsfólki bjóðast ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu. Framleiðslusérfræðingur í kerskála Helstu viðfangsefni eru stýring á kerjum í rekstri og úrvinnsla gagna, úttektir á verklagi í kerskála ásamt greiningu og úrvinnslu fram leiðsluupplýsinga. Viðkomandi mun taka þátt í þróun á ker­ stýri kerfi og bera ábyrgð á því, sem og umbótavinnu í ferlum og kerfum kerskála. Verkefnastjóri fjárfestinga hjá Norðuráli Helstu viðfangsefni eru daglegur rekstur og umsjón með fjár­ festingarverkefnum, þátttaka í gerð og eftirfylgni með fjárfestinga­ áætlunum og kostnaðar­ og tímaeftirlit. Viðkomandi mun einnig sinna ýmis konar skýrslugerð og upplýsingagjöf og eiga samskipti við stjórnendur og hagsmunaaðila. Umsóknarfrestur er til og með 3. nóvember 2021. Umsóknir og upplýsingar um störfin, ásamt hæfniskröfum er að finna á www.intellecta.is. Upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Torfi Markússon (torfi@intellecta.is) í síma 511 1225. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um störfin. Farið verður með allar fyrirspurnir og um­ sóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.