Fréttablaðið - 13.08.2022, Qupperneq 2
Tólf liggja í valnum
Formaður Landsbjargar telur
að björgunarsveitarfólk sé
komið út fyrir verksvið sitt
með gæslu á dagvinnutíma á
gosstöðvunum í Meradölum.
Ekki megi ganga á úthald
þeirra fyrir haustið.
kristinnhaukur@frettabladid.is
ELDGOS Otti Rafn Sigmarsson, for-
maður Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar, segir að björgunarsveitirnar
séu komnar út fyrir sitt verksvið við
að sinna gæslu við gosstöðvarnar í
Meradölum. Neyðarsjónarmið eigi
ekki lengur við og því sé vafasamt
að ætlast til þess að sjálf boðaliðar
beri hitann og þungann af gæslu
ferðamannastaðar.
„Þegar eldgos hófst í Geldingadöl-
um í mars á síðasta ári töldu menn
að gosið myndi endast í nokkra
daga. En tíminn leið og gosið varði að
lokum í sex mánuði,“ segir Otti Rafn.
„Nú þegar byrjað er að gjósa að nýju
veit auðvitað enginn hve lengi það
mun vara en fræðimenn hafa sagt
að líklega muni þessi vá hanga yfir
okkur næstu árin.“
350 björgunarsveitarmenn í 35
mismunandi félögum hafa tekið
þátt í verkefnum tengdum eldgos-
inu í Meradölum sem hófst 3. ágúst
síðastliðinn. Fram hefur komið í
fréttum að björgunarsveitarfólk
fái ekki greitt fyrir gæslustörf á gos-
stöðvunum. Sveitirnar sjálfar hafa
hins vegar fengið greiðslur sam-
kvæmt samningi til að dekka fastan
kostnað í ákveðinn tíma. Svo sem
fyrir álag á tæki og búnað.
Samkvæmt Otta Rafni eru verk-
efnin misjöfn, en flest snúa þau að
almennri gæslu og aðstoð í kringum
gosstöðvarnar. Önnur verkefni snúa
að innviðauppbyggingu og aðstoð
við vísindasamfélagið.
Otti Rafn bendir á að þúsundir
sjálf boðaliða björgunarsveitanna
um allt land séu klárar í hvaða verk-
efni sem er. Styrkleikinn liggi aðal-
lega í tvennu, hvers kyns slysavörn-
um annars vegar og leit og björgun
hins vegar. Inn á milli taki björg-
unarsveitir að sér ýmis verkefni þar
sem stjórnkerfi þeirra, þjálfun og
tækjakostur komi að góðum notum
og eru eldgosin á Reykjanesi einhver
bestu dæmin um það.
„Nú þegar ljóst er að ekki er lengur
neyðarástand í kringum gosstöðv-
arnar, innviðir ekki í bráðri hættu
og staðurinn orðinn að einum fjöl-
sóttasta ferðamannastað landsins
er tímabært að staldra við og skoða
hvað tekur við og hversu lengi björg-
unarsveitir munu standa vaktina,“
segir Otti Rafn. „Því velti ég fyrir
mér hvort það sé ásættanlegt að
sjálfboðaliðar, sem í frítíma sínum
æfa og þjálfa sig til þess að bregðast
við útköllum hvenær sem er sólar-
hringsins, beri hitann og þungann á
slíkum ferðamannastað?“
Þegar verkefnið sé að standa
vaktir á dagvinnutíma dag eftir dag
séu björgunarsveitirnar sennilega
komnar út fyrir verksvið sitt. Ein-
hverjir aðrir þurfi að taka við kefl-
inu og tryggja að ekki verði langt
gengið á úthald björgunarsveitar-
fólks fyrir haustið.
Otti Rafn telur að björgunar-
sveitirnar geti tekið að sér smærri og
tímabundin verkefni, þegar slysin
verða og einhver týnist og að miðla
upplýsingum á síðunni Safetravel.
Aðrir, til dæmis lögregla, almanna-
varnir, landverðir eða þjóðgarðs-
verðir, þurfi að taka við gæslunni.
„Við erum nefnilega alveg til í
að vera með og taka þátt en ef við
hugum ekki strax að einhverjum
til þess að taka við af okkur, í dag-
legum gæslustörfum, þá verður
enginn til þess að taka þátt þegar
stóra útkallið kemur,“ segir hann. n
Björgunarsveitir vilja að
aðrir taki við gosgæslunni
350 björgunarsveitarmenn hafa komið að verkefnum í Meradölum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Otti Rafn
Sigmarsson,
formaður
Landsbjargar
birnadrofn@frettabladid.is
VEÐUR „Það gæti jafnvel farið svo
að hann hangi þurr í borginni um
helgina,“ segir Óli Þór Árnason,
veðurfræðingur hjá Veðurstofu
Íslands, spurður um helgarveðrið í
borginni. Óvenju vætusamt hefur
verið í Reykjavík í sumar og mældist
úrkoma í borginni 72,6 millimetrar
í júlí, það er 45 prósentum umfram
meðallag.
Óli segir að hiti gæti náð 14-15
stigum þegar mest lætur í Reykjavík
í dag. „En það verður sunnanátt og
sunnanáttir eru oftast með mikinn
raka í sér, því er ólíklegt að það hald-
ist alveg þurrt. En ég hugsa að marg-
ir borgarhlutar fái enga úrkomu.“
Þá segir Óli líklegt að sunnu-
dagurinn verði meira og minna
þurr, þó gæti komið síðdegisskúr.
„En þá verður norðanátt og í henni
falla skúrir síður nær ströndinni og
frekar í efstu byggðum.“ n
Gæti hangið þurr
um helgina
Borgarbúar bíða enn eftir sumrinu.
Karlmaður á fertugsaldri hóf skotárás á götum Cetinje í Svartfjallalandi í gær. Hann féll svo sjálfur í skotbardaga við lögreglu. Talið er að skotmaðurinn hafi
verið í uppnámi vegna fjölskylduerja þegar hann hóf árásina. Umfangsmiklar aðgerðir lögreglu stóðu yfir á vettvangi fram eftir kvöldi í gær en á myndinni
má sjá vettvangsrannsakanda með skotvopn mannsins, riffil pakkaðan inn í brúnan pappír. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
adalheidur@frettabladid.is
BANDARÍKIN Hús leit sem gerð var á
heimili Donalds Trump, fyrr verandi
for seta Banda ríkjanna, síðast-
liðinn mánu dag er liður í rann sókn
banda rísku al ríkis lög reglunnar
sem lýtur meðal annars að brotum
gegn réttvísinni og brotum gegn
njósna lög gjöf landsins sem bannar
af hendingu gagna er varða þjóðar-
öryggi og geta skaðað Banda ríkin
eða gagnast er lendum ó vinum
ríkisins.
Banda ríska dag blaðið New York
Times greindi frá þessu í gær og
vísar í hús leitar heimild al ríkis lög-
reglunnar.
Meðal gagna sem hald lögð
voru í hús leitinni eru gögn merkt
sem háleynileg ríkis leyndar mál,
sem ein göngu má skoða í þar til
gerðum öruggum herbergjum
innan opin berra stofnana.
Þá greindi Wall Street Journal frá
því að í hús leitinni hefði verið lagt
hald á um tuttugu kassa af skjöl-
um í ellefu f lokkum, þar á meðal
náðunar bréf Trumps fyrir ráðgjafa
sinn Roger Stone og upp lýsingar um
Emmanuel Macron, for seta Frakk-
lands. n
Rannsaka brot á njósnalöggjöfinni
Donald Trump, fyrrverandi for-
seti Bandaríkjanna, er síður en svo
ánægður með aðgerðir lögreglu.
2 Fréttir 13. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ