Skessuhorn - 27.10.2021, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021 39
Leik Hattar frá Egilsstöðum og
Skallagríms í körfuknattleik sem
átti að fara fram síðastliðinn föstu-
dag var frestað vegna smits í her-
búðum Skallagríms. Um var
að ræða einn leikmann og ann-
an þjálfara sem voru orðnir veik-
ir og því var ákveðið í kjölfarið að
fresta leiknum. Nýr leiktími verður
ákveðinn síðar, en til stóð að næsti
leikur Skallagríms yrði föstudaginn
29. október gegn Hrunamönnum í
Fjósinu í Borgarnesi. vaks
Skagamenn tóku á móti liði Ham-
ars úr Hveragerði í 1. deild karla í
körfuknattleik á föstudagskvöldið.
Jafnræði var með liðunum fyrstu
mínúturnar en undir lok fyrsta leik-
hluta náði Hamar góðum kafla og var
með átta stiga forystu, 19:27. Í öðrum
leikhluta gerðu þeir enn betur, hittu
vel og unnu annan leikhlutann með
12 stigum og fóru með 20 stiga for-
ystu inn í hálfleikinn, 31:51.
Skagamenn stóðu sig mun betur
í þriðja leikhluta, héldu vel í gestina
og munurinn 21 stig þegar liðin
fengu sér smá hvíld fyrir síðasta leik-
hlutann, 52:73. ÍA vann síðasta leik-
hlutann með einu stigi en slakur fyrri
hálfleikur varð þeim að falli í þessum
leik, lokatölur 79.99 fyrir Hamar.
Stigahæstir hjá ÍA í leiknum voru
Cristopher Clover með 29 stig og 7
fráköst, Davíð Alexander Magnús-
son var með 12 stig og Þórður Freyr
Jónsson með 11 stig. Hjá Hamri var
Dareial Franklin langstigahæstur
með 38 stig, Ragnar Magni Sigur-
jónsson með 19 stig og Kristijan
Vladovic með 9 stig.
Skagamenn eru því enn án stiga
eftir fimm umferðir í deildinni eins
og nágrannar þeirra, Skallagrímur úr
Borgarnesi. Næsti leikur ÍA er gegn
Hetti frá Egilsstöðum næsta föstudag
fyrir austan og hefst klukkan 19.15.
vaks
Skallagrímur lék tvo leiki í liðinni
viku í Subway deild kvenna í
körfuknattleik og sá fyrri var gegn
Breiðablik í Borgarnesi á miðviku-
dag í liðinni viku. Fyrir leikinn voru
þessi lið án stiga í deildinni og ljóst
að hart yrði barist til að komast á
blað. Sú varð raunin í fyrsta leik-
hluta en jafnt var á flestum tölum
og gestirnir með tveggja stiga for-
skot við lok hans, 17:19. Svipað var
upp á teningnum í öðrum leikhluta
til að byrja með en Breiðablik náði
góðum leikkafla um miðjan hlutann
þar sem þær skoruðu 14 stig í röð
og staðan 29:46 þegar liðin fóru inn
í hálfleikinn.
Breiðablikskonur gáfu ekkert eft-
ir í þriðja leikhlutanum, bættu við
stigaskorið á meðan lítið gekk hjá
Skallagrími og munurinn kominn
í 35 stig þegar liðin tóku sér hvíld
fyrir lokaátökin, 35:70. Breiðablik
sleppti ekki takinu í þeim fjórða og
þó að heimakonur hafi unnið hann
með fimm stigum þá var það ekki
nóg og fjórða tap Skallagríms í röð
í deildinni að veruleika, lokastaðan
49:79
Stigahæstar hjá Skallagrími í
leiknum voru þær Maja Michalska
sem var með 15 stig, Nikola
Nedorosíková var með 12 stig og
Victoría Lind Kolbrúnardóttir með
9 stig. Hjá Breiðabliki var Chelsey
Shumpert með 28 stig, Iva Georgi-
eva með 13 stig og Anna Soffía Lár-
usdóttir með 12 stig.
Skallagrímur sótti síðan lið Fjöln-
is í Grafarvogi heim í Subway deild
kvenna í körfuknattleik á sunnu-
daginn. Jafnt var á öllum tölum í
fyrsta leikhluta, liðin skiptust á um
að ná forystunni og staðan 24:23.
Baráttan hélt áfram í öðrum leik-
hluta og aðeins munaði sex stigum
þegar liðin fóru inn í hálfleikinn,
39:33.
Fjölnir hélt hins vegar áfram að
auka muninn jafnt og þétt í þriðja
leikhluta og Skallagrímur átti fá svör
við leik heimamanna sem keyrðu
yfir þær og juku forskotið enn meir,
staðan 61:47 fyrir lokaleikhlutann.
Fjölniskonur héldu takinu, bættu
enn meira í og unnu að lokum ör-
uggan 29 stiga sigur, 87:58.
Stigahæstar hjá liði Skallagríms í
leiknum voru þær Inga Rósa Jóns-
dóttir með 16 stig, Nikola Neder-
osíková með 14 stig og 6 stolna
bolta og Maja Michalska með 13
stig og 9 fráköst. Hjá Fjölni var
Sanja Orozovic með 24 stig, Dag-
ný Lísa Davíðsdóttir með 19 stig og
Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir
með 14 stig.
Skallagrímur er því enn án stiga
í deildinni eftir fimm leiki og er
eina liðið sem enn hefur ekki unnið
leik. Það er ljóst að framundan er
erfiður vetur í deildinni fyrir þetta
unga lið Skallagríms en meðalald-
ur liðsins er aðeins um 19 ár. Næsti
leikur Skallagríms er gegn Njarð-
vík í kvöld, miðvikudag, í Fjósinu í
Borgarnesi og hefst klukkan 18:15.
vaks
Snæfellskonur léku gegn Tindastól
í 1. deild kvenna í körfuknattleik á
laugardaginn og urðu að sætta sig
við tíu stiga tap, 87:77. Heimakon-
ur byrjuðu af krafti og komust í 8:0.
Snæfell reyndi hvað þær gátu til að
missa ekki leikinn úr höndum sér og
náðu að halda mismuninum í átta
stigum eftir fyrsta leikhluta, 23:15.
Um miðjan annan leikhlutann var
Tindastóll kominn með 20 stiga
forystu, héldu því til loka fyrri hálf-
leiks og útlitið alls ekki gott fyrir
Snæfell í leikhléinu, hálfleiksstað-
an 51:31.
Fram að miðjum hluta þriðja
leikhlutans voru Snæfellskonur að
elta og gekk illa að minnka mun-
inn. Þær náðu síðan frábæru áhlaupi
með Sianni Martin í fararbroddi
þegar þær skoruðu 19 stig gegn að-
eins fjórum stigum Stólanna síðustu
fimm mínúturnar og allt í einu var
forskot Tindastóls aðeins þrjú stig
þegar liðin hvíldu sig fyrir lokaá-
tökin, 66:63. Eftir hálfan fjórða og
síðasta leikhluta var staðan orðin
70:74 fyrir Snæfelli og staðan orðin
ansi vænleg fyrir gestina. En þá
setti Tindastóll í fluggírinn, settu
13 stig í röð á meðan Snæfell skor-
aði aðeins þrjú stig seinni hluta leik-
hlutans. Lokastaðan 87:77 Tinda-
stólskonum í vil og liðin eru því jöfn
í fimmta og sjötta sæti deildarinnar
með fjögur stig eftir fjóra leiki.
Langstigahæst í liði Snæfells
var Sianni Martin með 51 stig,
Rebekka Rán Karlsdóttir var með
10 stig og Preslava Koleva með 9
stig. Í liði Tindastóls var Madison
Sutton stigahæst með 33 stig, Eva
Rún Dagsdóttir var með 20 stig og
Ksenja Hribljan með 12 stig.
Næsti leikur Snæfells er gegn
Vestra laugardaginn 13. nóvember
á Ísafirði og hefst klukkan 18.
vaks
Í Grundarfirði hefur verið boð-
ið upp á stelpuæfingar í fótbolta
undanfarið sem hefur leitt af sér
mikla aukningu í mætingu hjá
stelpunum. Stelpurnar hafa ver-
ið duglegar að mæta og láta ljós
sitt skína undir öruggri leiðsögn
Halldóru Daggar Hjörleifsdóttur
þjálfara. Margar þessara stelpna
hafa ekki haft áhuga á að mæta á
blandaðar æfingar og finnst mun
skemmtilegra að mæta þar sem ein-
göngu stelpur eru iðkendur. Síðasta
föstudag var svo hópferð á landsleik
Íslands og Tékklands á Laugardals-
velli en leiknum lyktaði með 4-0
sigri íslensku stelpnanna við mik-
inn fögnuð áhorfenda. Stelpurnar
frá Grundarfirði skemmtu sér kon-
unglega og létu blautt og kalt veðr-
ið ekki spilla gleðinni. Að leik lokn-
um var svo farið niður að rekkverki
og heilsað upp á íslensku lands-
liðskonurnar sem gáfu sér góð-
an tíma að heilsa upp á þessa ungu
áhorfendur sem margar voru að
fara á sinn fyrsta landsleik.
tfk
Ekki var gleðin síðri
eftir frábæran 4-0 sigur
á Tékkum.
Stelpurnar í stelpuboltanum
lögðu land undir fót
Grundfirsku stelpurnar voru spenntar fyrir leik.
Covid smit í leikmannahópi Skallagríms
Snæfell tapaði gegn Tindastól
fyrir norðan
Skallagrímskonur
með tvö töp í vikunni
Inga Rósa Jónsdóttir og Birgit Ósk Snorradóttir undir körfunni í leik Skallagríms
og Breiðabliks. Ljósm. glh
Þórður Freyr Jónsson skoraði 11 stig
gegn Hamri á föstudagskvöldið.
Ljósm. jho
ÍA enn án sigurs eftir
fimm leiki