Fréttablaðið - 13.08.2022, Síða 51

Fréttablaðið - 13.08.2022, Síða 51
Skóla- og frístundasvið Iðjuþjálfi/þroskaþjálfi óskast til starfa í Hólabrekkuskóla Mikil gróska einkennir skólaþróun í Hólabrekkuskóla og er áhersla lögð á skapandi starf, fjölbreytta gagnreynda kennsluhætti og uppbyggileg samskipti. Leiðarljós skólans er virðing, gleði og umhyggja. Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með um 500 nemendur og 70 starfsmenn. Ef þú ert framsækinn iðjuþjálfi/þroskaþjálfi og hefur brennandi áhuga á skólastarfi þá viljum við í Hólabrekkuskóla endilega fá þig til liðs við okkur. Fríðindi í starfi fyrir starfsfólk Reykjavíkurborgar eru m.a. bókasafnskort og frítt á söfn með menningarkortinu, heilsuræktar- styrkur og frítt í sund með ÍTR kortinu. Starfshlutfall er 100% og um ótímabundna ráðningu er að ræða. Umsóknarfrestur er til 19 ágúst. Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, auk annarra gagna er málið varðar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Lovísa Guðrún Ólafsdóttir, skólastjóri Hólabrekkuskóla, lovisa.gudrun.olafsdottir@rvkskolar.is í síma 411 7550 / 6648236 Helstu verkefni og ábyrgð • Umsjón með kennslu/þjálfun nemenda. • Stýra teymisvinnu og teymisfundum vegna nemenda, ábyrgð á samvinnu við foreldra og fagaðila innan og utan skólans í samvinnu við kennara. • Skipuleggja sjónræn kennslugögn fyrir nemendur og kennara, útbúa kennslu- og þjálfunargögn og fylgja eftir settum markmiðum. • Félagsfærniþjálfun – ,,leikjanámskeið“ fyrir nemendahópa. • Ábyrgð á áætlunargerð s.s. einstaklingsnámskrárgerð. • Veita faglega ráðgjöf innan skólans. • Önnur afmörkuð verkefni innan skólans. Hæfniskröfur • Leitað er að jákvæðum og metnaðarfullum fagmanni. • Starfsleyfi til að starfa sem iðjuþjálfi/þroskaþjálfi. • Framúrskarandi lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. • Íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt samevrópska matskvarðanum. • Stundvísi og samviskusemi. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Vilt þú gegna lykilhlutverki í framgangi stefnu og gæðamála innan Háskóla Íslands? Háskóli Íslands leitar að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi í fullt starf stefnu- og gæðastjóra skólans. Um nýtt starf er að ræða sem ætlað er að þróa og styðja við stefnumiðaða stjórnunarhætti og gæðamenningu innan skólans. Starfið heyrir beint undir rektor og er unnið í nánu samstarfi við aðstoðarrektor kennslumála og þróunar og aðra lykilstjórnendur. Verkefni stefnu- og gæðastjóra felast m.a. í undirbúningi og eftirfylgni stefnuáætlana og að tryggja að ákvarðanir og áætlanagerð stuðli að því að þeim markmiðum, sem sett hafa verið fyrir HÍ, verði náð fram. Stefnu- og gæðastjóri ber jafnframt ábyrgð á stjórnunarkerfi þeirra vottuðu gæðakerfa, sem tekin hafa verið upp við háskólann, og að þróa verklag sem samþættir umbætur sem sprottnar eru úr margs konar farvegi og kröfum innan og utan skólans. Hæfniskröfur · Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er skilyrði · Þekking og/eða reynsla af stefnumótun, stefnumiðuðu starfi, breytingastjórnun eða gæðastarfi · Framúrskarandi samskiptahæfni · Leiðtogafærni, lausnamiðað viðhorf og stjórnunarreynsla · Þekking á háskólaumhverfi og/eða reynsla af störfum í slíku umhverfi er kostur · Færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku Umsóknarfrestur er til og með 5. september 2022. Starfshlutfall er 100% og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Sótt er um starfið á www.hi.is eða www.starfatorg.is. Nánari upplýsingar veitir Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslumála og þróunar, steinuge@hi.is eða í síma 525 4047. Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík, +354 525 4000, hi@hi.is, www.hi.is Stefnu- og gæðastjóri Háskóla Íslands Þátttakandi í íslensku atvinnulífi í meira en 50 ár
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.