Fréttablaðið - 13.08.2022, Side 51
Skóla- og frístundasvið
Iðjuþjálfi/þroskaþjálfi
óskast til starfa í Hólabrekkuskóla
Mikil gróska einkennir skólaþróun í Hólabrekkuskóla og er áhersla lögð á skapandi starf, fjölbreytta gagnreynda kennsluhætti
og uppbyggileg samskipti. Leiðarljós skólans er virðing, gleði og umhyggja.
Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með um 500 nemendur og 70 starfsmenn.
Ef þú ert framsækinn iðjuþjálfi/þroskaþjálfi og hefur brennandi áhuga á skólastarfi þá viljum við í Hólabrekkuskóla endilega
fá þig til liðs við okkur.
Fríðindi í starfi fyrir starfsfólk Reykjavíkurborgar eru m.a. bókasafnskort og frítt á söfn með menningarkortinu, heilsuræktar-
styrkur og frítt í sund með ÍTR kortinu.
Starfshlutfall er 100% og um ótímabundna ráðningu er að ræða. Umsóknarfrestur er til 19 ágúst.
Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, auk annarra gagna er málið varðar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lovísa Guðrún Ólafsdóttir, skólastjóri Hólabrekkuskóla,
lovisa.gudrun.olafsdottir@rvkskolar.is í síma 411 7550 / 6648236
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón með kennslu/þjálfun nemenda.
• Stýra teymisvinnu og teymisfundum vegna nemenda,
ábyrgð á samvinnu við foreldra og fagaðila innan og utan
skólans í samvinnu við kennara.
• Skipuleggja sjónræn kennslugögn fyrir nemendur og
kennara, útbúa kennslu- og þjálfunargögn og fylgja eftir
settum markmiðum.
• Félagsfærniþjálfun – ,,leikjanámskeið“ fyrir nemendahópa.
• Ábyrgð á áætlunargerð s.s. einstaklingsnámskrárgerð.
• Veita faglega ráðgjöf innan skólans.
• Önnur afmörkuð verkefni innan skólans.
Hæfniskröfur
• Leitað er að jákvæðum og metnaðarfullum fagmanni.
• Starfsleyfi til að starfa sem iðjuþjálfi/þroskaþjálfi.
• Framúrskarandi lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt samevrópska
matskvarðanum.
• Stundvísi og samviskusemi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Vilt þú gegna lykilhlutverki í framgangi stefnu
og gæðamála innan Háskóla Íslands?
Háskóli Íslands leitar að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi í fullt starf stefnu- og
gæðastjóra skólans. Um nýtt starf er að ræða sem ætlað er að þróa og styðja við stefnumiðaða
stjórnunarhætti og gæðamenningu innan skólans. Starfið heyrir beint undir rektor og er
unnið í nánu samstarfi við aðstoðarrektor kennslumála og þróunar og aðra lykilstjórnendur.
Verkefni stefnu- og gæðastjóra felast m.a. í undirbúningi og eftirfylgni stefnuáætlana og að
tryggja að ákvarðanir og áætlanagerð stuðli að því að þeim markmiðum, sem sett hafa verið
fyrir HÍ, verði náð fram. Stefnu- og gæðastjóri ber jafnframt ábyrgð á stjórnunarkerfi þeirra
vottuðu gæðakerfa, sem tekin hafa verið upp við háskólann, og að þróa verklag sem samþættir
umbætur sem sprottnar eru úr margs konar farvegi og kröfum innan og utan skólans.
Hæfniskröfur
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er skilyrði
· Þekking og/eða reynsla af stefnumótun, stefnumiðuðu starfi, breytingastjórnun eða gæðastarfi
· Framúrskarandi samskiptahæfni
· Leiðtogafærni, lausnamiðað viðhorf og stjórnunarreynsla
· Þekking á háskólaumhverfi og/eða reynsla af störfum í slíku umhverfi er kostur
· Færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku
Umsóknarfrestur er til og með 5. september 2022.
Starfshlutfall er 100% og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Sótt er um
starfið á www.hi.is eða www.starfatorg.is. Nánari upplýsingar veitir Steinunn Gestsdóttir,
aðstoðarrektor kennslumála og þróunar, steinuge@hi.is eða í síma 525 4047.
Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík, +354 525 4000, hi@hi.is, www.hi.is
Stefnu- og gæðastjóri
Háskóla Íslands
Þátttakandi
í íslensku
atvinnulífi
í meira en
50 ár