Morgunblaðið - 14.04.2022, Blaðsíða 26
inu er drepið létt á dyr og inn á skrif-
stofu Ragnheiðar stígur Þóra Jóns-
dóttir augnlæknir en við deildina á
Ullevål gegna fjórar íslenskar konur
augnlæknastöðum og eru þá Helga
Huld Petersen og Valgerður
Traustadóttir enn ótaldar. Þóra tek-
ur þegar að ræða við Ragnheiði á
norsku um sjúkdómstilfelli nokkurt
og blaðamaður getur ekki á sér setið
að spyrja út í þetta stílbrot þeirra Ís-
lendinga. „Það þýðir ekkert að tala
um þetta á íslensku,“ svarar Þóra um
hæl, „hér er þetta allt á norsku sem
við erum að fást við allan daginn og
yrði tómur misskilningur ef við fær-
um að reyna að koma þessu frá okk-
ur á íslensku okkar á milli.“ Gefur
augaleið.
Segja mætti í bókstaflegri merk-
ingu að starfsemi Ragnheiðar innan
veggja sjúkrastofnunarinnar skeri í
augu, en daglegt amstur er þó mun
margþættara en það. „Ég er með
einn aðgerðadag í viku, það er í dag
[þriðjudag í síðustu viku]. Á morgun
hitti ég svo þá sem ég óperera í dag
og svo er ég með ERG á morgun
líka, það er greining á þeim sem eru
með arfgenga sjónhimnusjúkdóma,
en á mánudögum og föstudögum er
ég akademísk,“ segir Ragnheiður og
minnir þar með á að prófessorstitill-
inn, sem nefndur er í upphafi viðtals-
ins, er ekki bara til skrauts.
„Þá er ég með stúdenta í verklegri
kennslu og rannsóknarvinnu og flyt
fyrirlestra í auditorium sem er hérna
niðri,“ segir hún af prófessorsstöð-
unni sem er 20 prósent staða á papp-
írum en þó 40 prósent í framkvæmd.
Áður en Ragnheiður tók við prófess-
orsstöðunni var hún um árabil dós-
ent og kveðst betur mega við una nú
þar sem prófessorsstaðan bjóði
henni mun rýmri tíma til rannsókna,
þess veigamikla þáttar allrar lækn-
isfræði.
Valdi Noreg vegna skíðanna
Við vendum kvæði okkar í kross-
inn fræga og förum yfir margra ára-
tuga búsetu í Skandinavíu. Ragn-
heiður fluttist til Linköping í Svíþjóð
á níunda áratug aldarinnar sem leið
og á fjórða tug ára síðar er hún hér
enn. „Það var mjög gaman í Linköp-
ing, við vorum svo mörg Íslendingar
þarna í sérnámi í læknisfræði, þetta
var hálfgerð Íslendinganýlenda,“
rifjar Ragnheiður upp af smábænum
sænska sem hún flutti til árið 1988.
„Þarna voru líka makar og börn svo
þetta var býsna mikill hópur með
öllu. Vantaði reyndar alveg fjöllin
þarna, þetta er marflatt,“ segir
augnlæknirinn sem er mikið fyrir
skíðaíþróttina auk þess að stunda
kajakróður, hjólreiðar og aðra úti-
vist.
„Ég er oft heima á Íslandi í fríum.
Bræður mínir hafa oft farið með mig
og strákinn minn í ferðir um hálend-
ið á jeppunum sínum með risadekkj-
um og öllu tilheyrandi.“ Aðal-
vetrarsportið í Linköping hafi vegna
fjallaleysis verið skautar á stöðu-
vötnunum í nágrenninu, svo sem
Roxen og Vättern, nafn þess síð-
arnefnda greypt í minni blaðamanns,
og vafalaust margra miðaldra les-
enda, úr fróðleik landafræðikennslu-
bóka áttunda og níunda áratugarins
um stærstu stöðuvötn Svíþjóðar,
Vänern, Vättern og Mälaren. Hví-
líkar minningar.
„Svo var komið að því að flytja sig.
Mig langaði til einhverrar af höfuð-
borgunum hér, Kaupmannahafnar,
Óslóar eða Stokkhólms, og ég valdi
að lokum Ósló og það var bara með
skíðaiðkun í huga,“ játar Ragnheiður
enda ljóst að danska höfuðborgin
hefði líklega seint haft vinninginn á
þeim vettvangi. Hún skrifaði þó
sjúkrahúsum í öllum borgunum og
heimsótti þær allar en Ósló og Ulle-
vål freistuðu að lokum mest. Þetta
var árið 1999 eftir rúmlega áratug í
Linköping. „Hérna er líka mjög veð-
ursælt og þetta er við sjóinn, bað-
strendur, eyjar og allt til alls,“ segir
Ragnheiður sem fer töluvert um á
gönguskíðum í skóglendinu í ná-
grenni Óslóar.
Sjónhimnuskurðlækni hafi einmitt
vantað við Ullevål fyrir aldamótin,
læknar hafi verið að koma frá ná-
grannalöndunum til nokkurra vikna
dvalar í einu og ófremdarástand ríkt
í þessum efnum. „Svo mér var tekið
opnum örmum. Þá var verið að end-
urnýja alla deildina og aðgerðastof-
urnar og þetta leit mjög vel út,“ rifj-
ar Ragnheiður upp af fyrstu
skrefunum á augndeildinni þar sem
nú starfa 300 manns, þar af tæplega
70 læknar.
Afarnir í málfræði og skógrækt
„Mér finnst ég nú vera komin
hálfa leiðina til Íslands bara með því
að koma hingað, Norðmennirnir eru
mun líkari okkur Íslendingum en
Svíarnir finnst mér,“ segir augn-
læknirinn sem á ekki von á öðru en
að vera áfram í Noregi. „Mínu fólki á
Íslandi finnst fínt að hafa mig hérna í
Noregi, koma til mín og fara á skíði
og í sumarbústaðinn. Ég er með ekta
norska „hyttu“ inni í skógi, án renn-
andi vatns og rafmagns. Dagur bróð-
ir minn féll alveg í stafi þegar hann
kom þangað fyrst og sagði að þetta
hefði hann alltaf dreymt um,“ segir
Ragnheiður og brosir breitt en þau
eru sex systkinin og svo ættfróðum
sé gert til geðs er hún dóttir Braga
Björnssonar lögfræðings og Helgu
Tryggvadóttur sem var læknaritari á
kvensjúkdómadeild Landspítalans
þegar Ragnheiður nam læknisfræði.
Þau eru bæði látin.
Föðurafi Ragnheiðar var dr. Björn
Guðfinnsson prófessor sem fram-
kvæmdi viðamestu rannsókn á ís-
lenskum framburðarmállýskum, sem
enn hefur verið framkvæmd, á ár-
unum 1940 til 1946. Fór Björn um
nær öll skólahverfi landsins og fékk
hátt í 7.000 skólabörn til að lesa
textabrot og skrifaði hjá sér fram-
burðareinkennin því ekkert var upp-
tökutækið. Tryggvi, móðurafi Ragn-
heiðar, Sigtryggsson var hins vegar
bóndi, kennari og hannyrðamaður,
prjónaði hvort tveggja og óf. Hann
fór fjölda skógræktarferða til Nor-
egs og hafði með sér nýjar plöntu-
tegundir til Íslands, varð heiðurs-
félagi Skógræktarfélags Íslands og
lék á lágfiðlu en til eru útvarpsviðtöl
við Tryggva þar sem hann ræðir
varðveislu gamalla dansstefja ís-
lenskra.
Ráðstefna á Íslandi í sumar
„Ég sé aldrei eftir því að hafa valið
þetta fag, það er mjög skemmtilegt
og ekki síður að hafa rannsóknir og
kennslu til að sinna líka. Augnfagið
er mjög heillandi og ótrúlega margt
sem þar hefur gerst á minni starfs-
ævi,“ segir Ragnheiður Bragadóttir,
prófessor og sérfræðingur í sjón-
himnuskurðlækningum við Ullevål-
sjúkrahúsið, að lokum. Hún er á leið
til Íslands með rísandi sól, þar fer í
júní fram ráðstefna um arfgenga
sjónhimnusjúkdóma á vegum sam-
takanna Retina International, sem
Blindrafélag Íslands á aðild að. RI-
samtökin standa reglulega fyrir ráð-
stefnum þar sem leikir og lærðir
koma saman og hlýða á fremstu vís-
indamenn heims greina frá rann-
sóknum sínum og fer ráðstefnan í
sumar fram samhliða Norðurlanda-
ráðstefnu augnlækna sem Ísland
hýsir í ár.
Smiðshöggið er svo rekið á þessa
heimsókn á Ullevål-sjúkrahúsið í
Ósló með skurðaðgerðinni sem tæpt
er á hér að framan og Ragnheiður
framkvæmir á um það bil klukku-
stund, studd aðstoðarfólki og þrí-
víddarskjánum góða, en fleiri myndir
frá aðgerðinni má sjá í vefútgáfu við-
talsins á mbl.is, kjörið veganesti inn í
páskahátíðina.
Námsmannalíf Blankur læknanemi á öndverðum níunda áratug síðustu aldar og færleikurinn valinn í samræmi við
fjárhaginn, austurþýskur Trabant sem forðum var algeng sjón á íslenskum vegum. Tveir strokkar og 26 hestöfl.
Morgunblaðið/Atli Steinn Guðmundsson
Aðgerð Hér meðhöndlar Ragnheiður sjúkling með ellidrer, eða cataract, og
kemur akrýllinsu fyrir í auganu í um klukkustundarlangri aðgerð.
Sveppatínsla Ragnheiður er útivistarkona mikil, stundar gönguskíði, hjól-
reiðar, kajakróður og jöklaferðir á Íslandi, en hér tínir hún matsveppi.
26 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2022
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2021 GMC Denali 2500
Litur: Hvítur/ Svartur að innan (nappa leather).
Æðislegur fjölskyldubíll hlaðinn búnaði. 7 manna bíll.
Hybrid Bensín. Sjálfskiptur. 360 myndavélar.
Collision alert system.
Harman/Kardon hljómkerfi.
Tölvuskjáir í aftursæti.
VERÐ
10.390.000
2022 Chrysler Pacifica Hybrid Limited
Gullfallegur bíll í ábyrgð!
Ekinn 30.000 km. 10 gíra skipting. Auto track millikassi.
Multipro opnun á afturhlera. 35” dekk. Samlitaðir brettakantar.
Sóllúga. Rúllulok á palli. Led bar.
Tveir dekkjagangar á felgum
(sumar- og vetardekk).
VERÐ
13.990.000