Morgunblaðið - 14.04.2022, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2022
veit ekki hvernig þetta virkar. Það
er eitthvað sem heitir fallhlíf sem er
kastað í sjóinn þegar loðnunótin —
sem er veiðarfærið — er látin fara.
Þá er þessari fallhlíf kastað í sjó og
hún togar veiðarfærið. Ég var á
þessari fallhlíf og annar með mér.
Ég er búinn að gera þetta margoft.
Maður passar sig alltaf á að flækjast
ekki í þetta en einhvern veginn gerð-
ist það, ég veit ekki hvernig. Ég sé
bara allt í einu að fóturinn er kominn
í einn hring og ég næ ekki að losa
mig.“
Svo gerist það sem átti ekki að
gerast – fallhlífinni er sleppt. „Um
leið og búið er að sleppa eru bara
nokkrar sekúndur þar til þetta er
farið og ég fór með. Mér skilst á fé-
laga mínum sem var við hliðina á
mér að ég hafi farið einhverja átta
metra út frá skipinu og fjóra metra
niður.“
Hvað fer í gegnum huga manns í
þessum aðstæðum? „Ég hélt ég væri
bara að fara að deyja.“
Fyrir son sinn
Albert Páll er skyndilega kominn í
ískaldan sjóinn sem umlykur allt en
þar gerist hálfgert kraftaverk. „Ég
næ að losa stígvélið þegar ég er í
sjónum. Um leið og það losnar kem-
ur einhver kraftur, ég hugsaði bara
að ég væri ekki að fara að láta son
minn verða föðurlausan og að ég
væri að fara að bjargast.“ Hann
kemst upp á yfirborðið og nær að
blása lofti í björgunarvestið.
„Félagi minn kallar á alla um borð
að ég hafi farið út í. Það bregðast all-
ir fljótt við, en í raun geta þeir ekki
snúið við. Veiðarfærið er farið út í.
Þeir geta ekkert gert nema að koma
léttabátnum út í og reyna að ná í
mig, en mig byrjar að reka frá
þeim.“
Það hafi verið mikil hending að
hafa verið með skærgulan hjálm að
sögn Alberts Páls þar sem hann hafi
því sést vel í sjónum þrátt fyrir að
birtan hafi verið dvínandi. „Pabbi
minn er skipstjóri þarna og sjokk
fyrir hann að vera uppi í brú þegar
þetta gerist. Hann missir aldrei aug-
un af mér og sér alltaf gula hjálminn í
sjónum þó að ég sé kominn svolítið
langt frá þeim.
Svo er tæki í þessum vestum sem
heitir Sjókall, sem gefur upp stað-
setninguna mína. Sem betur fer eru
nokkur skip í kring og pabbi nær að
leiðbeina færeysku skipi sem heitir
Høgaberg. Það kom til mín og náði að
kasta björgunarhring. Þeir kasta
nokkrum sinnum og ég náði honum
fyrir rest. Það var rosalega góð til-
finning.“
Ólýsanleg tilfinning
Albert Páll segir skipverjana á
Høgaberg hafa verið að búa sig undir
að hífa hann um borð en um það leyti
sér hann félaga sína af Víkingi koma
á fullri ferð á léttabáti skipsins.
Óhætt er að segja það hafa verið mik-
inn létti. „Maður getur eiginlega ekk-
ert lýst þeirri tilfinningu. Þeir eiga
ótrúlega mikið hrós skilið, þeir á Vík-
ingi, hvað þeir voru fljótir að bregð-
ast við og hvað þeir eru í góðri æf-
ingu.“
Hann segir félaga sína hafa sagt
sér að hann hafi verið um 20 mínútur
í sjónum, en telur sjálfur erfitt að
gera sér grein fyrir tímanum.
Tuttugu mínútur í köldum sjónum
er hins vegar ekkert spaug enda
dregur ofkæling verulega úr lífs-
líkum og kveðst Albert Páll ekkert
hafa fundið fyrir kuldanum. „Um leið
og var búið að hífa mig upp úr í létta-
bátinn fór ég að titra. Það var eins og
líkaminn hafi slökkt á allri tilfinn-
ingu, ég bara fann ekki fyrir neinu.
Ég brotna illa, dett úr lið og finn ekki
fyrir neinum áverkum fyrr en ég er
kominn upp og inn í skip.“
Fullur þakklætis
Landhelgisgæslunni barst á ní-
unda tímanum hið umrædda kvöld
beiðni um aðstoð vegna skipverja
sem féll útbyrðis og var tafarlaust
þyrla send á vettvang. Eins voru kall-
aðar út sjóbjörgunarsveitir á vegum
Slysavarnafélagsins Landsbjargar á
Suðurnesjum. „Þyrlan sækir mig og
fer með mig á spítalann í Fossvogi og
ég er þar eina nótt og svo fluttur upp
á Skaga. Það átti að gera aðgerð á
mér en það var ekki hægt strax út af
því hvað þetta var illa farið og bólgið.
Þannig að ég þurfti að bíða í tvær vik-
ur eftir aðgerð.“ Albert Páll fór í að-
gerðina fyrir um viku og hefur hún
tekist vel, en það mun taka tíma að
ná fullum bata.
Brim, sem gerir Víking út, bauð
um leið áfallahjálp vegna slyssins og
segir hann þá aðstoð hafa komið sér
vel. „Þetta eru skrýtnar hugsanir
sem koma stundum. Allt þetta ef og
hefði. Maður er þakklátur fyrir að
ekki fór verr. Þetta var bara
óheppni.“
Undravert þykir að eins vel fór og
raun ber vitni. „Einhvern veginn
gekk allt eins og það átti að ganga –
allir þekktu sitt hlutverk. Maður er
bara þakklátur fyrir lífið og þakk-
látur skipsfélögunum mínum. Ég
þakka öllu þessu fólki sem kom að
þessu. Strákunum á Víkingi, á Høga-
berg, Gæslunni og fjölskyldunni
minni sem hefur verið mikill stuðn-
ingur,“ segir Albert Páll.
Spurður hvort líkur séu á að hann
snúi aftur á sjó má merkja áberandi
hik. „Ég sé mig ekki fara á sjóinn aft-
ur eins og staðan er núna. Fjöl-
skyldan mín gæti örugglega ekki séð
það fyrir sér heldur,“ svarar hann að
lokum.
Þakklátur fyrir að vera á lífi
- Bjargaðist eftir að hafa togast af loðnuskipi með fallhlíf veiðarfæranna - Talinn hafa verið 20
mínútur í köldum sjónum - Þakkar skipsfélögunum á Víkingi AK-100 fyrir skjót viðbrögð
Fjölskylda Albert Páll Albertsson gerði hlé á sjómennskunni eftir að hann
ásamt Emilíu Halldórsdóttur eignaðist soninn Albert Dór Albertsson. Hann
segir soninn hafa veittt sér kraft til að komast lífs af.
VIÐTAL
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Skagamaðurinn og sjómaðurinn Al-
bert Páll Albertsson þakkar fyrir að
vera á lífi eftir eina erfiðustu lífs-
raun sem lagst getur á íslenskan sjó-
mann – að lenda meiddur útbyrðis í
köldum sjó þegar myrkrið er að
skella á. Hann segir skjótum við-
brögðum skipsfélaga sinna og ólýs-
anlegum lífskrafti að þakka að betur
fór en á horfðist.
Loðnuvertíðin 2021/2022 var ein
sú stærsta í tvo áratugi og réð hinn
26 ára gamli Albert Páll sig á Víking
AK-100 í janúar. Þetta var ekki í
fyrsta sinn sem hann fór á sjó og var
hann að snúa aftur eftir að hafa gert
hlé á sjómannslífinu um stund þegar
hann ásamt unnustu sinni, Emilíu
Halldórsdóttur, eignaðist son.
Undir lok mars var farið að líða að
síðustu dögum vertíðarinnar og var
Víkingur á veiðum úti fyrir Sandvík
á Reykjanesi þann 20. mars. Í þess-
um túr var Albert Páll að gegna
starfi háseta þrátt fyrir að vera –
eins og faðir hans Albert Sveinsson,
skipstjóri á Víkingi – menntaður
stýrimaður.
Það sem mátti ekki gerast
Líða var farið á kvöld og komið
rökkur þennan örlagaríka dag.
Loðnuveiðarnar höfðu orðið fyrir
töluverðum truflunum allan vet-
urinn vegna stöðugra lægða en
þennan dag var kalt en ekki mikill
vindur og ölduhæðin ekkert til að
tala um. Frekar góð skilyrði til
veiða. Við þessar aðstæður var kjör-
ið að koma loðnunótinni í sjóinn.
Albert Páll var að sinna hefð-
bundnum störfum sem hann þekkir
vel. „Þetta er svolítið erfitt að út-
skýra hvað gerðist, fyrir fólki sem
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
MiniMax Ø: 33 cm, H: 50 cm Verð 159.900,-
Large Ø: 33 cm, 1688 cm2 Verð 249.900,-
X-Large Ø: 61 cm, 2919 cm2 Verð 359.900,-
BIG GREEN EGG
KAMADO KERMAMIK GRILL
Þú getur gert allt
á Egginu – grillað,
bakað, steikt, gufusoðið
og reykt.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum