Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.08.2022, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 13.08.2022, Qupperneq 70
… ég held að það sé siðferðisleg skylda okkar að vera hér, veita þjónustu og halda áfram mannúðar­ aðstoð. Dr. Aleksandar Sasha Bodiroza Dr. Sasha tók við starfi full­ trúa Mannfjöldasjóðs Sam­ einuðu þjóðanna í Afganistan á umbrotatímum. Hann segir það aldrei hafa komið til greina að yfirgefa landið þrátt fyrir valdatöku Talibana. Dr. Aleksandar Sasha B o d i r oz a , f u l lt r ú i Mannfjöldasjóðs Sam­ einuðu þjóðanna í Afganistan (UNFPA), heimsótti Ísland í sumar. Dr. Sasha fundaði með íslenskum ráða­ mönnum og fulltrúum SÞ hér á landi ásamt Pernille Fenger, fram­ kvæmdastjóra UNFPA á Norður­ löndunum. Dr. Sasha tók við starfi fulltrúa UNFPA í Afganistan í janúar 2021, þegar vestræn herlið voru í óðaönn að undirbúa brottflutning úr land­ inu eftir áratuga hersetu, en hann gegndi áður sama starfi í Egypta­ landi. Spurður um hvernig það hafi verið að taka við starfinu á slíkum umbrotatímum segir Sasha: „Þegar maður er opinber starfs­ maður Sameinuðu þjóðanna þá veit maður nákvæmlega hvað maður er að fara út í. Fyrir mig var það aldrei neitt vandamál. Þegar allt kemur til alls þá er markmið UNFPA að útvega lífsnauðsynlega þjónustu fyrir konur og stúlkur, þannig að það var aðalhvatinn fyrir mig.“ Ferðafrelsi jókst en frelsi dvínaði 15. ágúst 2021, rúmu hálfu ári eftir að dr. Sasha tók við starfinu í Afganistan, í sömu mund og síðustu bandarísku hermennirnir yfirgáfu landið, veltu hersveitir Talibana afgönsku ríkisstjórninni úr sessi og tóku völd í landinu. Síðan þá hafa Talibanar myndað sína eigin byltingarstjórn sem enn hefur ekki verið viðurkennd af neinum erlendum ríkjum. Dr. Sasha líkir Afganistan fyrir 15. ágúst 2021 og Afganistan eftir 15. ágúst 2021 við tvö gjörólík lönd. „Strax og ég kom í fyrra þá ferð­ aðist ég um landið og heimsótti þónokkur héruð. Því fylgdu margar áskoranir. Ég hélt mig innan marka þéttbýlissvæða, það er stórra borga, sem var að vissu leyti svekkjandi, sérstaklega í ljósi þess að meirihluti þjónustusvæða UNFPA eru í dreif­ býli. Eftir 15. ágúst gátum við fengið aðgang að dreifbýlissvæðum, þann­ ig að ferðafrelsi jókst á sama tíma og almennt frelsi dvínaði fyrir fólk í Afganistan.“ Pólitíska ástandið mjög flókið Vestræn ríki hafa hingað til þver- neitað að eiga í diplómatískum samskiptum við Talibana. Er þetta að breytast? „Þetta er augljóslega pólitískt mál sem ég myndi síður vilja tjá mig um. Það sem við (UNFPA) bjóðum upp á er lífsnauðsynleg þjónusta. Í ástandi þar sem allir aðrir hafa yfirgefið landið erum við þau einu sem erum enn til staðar. Við erum hér enn og höldum áfram umboði okkar, að veita íbúum Afganistan þjónustu.“ Dr. Sasha viðurkennir þó að póli­ tíska ástandið í landinu sé augljós­ lega mjög flókið. „Við búumst ekki við því núna, og sennilega ekki í nánustu framtíð, að fjöldi alþjóðlegra þátttakenda muni breytast á næstunni. Ef við horfum á samsetningu byltingarstjórnar­ innar, þá mun heildarástandið er varðar mannréttindi, sérstaklega réttindi kvenna, stúlkna og minni­ hlutahópa, halda áfram að vera áskorun í Afganistan. En þrátt fyrir það þá var nauðsynlegt fyrir okkur að vera áfram í landinu og búa til verklag sem gerði okkur kleift að vera til staðar og bjóða fram þjónustu okkar í sérhverjum lands­ hluta.“ Kom aldrei til greina að fara Þannig að það var aldrei spurning um hvort þið mynduð yf irgefa Afganistan eða ekki? „Nei, það kom aldrei til greina, Siðferðisleg skylda að verða eftir Dr. Aleksandar Sasha Bodiroza segir Sameinuðu þjóð- irnar glíma við mörg krefjandi verkefni í Afganistan. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR einhver þarf að vera eftir. Ef þú lítur á verkefni Mannfjöldasjóðs Sam­ einuðu þjóðanna þá tókst okkur í allan þennan tíma að halda áfram að bjóða fram þjónustu okkar fyrir fórnarlömb kynbundins of beldis, okkur tókst að halda áfram að bjóða óléttum konum upp á lífsnauðsyn­ lega þjónustu í afskekktustu hér­ uðum landsins. Á undanförnu ári höfum við skalað upp gjörvalla áætlun okkar.” Langflestir við fátæktarmörk Talibanar eru trúarlegur öfgahópur sem byggir stjórnarhætti sína á sjaríalögum, ströngustu túlkun Íslamstrúar. Þó hefur borið á ein­ hverjum umbótum í stjórnarhátt­ um þeirra frá því þeir voru síðast við völd í Afganistan, í byrjun þessarar aldar. Spurður um hvort Tali banar hafi sýnt vilja til samstarfs við UNFPA segir dr. Sasha: „Já, að sjálfsögðu. Það er ekki svo margt í gangi í Afganistan núna vegna afleiðinga efnahagshrunsins, hruns fjármálakerfisins, nokkurra mánaða hruns heilbrigðiskerfisins og alls sem því fylgdi. Sum af spá­ líkönunum sem voru gerð af koll­ egum okkar hjá Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) gefa til kynna að um 97 prósent íbúa Afganistan muni bráðlega verða nálægt eða undir fátæktarmörkum. Það mun hafa gríðarleg áhrif og án viðurkenningar, án aðgengis að auð­ lindum utan landsins, er ástandið gífurlega krefjandi fyrir byltingar­ stjórnina. Sameinuðu þjóðirnar eru einu alþjóðasamtökin sem bjóða upp á lífsnauðsynlega þjónustu í landinu, ekki bara mannúðarstarf og viðbragðsþjónustu.“ Samstarf við samfélagið Að sögn dr. Sasha eru meginverk­ efni UNFPA í Afganistan þrjú. Í fyrsta lagi mæðravernd, þar sem þau bjóða upp á lífsnauðsynlega þjónustu fyrir óléttar konur. Í öðru lagi vernd og þjónusta fyrir fórnar­ lömb kynbundins ofbeldis. Í þriðja lagi afhending sjúkragagna á borð við sjúkrakassa fyrir kynheilbrigði og getnaðarvarnir. „Það sem er áhugavert við flagg­ skipið okkar um mæðravernd, sem kallast Family Health House, er að við vinnum það í samstarfi við samfélagið. Það er örugglega ein af ástæðunum fyrir því að okkur tókst að vinna bug á þeim hindrunum og afskiptum sem voru sett á af byltingarstjórninni. Í samstarfi við samfélagið bjuggum við til skipu­ lag sem gegnir hlutverki fæðingar­ deildar. Síðan veljum við stúlkur úr samfélaginu sem ganga í tveggja ára ljósmæðraskóla, taka svo fjög­ urra mánaða starfsnám á spítala og snúa loks aftur í samfélagið og hefja störf sem ljósmæður. Bara í síðasta mánuði kláruðu 58 stúlkur ljósmæðranámið og við erum að tala um stúlkur frá afskekktustu héruðum landsins.“ Von með nýrri kynslóð Þannig að þú ert vongóður um að árangur geti náðst í Afganistan? „Það er ein saga sem ég þreytist ekki á að segja um unga stráka, 15 til 16 ára gamla, sem ég hitti í Nan­ gahar­héraði. Þegar ég spurði þá hver væri fyrirmynd þeirra þá völdu þeir hina frægu dönsku fótbolta­ konu Nadiu Nadim sem fæddist í Afganistan, fluttist úr landi og varð danskur ríkisborgari, spilaði fyrir danska landsliðið í knattspyrnu, kláraði læknanám og varð ein af bestu fótboltakonum heims. Ég var að búast við því að þeir myndu nefna einhvern eins og Messi eða Ronaldo en þeir völdu Nadiu. Það segir manni að það er von fyrir Afganistan með hinni nýju kyn­ slóð.“ Ástandið í Afganistan var í algleymi vikurnar og mánuðina í kjölfar valdatöku Talibana í ágúst 2021. Landið glímir nú við gríðar­ stór vandamál á borð við hungurs­ neyð, vöruskort og djúpa efnahags­ kreppu og finnst mörgum sem vel þekkja til Afganistan sem vanda­ mál landsins hafi fallið í skuggann af öðrum heimskrísum. Dr. Sasha tekur undir þetta. „Núna þegar fókusinn hefur algjörlega færst yfir á það sem er að gerast í Úkraínu og þaðan yfir á alþjóðlegu efnahagskrísuna þá líður okkur eins og Afganistan sé á vissan Þorvaldur S. Helgason tsh @frettabladid.is hátt í skugga alls þess. Það hefur víð­ tæk áhrif, bæði hvað varðar pólitík og öryggismál.“ Vilja yfirgefa landið Að sögn dr. Sasha eru ýmsir miður uppörvandi hlutir að gerast í Afgan­ istan er tengjast kvenréttindum, rétti kvenna og stúlkna til náms og vinnu, svo eitthvað sé nefnt. Þá lýsir hann yfir miklum áhyggjum af framtíðarhorfum ungs fólks í landinu, en Afganistan er mjög ung þjóð með tæplega 64 prósent fólks undir 25 ára aldri. UNFPA hefur staðið fyrir rýnihópum með ungum Afgönum sem hafa gefið sláandi niðurstöður. „Ungt fólk í Afganistan í dag árið 2022 er atvinnulaust, aftengt, sér enga framtíð og vill f lytja burt frá landinu. Þegar maður stendur fyrir umræðum í rýnihópum þá eru allt­ af ein til tvær manneskjur sem fylgja ekki straumnum og hugsa öðruvísi, vilja vera eftir út af mismunandi ástæðum. En hér erum við að tala um 100 prósent fólks sem vill fara. Þann­ ig að ég held að það sé siðferðis­ leg skylda okkar að vera hér, veita þjónustu og halda áfram mannúð­ araðstoð sem mun ekki bara bjarga lífum heldur einnig koma í veg fyrir það sem gæti komið,“ segir Sasha. n Sjálfboðaliðar bjóða afgönskum stúlkum upp á leynilega kennslu í borginni Kandahar. Samkvæmt reglum Talibana mega stúlkur sem eru eldri en tólf ára enn ekki sækja sér menntun í gagnfræða- og menntaskólum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 30 Helgin 13. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.