Morgunblaðið - 14.04.2022, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2022
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við höfum verið að fara yfir athuga-
semdir. Þing kemur aftur saman í
síðustu viku aprílmánaðar og fram til
þess tíma þurfum við að athuga
hvað, ef eitthvað, er hægt að gera,“
segir Birgir Ármannsson, forseti Al-
þingis, spurður hvort hann hafi
hugsað sér að beita sér fyrir lagfær-
ingum á hæfisskilyrðum fyrir kjör-
stjórnarfólk í sveitarstjórnarkosn-
ingum.
Forveri Birgis í embætti, Stein-
grímur J. Sigfússon, lagði fram
frumvarp að nýjum kosningalögum
þar sem ýmsum lögum um kosningar
var rennt saman í einn lagabálk.
Tóku lögin gildi
um áramót.
Þegar á lögin
fór að reyna nú í
undirbúningi
kosninga til sveit-
arstjórna kom í
ljós að hert hæf-
isskilyrði kjör-
stjórna útilokuðu
fjölda reyndra
kjörstjórnar-
manna frá störfum. Hafa afföllin orð-
ið mikil og sannarlega til vandræða í
sumum sveitarfélögum. Þá hefur
verið bent á að ekki er kveðið á um
undanþágu frá þessum ströngu hæf-
isskilyrðum í sveitarfélögum þar
sem óhlutbundnar kosningar eru.
Samkvæmt bókstaf laganna væru
þar allir íbúar vanhæfir til setu í
kjörstjórn. Landskjörstjórn túlkar
lögin þó þannig að hæfisskilyrðin
gildi ekki þar, annars væri verið að
útiloka óhlutbundnar kosningar og
það hafi ekki verið vilji löggjafans.
Eigi að síður getur þessi galli á laga-
setningunni leitt til þess að þeir sem
ekki ná markmiðum sínum í kosn-
ingum freistist til að kæra og fara
jafnvel með mál sitt fyrir dómstóla.
Einfaldar lagfæringar
Bent hefur verið á að hægt væri að
leysa úr þeim vanda sem upp hefur
komið með tiltölulega litlum lagfær-
ingum á lögunum, meðal annars að
skýr undanþága verði sett um að
hæfisskilyrði gildi ekki um óbundnar
kosningar og slakað verði á hæfis-
skilyrðum til fólks sem situr í undir-
kjörstjórnum.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Alþingis fjallaði um málið á fundi í
síðustu viku kallaði til sín gesti. Þór-
unn Sveinbjarnardóttir, formaður
nefndarinnar, sagði eftir fundinn að
niðurstaðan hafi orðið sú að ekki
væri hægt að grípa inn í málið nú
vegna þess að kjörstjórnir hefðu
þegar tekið til starfa og fresturinn
væri að renna út. Hún útilokaði ekki
að málið yrði skoðar frekar að lokn-
um kosningum. Benda má á í þessu
sambandi að enn hefur lítið eða ekk-
ert reynt á kjörstjórnir í sveitar-
félögum þar sem kosið er óbundið.
Kosningalög áfram í skoðun
- Kjörstjórnir teknar til starfa og ólíklegt að hæfisreglum kosningalaga verði breytt
Birgir
Ármannsson
Frá því innrás Rússa í Úkraínu
hófst þann 24. febrúar sl. hafa sam-
tals 747 einstaklingar með tengsl
við Úkraínu sótt um vernd á Ís-
landi. Síðustu sjö daga hefur 121
sótt hér um vernd eða í kringum 17
einstaklingar að meðaltali á dag.
Þetta kemur fram í stöðuskýrslu
landamærasviðs ríkislögreglu-
stjóra, sem birt var í gær. Gert er
ráð fyrir því að fjöldi þeirra sem
flýja stríðsátökin muni halda áfram
að aukast. Einnig segir í skýrslunni
að 217 þúsund rússneskir ríkis-
borgarar hafi farið frá Rússlandi
frá því stríðið hófst, flestir til Finn-
lands og Eistlands.
Þá segir að mál hafi komið upp á
Norðurlöndunum um mansal úkra-
ínskra ríkisborgara, sér í lagi þeg-
ar kemur að vændisstarfsemi.
Að meðaltali koma
17 flóttamenn frá
Úkraínu á dag
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Framkvæmdastjóri Sorpu vonast til
að hægt verði að ráðast í lagfær-
ingar á húsnæði jarðgerðarstöðvar-
innar Gaju í Álfsnesi í næsta mánuði
og að mögulegt verði að hefja
moltugerð að nýju í lok mánaðarins.
Það er þó háð því að samningum við
verktaka hússins og aðra sem komu
að byggingunni ljúki í byrjun maí.
Myglugró greindist í ágúst á síð-
asta ári í klæðningu í lofti þess hluta
húsnæðis Gaju sem hýsir moltu-
gerð. Starfsemin hafði aðeins verið
þar í um ár. Moltugerðin var stöðv-
uð í kjölfarið. Hins vegar hefur met-
angashluti stöðvarinnar verið rek-
inn í óbreyttu formi. Úrgangurinn
er afgasaður þar en er síðan urð-
aður í stað þess að vinnast áfram í
moltu, eins og ætlunin var.
Spurning hvort þrif duga
Jón Viggó Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sorpu, segir að gerð
hafi verið áætlun um að endurræsa
moltugerðina. Fyrsta skrefið sé að
ljúka samningum við Ístak og fleiri
um ábyrgð á gallanum og viðgerðir
og séu viðræður á lokastigi. Vonast
hann til að farsæl lausn fáist í byrj-
un maí.
Myglan var mest í loftklæðningu
úr krosslímdu timbri. Spurður um
viðgerð segir Jón Viggó að auðveld-
ara sé að eiga við málið núna en áð-
ur vegna þess að húsið sé orðið
þurrt. Spurningin snúist um það
hvort hægt sé að þrífa plöturnar og
mála með öðru efni eða hvort skipta
þurfi um efni.
Stefnan er að ráðast í viðgerðir í
maí og hefja moltugerð að nýju í lok
mánaðarins. Fyrsta umferð af moltu
yrði þá tilbúin í ágúst eða septem-
ber.
Stefnt að endur-
ræsingu í maí
- Samningar um viðgerð Gaju á lokastigi
Morgunblaðið/Eggert
Gaja Jarðgerðarstöð Sorpu í Álfs-
nesi tekur senn til starfa á ný.
„Ólafur Tryggason, sem er glöggur
fuglaskoðari og fylgist vel með fugla-
lífinu hér í Eyjum, hringdi í mig og
sagði að það væri einstaklega skraut-
leg önd á Daltjörninni,“ sagði Sig-
urgeir Jónasson, ljósmyndari í Vest-
mannaeyjum. Hann dreif sig strax
inn í Herjólfsdal og sá þar litfagran
mandarínandarstegg. Steggurinn
undi sér vel á tjörninni og við hana.
Sigurgeir vissi ekki til þess að þessi
tegund hafi áður sést á Heimaey.
Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræð-
ingur sagði að mandarínandarsteggir
komi oft hingað á vorin, líkt og svart-
ir svanir og fleiri tegundir. Mand-
arínönd er á stærð við rauðhöfðaönd.
Einnig hafa komið kollur og pör en
ekki er vitað til þess að þau hafi reynt
varp hér. Endurnar eru kínverskar
að uppruna og oft hafðar í andagörð-
um í Bretlandi og víðar. Fuglar sem
flækjast hingað hafa líklega sloppið
úr haldi í þessum görðum.
gudni@mbl.is
Virðulegur mandarínandarsteggur spókaði sig á og við Daltjörn í Herjólfsdal á Heimaey
Litskrúðug
önd, ættuð
frá Kína
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
LÖNG HELGI Í PORTO
WWW.UU.IS HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
VOR Í PORTÚGAL
Komdu með í langa helgarferð til Porto, undir
fararstjórn Helgu Thorberg.
Porto er ein vinsælasta borgin til að heimsækja
í Evrópu um þessar mundir - og af mjög góðri
ástæðu. Töfrandi gamli bærinn við hina fögru Douro
á var settur á heimsminjaskrá UNESCO árið 1996.
Borgin Porto, heimsfræg fyrir púrtvínið sitt, er einn
af fallegustu stöðum í Portúgal til að heimsækja.
Borgarbragurinn er fremur rólegur miðað við aðrar
borgir af svipaðri stærð, verðlag á mat og drykk
hagstætt og fjölmargir veitingastaðir, barir og
kaffihús um alla borg.
BEINT FLUG FRAM OG TIL BAKA, INNRITAÐUR
FARANGUR OG HANDFARANGUR, ÚRVAL 3 OG 4
STJÖRNU HÓTELA MEÐ MORGUNMAT, ÍSLENSK
FARARSTJÓRN, AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI
INNIFALIÐ Í VERÐI:
05. - 08. MAÍ
VERÐ FRÁ 116.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
Fararstjóri
Helga Thorberg
Fararstjóri
Helga Thorberg