Skessuhorn


Skessuhorn - 27.10.2021, Blaðsíða 36

Skessuhorn - 27.10.2021, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 202136 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Dreifi bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Barnamenningahátíð hefst á Akra- nesi á morgun, fimmtudag. Til stóð að halda hátíðina í apríl á þessu ári en henni var frestað vegna heims- faraldurs. Vettvangur hátíðarinn- ar er bærinn allur og leitast er við að nýta spennandi og áhugaverð rými þar sem fjölbreyttir viðburðir fara fram um allan bæ. Það er Akra- neskaupstaður í samstarfi við Sam- tök sveitarfélaga á Vesturlandi sem standa fyrir barnamenningarhátíð fyrir börn og ungmenni á Akranesi dagana 28. október til 7. nóvember. Af viðburðum Barnamenn- ingarhátíðar má nefna Fjölskyldu- söngstund á Bókasafninu sem Skólakór Grundaskóla heldur nú í 10. skipti og tónleika í Tón- bergi þar sem elsta deild leikskól- ans Vallarsels kemur fram. Sund- laugarpartý verður fyrir 5. til 7. bekk í Jaðarsbakkalaug á mið- vikudagskvöld og opin dansæfing Brekkubæjarskóla á Bókasafninu á fimmtudag. Þá má ekki gleyma Of- urhetjumyndum Arnórs og teikni- myndasögum Bræðrabandalags- ins í Tónlistarskólanum en Arn- ór Dagur er tæplega 11 ára gamall listamaður sem hefur gríðarmik- inn áhuga á ofurhetjum og teikni- myndasögum. Allar nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði Barnamenn- ingarhátíðar er að finna í auglýsingu og dagskrá sem birtast í Skessu- horni vikunnar auk þess sem nánari upplýsingar um alla viðburðina er að finna á vefnum skagalif.is. frg Eins og mörgum mun kunnugt, lét sr. Geir Waage af störfum sóknar- prests í Reykholtsprestskalli fyr- ir aldurs sakir um síðustu áramót eftir 42 ára farsæla þjónustu hans og eiginkonu hans, Dagnýjar Em- ilsdóttur, við söfnuðinn og staðinn í Reykholti. Sóknarnefnd Reyk- holtssóknar og Snorrastofa bjóða til dagskrár þeim hjónum til heiðurs og þakkar fyrir árin öll. Þakkarhóf- ið átti að halda á vormánuðum, sem ekki reyndist gerlegt vegna covid- -faraldursins, en vegna tilslakana í smitvörnum reynist nú loks mögu- legt að standa fyrir þessum við- burði. „Það er því sóknarnefnd, sóknar- börnum, Snorrastofu og Reyk- holtskórnum gleðiefni að bjóða til dagskrár í Reykholtskirkju laugardaginn 30. október nk. kl. 15.00. Þorvaldur Jónsson, formað- ur sóknarnefndar, mun setja dag- skrána, en síðan mun Óskar Guð- mundsson flytja fyrirlesturinn „Snorri Sturluson og Reykholt – miðstöð menningar og valda“ og að lokum Björn Bjarnason, stjórnar- formaður Snorrastofu, flytja ávarp. Á milli atriða mun Reykholtskór- inn flytja nokkur lög, en í kjölfar- ið mun Reykholtssókn bjóða upp á veitingar í safnaðarsalnum. Þar gefst fólki kostur á að ávarpa séra Geir og frú Dagnýju,“ segir í til- kynningu. mm Vökudagar hefjast á Akranesi á morgun, fimmtudag, og verður setningarathöfnin á Byggðasafninu í Görðum klukkan 18:00. Þar verða meðal annars afhent menningar- verðlaun Akraneskaupstaðar 2021. Árbók Akurnesinga hlaut verð- launin á síðasta ári. Að sögn Sig- rúnar Ágústu hjá Akraneskaupstað er mikil stemning fyrir hátíðinni, bæði meðal barna og fullorðinna og þátttakan góð. Meðal barnanna er spenningur- inn einna mestur fyrir Halloween hryllingsvölundarhúsinu sem verð- ur í Hafbjargarhúsinu á Breið 31. október og segja aðstandend- ur hryllingsvölundarhússins að þar sé sko enginn að grínast neitt. Því hefur jafnvel verið haldið fram að spenningurinn sé meiri meðal barnanna en fyrir sjálfum jólunum. Halloween eða hrekkjavaka er há- tíðisdagur haldinn 31. október, ætt- aður frá keltum þar sem hann hét upphaflega Samhain. Þá voru færð- ar þakkir fyrir uppskeru sumarsins og boðin velkomin koma vetursins. Vökudagar standa frá fimmtu- deginum 28. október til sunnu- dagsins 7. nóvember. Allar nánari upplýsingar um Vökudaga er að finna í auglýsingu og dagskrá sem birtast í Skessuhorni vikunnar auk þess sem nánari upplýsingar um alla viðburðina er að finna á vefn- um skagalif.is. frg Frá Halloween hátíð sem haldin var 2020. Vökudagar að byrja á Akranesi Skagaleikflokkurinn kitla hláturtaugar gesta Vökudaga 2018. Mín sál þinn söngur hljómi Dagskrá til heiðurs sr. Geirs Waage og frú Dagnýjar Emilsdóttur í Reykholti Barnamenningarhátíð að hefjast á Akranesi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.