Morgunblaðið - 14.04.2022, Blaðsíða 68
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
20%
DÖNSKUM VÖRUM*
Danskir
DAGAR
* Gildir ekki af sérpöntunum eða vörum frá Skovby.
Skannaðu QR-kóðann
til að skoða bæklinginn.
Afgreiðslutími
páskar
14. apríl - Lokað
15. apríl - Lokað
16. apríl - 11-17
17. apríl - Lokað
18. apríl - Lokað
19. apríl - 11-18
Listvinafélagið í
Reykjavík, sem í ár
fagnar 40 ára afmæli
sínu, stendur fyrir
heildarlestri Pass-
íusálmanna í Hörpu-
horni Hörpu á föstu-
daginn langa klukkan
12 til 17. Félagið
skipulagði Passíu-
sálmalesturinn í
Hallgrímskirkju í
Reykjavík um 30 ára skeið en Passíusálmarnir eru höf-
uðverk séra Hallgríms Péturssonar (1614-1674) og
meðal merkustu bókmenntaverka Íslendinga.
Lesari í Hörpu er Halldór Hauksson og félagar úr
Mótettukórnum og kammerkórnum Schola cantorum
syngja milli lestranna undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Gestir geta komið og farið að vild og tónlistaratriði
verða nokkrum sinnum milli lestra yfir daginn.
Listvinafélagið stendur fyrir lestri á
Passíusálmunum í Hörpu á morgun
FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 104. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
FH, KR og Stjarnan eru þau þrjú lið sem enda í fjórða til
sjötta sæti Bestu deildar karla í fótbolta í sumar, sam-
kvæmt spá Morgunblaðsins. Litlu munar á FH og KR og
spurningin er hvort þau eigi möguleika á að ógna þrem-
ur líklegustu liðunum. Stjarnan gæti lent í harðri bar-
áttu um að komast í hóp sex efstu liðanna fyrir úr-
slitakeppnina í haust. »56
Lítill munur er á liðum FH og KR
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Viðskiptavinir Olís á Akranesi hafa
lengi hist í kaffikrók þjónustuhússins
skammt frá höfninni á Akranesi og
þar hefur Gunnar Sigurðsson, um-
boðsmaður Olís á Akranesi frá 1982
og framkvæmdastjóri Olís á Vestur-
landi frá 1992, heilsað upp á gesti og
gangandi undanfarið 41 ár, en nú er
hann hættur störfum. „Ég er rétt að
átta mig á þessu enda er tilfinningin
mjög skrýtin,“ segir hann. „Það vildi
mér til happs að Þórður Ásgeirsson,
þáverandi forstjóri Olís, réð mig til
starfa, og hann og aðrir sem hafa
stjórnað fyrirtækinu síðan hafa
reynst mér sérstaklega vel.“
Gunnar hefur verið áberandi á
Akranesi og víðar undanfarna ára-
tugi, sannkallað andlit Akraness.
Hann er þekktur sem Gunni bakari
enda starfaði hann sem slíkur, var
einn af stofnendum hljómsveitar
Dúmbó og Steina 1961 og hefur látið
mikið til sín taka í félagsmálum, ekki
síst í knattspyrnunni, þar sem hann
lyfti grettistaki og var einn helsti
drifkrafturinn á bak við mikla upp-
byggingu á gullaldartímabili Skaga-
manna á síðasta fjórðungi liðinnar
aldar. Hann var til dæmis formaður
íþrótta- og æskulýðsnefndar, formað-
ur knattspyrnuráðs Akraness og
Knattspyrnufélags ÍA. Þá sat hann í
stjórn Knattspyrnusambands Íslands
1974 til 1989 og hefur m.a. verið
sæmdur heiðurskrossi KSÍ og Knatt-
spyrnusambands Færeyja.
Minnsta félagið varð stærst
Gunnar lét líka mikið til sín taka í
pólitíkinni, var í bæjarstjórn fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í tvo áratugi og
gegndi veigamiklum embættum í ráð-
um og nefndum, var meðal annars
forseti bæjarstjórnar á tveimur kjör-
tímabilum auk þess sem hann var for-
maður Samtaka sveitarfélaga á Vest-
urlandi fyrir nokkrum árum.
„Yfirmenn mínir, Þórður, Óli. Kr.
Sigurðsson, Einar Benediktsson og
Jón Ólafur Halldórsson, hvöttu mig
alla tíð til þess að taka þátt í félags-
málum og hafa gaman af lífinu,“ legg-
ur Gunnar áherslu á. „Ég hef líka
alltaf haft sérstaklega gott starfsfólk,
sem ég hef getað treyst 100%, og það
hefur gengið í störf mín, þegar á hef-
ur þurft að halda.“ Hann leggur
áherslu á að pólitískir andstæðingar
hafi slíðrað sverðin þegar fótboltinn
hafi verið á dagskrá og þar hafi allir
staðið þétt saman að framgangi
íþróttarinnar.
Miklar breytingar hafa verið hjá
Olís á Akranesi síðan Gunnar tók við
stjórninni fyrir um fjórum áratugum.
„Viðskiptin voru nánast engin, þegar
ég byrjaði,“ rifjar hann upp. „Fyrsti
maður sem ég réð var pabbi, Sig-
urður B. Sigurðsson. Hann var bens-
íntittur hjá mér. Þegar mest var voru
hér um 25 manns á launaskrá.“
Gunnar segir að gaman hafi verið
að byggja upp Olís á Akranesi, fyrst á
Suðurgötu og síðan á Esjubraut.
„Þórður studdi mig dyggilega í því
með þeim árangri að við fórum úr því
að vera minnsta olíufélagið á Akra-
nesi í það að vera stærstir.“
Hann bendir líka á að atvinnulífið
sé allt öðruvísi nú en áður, þegar út-
gerðirnar voru í miklum blóma. „Þeg-
ar mest var að gera hjá mér var ég
með fjóra til fimm togara í við-
skiptum en nú er enginn togari gerð-
ur út héðan.“ Hins vegar sé ákveðin
uppbygging í gangi á ýmsum sviðum
og vonir standi til þess að Akranes
nái brátt vopnum sínum á ný. „Ég er
kominn á þann aldur að ég er hættur
að skipta mér af hlutum en vissulega
klæjar mig enn í fingurna að láta
hendur standa fram úr ermum.“
1. apríl Síðasti vinnudagur Gunnars. Frá vinstri: Páll Snævar Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV, Hrefna Bryndís
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sorpurðunar Vesturlands, Anton Ottesen, fyrrverandi oddviti Innri-Akraneshrepps,
Ólafur Sveinsson, atvinnuráðgjafi SSV, Gunnar Sigurðsson, Gísli Gíslason, fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi, og
Jón Gunnlaugsson, fyrrverandi umdæmisstjóri VÍS á Vesturlandi.
Andlit Akraness
- Gunnar Sigurðsson hættur eftir 41 ár hjá Olís á Akranesi