Skessuhorn - 27.10.2021, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021 19
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra
húsa og mannvirkja, sbr. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði nr.
577/2016. Veittir verða styrkir úr sjóðnum til:
• viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og
mannvirkjum, ásamt öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa
menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi.
• byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningar húsa og
mannvirkja, og miðlunar upplýsinga um þær.
• sveitarfélaga til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, í
samræmi við ákvæði laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016
um verndarsvæði í byggð og til verkefna innan verndarsvæða í
byggð.
Umsóknir eru metnar m.a. með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna
byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs
ástands ásamt gildis fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna
á vef Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2021. Umsóknir sem berast
eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun styrkja.
Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af
hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit
um verndarsvæði í byggð og um viðhald og endurbætur friðaðra og
varðveisluverðra húsa sem finna má á vef Minjastofnunar Íslands (undir
Gagnasafn). Í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni er veitt endurgjaldslaus ráðgjöf
um gerð styrkumsókna og viðhald og viðgerðir á gömlum húsum (sjá nánar á
www.husverndarstofa.is).
Suðurgötu 39, 101 Reykjavík
Sími: 570 1300
www.minjastofnun.is
husafridunarsjodur@minjastofnun.is
Minjastofnun Íslands
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
húsafriðunarsjóði
fyrir árið 2022
Á Akranesi er einkum horft til aukinnar ferðaþjónustu um höfnina. Eins og glöggt má sjá á þessari mynd frá því í haust er lítið
um að vera í höfninni, engin stór skip. Ljósm. frg.
Háskóla Íslands. Fyrirmyndin er
fengin hjá Google þar sem aðferða-
fræðin byggir á því að deila upplýs-
ingum.
Í húsinu eru 38 skrifstofur og átta
fundaherbergi. Þar blandast saman
fjölbreyttir frumkvöðlar og starfs-
menn í húsinu eru um 120 talsins.
Nanna fjallaði um mikilvægi þess
fyrir frumkvöðla í bláa hagkerfinu
að hafa svona gott húsnæði þar sem
fegurð hafsins er allt um lykjandi.
Haldið er fast í gildi samvinnu í
Húsi Sjávarklasans.
Nanna fjallaði um hversu fjöl-
breytt starfsemin er í húsinu og
sagði frá því hvernig hlutverk
kvenna hefur breyst frá því að vera
nær eingöngu í framleiðslu sjávar-
afurða yfir í að vera í forystu- og
lykilhlutverki í frumkvöðlafyrir-
tækjunum. Fyrirtækin eru til að
mynda í heilsu- og snyrtivörum auk
margs annars. Þá nefndi Nanna að
Íslendingar eru að nýta um 80%
sjávaraflans á meðan aðrar þjóðir
eru að nýta um 50% aflans.
Þessu næst sagði Nanna Ósk frá
Sjávarakademíunni sem hefur not-
ið gríðarlegra vinsælda og komu
um eitt hundrað umsóknir um inn-
göngu í ár. Í Sjávarakademíunni
fær ungt fólk haldbæra reynslu
og menntun í bæði markaðsfræði,
hvernig eigi að stofna fyrirtæki,
hvernig eigi að fjármagna fyrirtæk-
in auk þess að fá mikinn stuðning
frá frumkvöðlaumhverfinu innan
Sjávarklasans. Í lok námsins vinna
nemendur síðan viðskiptaáætlun
sem þeir þurfa síðan að kynna fyrir
fjárfestum.
Hús Sjávarklasans hefur að sögn
Nönnu hlotið mikla athygli, bæði
frá fjölmiðlum og erlendis frá og
reglulega koma gestir erlend-
is frá. Margir blaðamenn koma
frá stærstu fréttamiðlum heims og
sagði Nanna að Hús Sjávarklasans
líktist oft meira flugvelli en hefð-
bundinni skrifstofubyggingu. Jafn-
framt sagði hún að mikill fjöldi
sjávarklasa víða um heim hefur ver-
ið stofnaður að íslenskri fyrirmynd.
Til marks um þetta sagði hún frá
sjávarklasahúsi í Maine í Bandaríkj-
unum sem hlaut nafnið „The Hús.“
Síðastur á mælendaskrá var svo
Þorsteinn Svanur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri vöruþróunar hjá
fyrirtækinu Klöppum og fjallaði
hann um starfrænt vistkerfi sem er
tækninýjung fyrir sjávarútveginn.
Hann sagði frá hugbúnaði sem fyr-
irtæki hans býður upp á sem hjálp-
ar fyrirtækjum að halda utan um
kolefnisspor sín. Hugbúnaðurinn
tengir saman fyrirtæki og hjálp-
ar fyrirtækjunum að draga saman
kolefnissporið úr allri virðiskeðj-
unni.
frg