Skessuhorn - 27.10.2021, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 202128
Síðasta miðvikudag var haldið
svokallað Karlakaffi í Vinaminni
á Akranesi, en það var á veg-
um Garða- og Saurbæjarpresta-
kalls. Að sögn Þráins Haraldsson-
ar sóknarprests er þetta tilraun til
að fá fleiri karla í félagsstarf kirkj-
unnar og stefnan er að halda svona
karlakaffi einu sinni í mánuði ef
áhugi verður til staðar. Þá verð-
ur reynt að hafa fyrirlesara í hvert
skipti og fyrstur var Jón Gunn-
laugsson, knattspyrnuspekúlant og
fyrrum leikmaður ÍA, með erindi
um Knattspyrnufélagið ÍA og voru
fundarmenn býsna ánægðir með
hans frásögn.
Skessuhorn fékk góðfúslegt leyfi
frá Jóni að birta vel valda hluta úr
fyrirlestrinum og sagði Jón í byrj-
un hans að það væri af mörgu að
taka þegar málefni knattspyrnunn-
ar á Akranesi væru rædd, skipt-
ar skoðanir væru um margt og oft
fjörugar umræður. Fyrst kom Jón
inn á Akranesliðið í dag og sagði
að það hefði komið sterkt og óvænt
inn í lokakafla tímabilsins eftir að
hafa valdið verulegum vonbrigð-
um mestan part sumars. „Mikil
mannaskipti frá síðasta ári höfðu
greinilega áhrif og kannski var leik-
mannahópurinn ofmetinn. Það
breytti því þó ekki að lagt var upp
með að liðið gæti spjarað sig með
ágætum. Þegar illa gengur beinast
spjótin fyrst að þjálfaranum og oft
heyrist að hann þurfi að víkja og þá
muni allt lagast. Það er athyglisvert
að allt frá árinu 2006 hafa sex þjálf-
arar stjórnað liðinu, allt farsælir
fyrrum leikmenn með glæsta ferla.
Allir voru þeir með góðan árangur
á öðrum vígstöðvum en samt hættu
þeir allir störfum á miðjum leik-
tímabilum hjá ÍA. Í engum tilfell-
um batnaði árangurinn. Ég hygg
að þættir eins og fjármál, stjórn
félagsins, aðstaða eða jafnvel leik-
mennirnir sjálfir spili oftast stóra
rullu í slökum árangri en ekki bara
þjálfarinn.“
Brutu niður veldi
Reykjavíkurliðanna
Næst nefndi Jón að á næsta
ári verða 100 ár liðin frá stofnun
Knattspyrnufélagsins Kára, fyrsta
formlega knattspyrnufélaginu á
Akranesi og í ár er líka minnst 75
ára afmælis Íþróttabandalags Akra-
ness en bandalagið á merka sögu
og er enn forystuaflið í íþróttalífi
bæjarins. Þá nefndi Jón einnig að
í ár eru liðin 70 ár frá því Skaga-
menn urðu fyrst Íslandsmeistarar í
knattspyrnu 1951 og brutu þar nið-
ur veldi Reykjavíkurliðanna sem
höfðu skipt titlinum á milli sín allt
frá árinu 1912. „Þessi titill breytti
miklu í íslenskri knattspyrnu og
gaf landsbyggðinni nýjan tón. Það
sem á eftir kom var ótrúleg vel-
gengni liðsins meira og minna
næstu fimmtíu árin eða allt til
þess að síðasti meistaratitill vannst
2001. 18 meistaratitlar er frábær
árangur og til að setja hann í sam-
hengi við mótherja okkar hafa stór-
veldin Valur og KR unnið samtals
sautján Íslandsmeistaratitla á sama
tíma. Þetta var því sannkallað gull-
aldartímabil og sýndi að endurnýj-
un liðsins hafði alltaf heppnast vel,
en hér er nánast um fjórar kynslóð-
ir leikmanna að ræða.“
Stuðningur eykst
við velgengnina
Jón kom næst inn á að eftir meist-
aratitilinn árið 2001 hefði liðið
haldið þokkalegri stöðu næstu ár á
eftir en síðan tók að fjara út. „Það
er athyglisvert ef við skoðum okk-
ar félag að eftir síðasta meistara-
titilinn 2001 áttum við meistara-
lið í 2. flokki 2001, 2002, 2004 og
2005. Þrátt fyrir það hjálpaði það
okkur ekki nægilega vel við upp-
byggingarstarf á næstu árum. Og
það er líka athyglisvert að síðustu
árin höfum við átt frábær lið í 2.
flokki sem virðist ekki ætla að nýt-
ast okkur nægilega vel. Bæði hafa
drengir farið í atvinnumennsku
og eins snúið í önnur félög. Hvort
þessi skýring segir okkur eitthvað
fleira um stöðu okkar er erfitt að
fullyrða, en hún er umhugsunar-
verð. Kannski höfum við gleymt
uppruna okkar og hvernig við fór-
um að þessu hér áður fyrr. Vissu-
lega eru tímarnir breyttir og ým-
islegt unnið á annan veg en áður.
Við þurfum í dag raunhæf markmið
og ekki gleyma þáttum sem skópu
stöðu okkar í íslenskri knattspyrnu.
Hvernig unnið var hlýtur að geta
virkað áfram að einhverju leyti;
saga félagsins, hefðir og áhugi er
til staðar. Þetta skiptir máli fyrir
fjölda fólks á Akranesi og eins víða
um land, fólk sem lætur sig varða
hver staða knattspyrnunnar á Akra-
nesi er hverju sinni. Við sáum vel
núna í lokakafla Íslandsmótsins og
í bikarúrslitunum hve stuðningur-
inn styrkist mikið þegar liðið fer
að vinna leiki, ekki bara á Akranesi
heldur líka víða um land sem sýn-
ir kannski best stöðu félagsins hjá
fólki víðsvegar um landið.“
Megum ekki gleyma
upprunanum
Jón nefndi það í lokin að fyr-
ir tveimur árum hafi verið kynnt
stefnumörkun Knattspyrnufélags
ÍA meðal annars fyrir meistara-
flokka félagsins. „Þar kom fram að
byggja ætti liðið upp á yngri leik-
mönnum og þar væri horft í ungu
strákana sem þá voru ríkjandi Ís-
landsmeistarar. Jafnframt átti ekki
að ná í aðkomuleikmenn ef þeir
væru eldri en 27 ára. Þetta hef-
ur ekki gengið eftir. Ég nefni þetta
hér því það sýnir kannski best hve
varhugaverð markmiðasetning er;
ef ekki er vilji til að fylgja henni og
treysta hana í sessi. Það er margt
fleira sem skiptir máli í framtíðinni
varðandi knattspyrnuna á Akranesi.
Við eigum að sníða okkur stakk eft-
ir vexti og við getum líka farið að
einhverju leyti í gömul spor, fund-
ið út hvað virkaði vel hér áður og
hvernig hægt er að nýta það í dag.
Við þurfum að leita uppi allt sem
við teljum að geti bætt okkur. Það
var nefnt hér fyrr að kannski höf-
um við gleymt uppruna okkar. Lát-
um það ekki henda okkur.“
Þegar Jón hafði lokið máli sínu
settust menn niður, fengu sér
kaffi og kökur og ræddu málin í
drykklanga stund. Þráinn þakkaði
mönnum fyrir komuna og sagð-
ist hlakka til næsta fundar. Hann
sagði að hann vonaðist eftir enn
betri mætingu næst en stuttur fyrir-
vari hefði verið á þessu fyrsta karla-
kaffi og kannski ekki nógu vel aug-
lýst. Það eru því spennandi tímar
fyrir karla á öllum aldri að hittast,
spjalla og eiga góða stund í Vina-
minni alla vega næsta misserið og
vonandi miklu lengur.
vaks
Dagur í lífi...
Nafn: Magnús Fjeldsted
Fjölskylduhagir/búseta: Giftur
Margréti Á Helgadóttur nuddara.
Þrjú börn: María Sól 11 ára, Óli-
ver Kristján 20 ára, Heba Rós 21
árs og eitt barnabarn, Sara Líf 2
ára. Búum í Borgarnesi.
Starfsheiti/fyrirtæki: Stöðvar-
stjóri N1 Borgarnesi og veiði-
vörður á sumrin.
Áhugamál: Mest af frítíman-
um yfir sumarið fer í golfið. Yfir
sumarið vinn ég sem veiðivörður
við Norðurá og Gljúfurá. Það má
segja að sumarið fari í vinnu, golf
og lítið annað. Yfir veturinn fór
líka mikið af frítímanum í golf í
æfingaaðstöðunni úti í eyju. Þeirri
aðstöðu var lokað síðasta vetur og
ennþá hefur ekkert komið í stað-
inn fyrir þá flottu aðstöðu. Ég er
í stjórn Veiðifélags Gljúfurár og
gjaldkeri í Sambandi borgfirskra
veiðifélaga, varamaður í stjórn
Veiðifélags Norðurár og gjaldkeri
Rótarýklúbbs Borgarness. Ætli
golfið og veiðifélögin séu ekki
áhugamálin.
Dagurinn: Þriðjudagurinn 19.
október 2021
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði kl. 05:45 og
fór í ræktina til Sössa. Var reynd-
ar ekki búinn að mæta í tvær vikur
vegna leti, sagði Sössi, en ég vildi
meina að það væri vegna nýrna-
steina sem voru að kvelja mig í
tvær vikur þar á undan.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Fékk mér kaffi og samloku með
osti í morgunmat.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Eftir að hafa farið í pott-
inn var ég mættur í vinnuna um
7:30. Gerði allt klárt til að opna
og opnaði stöðina kl. 8. Venjulega
mæti ég til vinnu kl. 7:45.
Fyrstu verk í vinnunni? Eftir að
hafa opnað fór ég hring í kring-
um stöðina og tók allt rusl sem var
á svæðinu.
Hvað varstu að gera klukk-
an 10? Þá var vikulegur netfund-
ur með öllum stöðvarstjórum og
verslunarstjórum N1 um allt land
og okkar yfirmanni í Reykjavík.
Farið yfir reksturinn í tölum og
áherslur næstu daga.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Í
hádeginu var fiskur réttur dags-
ins, alltaf frábær matur hjá Rikka
kokki. Rikki gerir alltaf góðan mat
og það skemmtilega er að stund-
um gerir hann mat sem maður er
hættur að gera sjálfur heima og fær
jafnvel hvergi annars staðar. Kjöt
í karríi, kjötfarsbollur, kótilettur
og lambaskankar eru meðal rétta
sem eru reglulega í hádeginu á N1
Borgarnesi. Rikki gerir líka besta
Royalbúðing á landinu.
Hvað varstu að gera klukkan 14?
Var að vinna í áætlun um fjölda
starfsmanna fyrir næsta ár. Þar sem
við erum að opna Ísey skyrbar og
Djúsí með samlokum og safa tók
áætlun næsta árs nokkuð lengri
tíma en venjulega.
Hvenær hætt og það síðasta sem
þú gerðir í vinnunni? Hætti um
klukkan 16. Síðasta sem ég gerði
áður en ég fór var að fara hringinn,
athuga hvort allt væri í lagi og
kveðja starfsmennina sem áttu eftir
að vinna til kl. 23.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Þegar
ég kom heim lagðist ég upp í rúm
með bók sem ég ætlaði að lesa en
sofnaði og svaf til sex.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Margrét eldaði hakk með
tortilla í kvöldmatinn.
Hvernig var kvöldið? Eftir kvöld-
mat tók ég og Óliver æfingu í
borðtennis í bílskúrnum. Hann
grísaði á að vinna gamla mann-
inn eina ferðina enn. Við keyptum
borðtennisborð í september og er
ég að komast á þá skoðun að þessi
kaup verði ekki til að auka sjálfs-
traustið. Ég vinn þó ennþá Maríu
svo borðið verður ekki selt alveg
strax!
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að hátta?
Tannburstaði mig og las í hálftíma.
Hvenær fórstu að sofa? Sofnaði
um miðnættið.
Hvað stendur upp úr eftir
daginn? Upp úr stendur að ég réði
tvo nýja starfsmenn í Ísey skyr. Það
sér nú fyrir endann á framkvæmd-
um við N1 Borgarnesi. Við mun-
um á næstu vikum opna Ísey skyr
og Djúsí. Það eru spennandi tím-
ar framundan á N1 og verður gam-
an að sjá hvernig heimamenn og
ferðamenn taka þessum nýjung-
um í framboði á veitingum á Vest-
urlandi.
Stöðvarstjóra N1 í Borgarnesi1
Knattspyrna rædd í fyrsta Karlakaffi Akraneskirkju
Jón Gunnlaugsson hélt erindi um
Knattspyrnufélag ÍA.
Þessir hressu karlar mættu á fyrsta fundinn í Vinaminni.