Fréttablaðið - 13.08.2022, Side 26
fundist svo f ljótt, heldur ekki
síður í ljósi þess sem gerðist eftir
að hann hafði verið hífður upp í
þyrluna.
Stuttu eftir að þyrlan lagði af stað
af slysstað fór hann í hjartastopp, af
ástæðum sem rekja má til mikillar
ofkælingar og innvortis blæðinga.
Líkamshiti hans mun að líkindum
hafa verið kominn niður fyrir 25
gráður. Hann var því hnoðaður í
hálfa klukkustund í þyrlunni – og
hálfa þriðju klukkustund eftir að
hann komst undir læknishendur.
Það staðfestir Tómas Guðbjarts-
son, hjarta- og lungnaskurðlæknir,
sem tók á móti Daniel þegar þyrla
Landhelgisgæslunnar lenti með
hann við bráðamóttökuna í Foss-
vogi. Fréttablaðið hafði frumkvæði
að því að Daniel og Sierra veittu
Tómasi leyfi til að segja frá einstak-
lega flókinni lífsbjargarmeðferð sem
Daniel gekkst undir á næstu dögum
og urðu þau góðfúslega við því.
„Þetta tilfelli er með flóknari fjöl-
áverkatilfellum sem meðhöndluð
hafa verið á Íslandi,“ rifjar Tómas
upp og bætir því við að ótrúlegt
megi heita að sjúklingurinn hafi
lifað af svo mikinn áverka og ofkæl-
ingu.
„Í stuttu máli þá hryggbrotnaði
hann við fallið þannig að hrygg-
urinn fór alveg í sundur um mið-
bikið og olli áverka á mænuna,
lömun fyrir neðan mitti, en ósæðin
hélt, sem betur fer, því ella hefði
hann ekki lifað áverkann af,“ segir
Tómas. „Hryggáverkanum fylgdu
þó miklar innvortis blæðingar, aðal-
lega í brjóstholi, en einnig í heila og
kviðarholi.“
Tómas segir að það hafi skipt
sköpum fyrir lífsbjörgunina að
Daniel komst í færanlegt ECMO-
tæki í Fossvogi, sem er hjarta- og
lungnavél sem getur stutt við bæði
þessi lífsnauðsynlegu líffæri svo
vikum skiptir þegar þau bila alvar-
lega.
Daniel hafi svo verið fluttur með
ECMO-dælunni með sérútbúnum
flutningabíl yfir á Landspítalann
við Hringbraut og lagður þar inn á
gjörgæsludeildina þar sem sjúkl-
ingum er sinnt eftir opnar hjarta-
aðgerðir. Þar hafi hann verið hit-
aður hægt og rólega upp um hálfa
aðra til tvær gráður á klukkustund
– og hjartað svo stuðað aftur í takt
þegar hann hitnaði í 28 gráður.
Hjartað skyndilega í gang
„Hjartað var nokkra daga að taka
við sér eftir hnoðið og dróst sára-
lítið saman fyrstu dagana,“ segir
Tómas, „en hrökk svo skyndilega
í gang á fjórða sólarhring,“ bætir
hann við. Lungun hafi einnig jafnað
sig það vel að hægt hafi verið að taka
Daniel úr ECMO-dælunni og halda
áfram meðferð hans í öndunarvél,
svo og nýrnavél, vegna bágs ástands
nýrnanna.
En meðferðin varð áfram óhemju
f lókin eftir því sem lífsbjörginni
vatt fram. „Það þurfti að opna
vöðvahólf á báðum ganglimum og
á hægri handlegg vegna bjúgs sem
kom eftir mikla útlimaáverka þegar
hann lenti í urðinni, svo og vegna
kælingar,“ útskýrir Tómas, en afleið-
ingin var ekki umflúin, það komst
drep í báða fótleggina. „Það varð því
að aflima báða fætur, en hægri hönd
bjargaðist, líkt og sú vinstri,“ bætir
Tómas við.
Hr yg g ur inn haf i svo ver ið
spengdur og sjúklingurinn fluttur
í öndunarvél um borð í f lugvél til
Bandaríkjanna til frekari meðferðar
og endurhæfingar, tæplega fjórum
vikum eftir innlögn á Landspítala.
Tómas er ekki í nokkrum vafa um
að meðferðin sem beitt var í hjarta-
og lungnavélinni í þessu tilviki hafi
bjargað lífi Daniels. Verkefnið hafi
þó verið óhemju flókið vegna mik-
illa áverka og innri blæðinga.
„En líkamskælingin á slysstað var
þó jákvæð að því leyti að heilaskaði
varð minni þrátt fyrir nokkurra
klukkustunda hnoð,“ segir Tómas
og minnir á að við 37 gráðu líkams-
hita verði óafturkræfur heilaskaði
Ég sá strax að hann var
með meðvitund en
kaldur mjög og þjáður,
en augljóst var að
hann var stórslasaður.
Kári
Brynjólfsson
Frá vettvangi
slyssins 17. mars
í ár. Á milli 80 og
100 björgunar-
sveitarmenn
tóku þátt í
leitinni og björg-
uninni, en allar
sveitir í Eyjafirði
voru kallaður út
vegna atviksins.
Þetta tilfelli er með
flóknari fjöláverka
tilfellum sem með
höndluð hafa verið á
Íslandi.
Tómas
Guðbjartsson
Daniel var í
lögfræðinámi
áður en hann
hélt til Íslands,
en það nám
er í uppnámi
eftir heilaskaða
sem hann hlaut
í slysinu og eftir-
mál þess.
MYND/AÐSEND
eftir fjórar mínútur. Hann vekur
líka athygli á því að aðeins einn
sjúklingur á Íslandi hafi verið með-
höndlaður með lægri líkamshita í
umræddri vél, en frá 1991 hafa yfir
fimmtíu sjúklingar verið meðhöndl-
aðir hér á landi með ECMO-dælu.
Heilbrigðisstarfsfólk Landspítala
sé stolt af því að kunna hér til verka.
Landspítali sé ein minnsta ECMO-
miðstöð í heimi en geti engu að síður
boðið upp á jafn flókna meðferð í
ekki stærra landi. Þar vegi þyngst
að teymið sem komi að meðferðinni
hafi fengið þjálfun í henni á stærstu
sjúkrahúsum erlendis, þar sem til-
felli séu langtum fleiri en hér á landi.
„ECMO-meðferð er með f lókn-
ustu meðferðum sem beitt er á
Landspítala og jafnframt sú dýr-
asta,“ útskýrir Tómas. „Tæplega
helmingur sjúklinga lif ir með-
ferðina af, sem gæti í fyrstu virst
lítið, en er hátt hlutfall þegar haft
er í huga að sjúklingarnir eru allir
við dauðans dyr þegar gripið er til
meðferðarinnar, en þetta er þeirra
síðasta hálmstrá,“ bætir hann við.
Í þessu tilviki hafi miklu máli
skipt hversu vel á sig sjúklingur-
inn var kominn, enda í afar góðri
æfingu. „Eins vó öf lugur stuðn-
ingur fjölskyldu hans mjög þungt,
ekki síst af hálfu eiginkonu hans,
sem er hjúkrunarfræðingur. Án
baráttuvilja þeirra hefði þetta aldr-
ei gengið, enda mörg ljón á ójöfnum
veginum,“ segir Tómas.
Þetta var bara hræðilegt
Sierra segist hafa verið í algeru áfalli
þegar hún áttaði sig á alvarleika
slyssins og afleiðingum þess fyrir
eiginmann sinn. Í fyrstu hafi hún
þó haldið í vonina um að ekki hefði
svo illa farið, enda frétti hún af því
að Daniel hefði getað talað þegar
leitarmenn fundu hann.
En svo hafi allur sári veruleikinn
blasað við þegar suður á spítalann
var komið. „Ég vissi ekki af því að
hann væri að berjast fyrir lífi sínu
fyrr en ég kom þangað,“ segir hún.
„Þetta var bara hræðilegt. Ég var
alveg slegin yfir þessu,“ bætir hún
við.
Í sama streng tekur Daniel, en það
hafi verið hrikalegt áfall fyrir hann
þegar honum varð ljóst hvernig
komið væri fyrir honum. „Það tók
mig þó nokkurn tíma að átta mig
á þessu nýja hlutskipti mínu og
hvaða afleiðingar aflimun, lömun
og heilaskaði hefði fyrir mig,“ bætir
hann við.
Sierra segir augljóst að fjölda-
margar takmarkanir á venjubundnu
lífi blasi við eiginmanni sínum, en
endurhæfingin á síðustu mánuðum
hefur gengið einstaklega vel – og
auðvitað vonist þau bæði eftir því
að Daniel endurheimti sem mest af
líkamlegri og andlegri getu sinni á
komandi árum og hann geti fyrir
vikið orðið eins sjálfstæður í sínu
daglega lífi og mögulegt er.
„Núna einbeiti ég mér einkum að
því að læra að lesa upp á nýtt,“ segir
Daniel, en heilaskaðinn af völdum
slyssins varð mestur í lesstöð heil-
ans. „Ég held bara í vonina um að
ég muni endurheimta þann mikil-
væga hæfileika að geta lesið,“ bætir
hann við.
Að lokum vilja hjónin koma á
framfæri kærum þökkum til allra
þeirra sem komu þeim til bjargar
á Íslandi, leitarmönnunum, björg-
unarteyminu, hjúkrunarfræðing-
unum og læknunum sem gerðu
ekkert minna en kraftaverk.
„Þið sinntuð okkur öll af svo
mikilli ástúð,“ segir Sierra og minn-
ist þar sérstaklega á viljann til að
gera sitt besta. „Við fengum ein-
staka umönnun,“ segir hún enn
fremur, full þakklætis og biður fyrir
kærar kveðjur til allra sem komu að
málum.
En munu þau heimsækja Ísland
aftur?
„Kannski. En fyrst verðum við að
vinna úr öllum þeim tilfinningum
sem rótað hafa upp hugum okkar
frá því ógæfan reið yfir. En kannski
seinna,“ segir Sierra Hund. n
26 Helgin 13. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ