Fréttablaðið - 13.08.2022, Blaðsíða 84

Fréttablaðið - 13.08.2022, Blaðsíða 84
Ég var bara sjóðheitur og það var gaman að jafna vallarmetið. Það gekk vel allt mótið, sama hverjar voru að spila með mér. Perla Sól Sigurbrandsdóttir Maður er orðinn einn af gömlu körlunum í afreksgolfinu á landinu núna. Kristján Þór Einarsson Golfsamband Íslands er næstfjölmennasta sérsambandið innan vébanda ÍSÍ. Knatt- spyrnusamband Íslands er það fjöl- mennasta. Ólafur Pálsson olafur@vf.is - Páll Ketilsson pket@vf.is Golffréttir og umfjöllun alla daga „Mig hefur alltaf langað að vinna þetta mót, alveg frá því ég spilaði fyrst á Íslands- mótinu í Eyjum þegar ég var 11 ára,“ segir Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Íslands- meistari í golfi 2022. Mótið fór fram í Eyjum og var fjórðu og síðustu umferðinni aflýst vegna mikillar rigningar á sunnudaginn í Herjólfsdal. kylfingur.is „Tilfinningin var svolítið skrýtin þegar ég fékk að vita það að það yrði ekki leikið meira á loka- hringnum. Ég vildi alveg spila og mér gekk vel þessar fjórar holur sem ég lék þarna í rigningunni á fjórða keppnisdegi.“ Fórstu með það markmið að vinna mótið áður en þú mættir til Eyja? „Ég var alveg með það bak við eyrað án þess að setja einhverja slíka pressu á mig. Ég náði að ein- beita mér þannig að ég var bara að spila mitt golf. Það gekk vel allt mótið, sama hverjar voru að spila með mér.“ Perla Sól hefur verið valin í Evr- ópulið ungmenna sem keppir gegn Bretlandi og Írlandi síðar í þessum mánuði. Mótið er með svipuðu fyrirkomulagi og hin þekkta Ryder keppni. „Það verður mjög spenn- andi og skemmtilegt. Fram undan eru mót hér heima áður en ég fer í þetta mót, Unglingameistaramótið og Korpubikarinn.“ Perla Sól fagnaði Evrópumeistara- titli 16 ára og yngri í sumar og er með stór markmið. Hún er að byrja í Verslunarskólanum í haust en svo er stefnan sett á að fara í háskóla í Bandaríkjunum og draumurinn er síðan að gerast atvinnukylfingur. Telur hún það vera raunhæft markmið? „Já, mér finnst það alveg raunhæft en auðvitað eru nokkur ár í að ég reyni það. Það er alla vega stefnan.“ Perla Sól vakti athygli á Íslands- mótinu þegar hún barðist við bestu golfkonur landsins, en fyrir mótið var sagt frá því að kvennaflokkur- inn hafi aldrei verið jafn sterkur og nú, þar sem meðal þátttakenda voru atvinnukylfingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Perla Sól hefur sýnt að hún er með mjög gott hug- arfar og greinilega mjög sterk and- lega. Hún sýndi það meðal annars í Íslandsmótinu. Perla Sól byrjaði í golfi 8-9 ára þegar hún fór að fylgja Dagbjarti bróður sínum sem er líka mjög góður kylfingur. Hún var fyrst valin í landsliðshóp 12 ára og vakti þá strax mikla athygli. En hvað finnst henni skemmti- legast að æfa í golfinu? „Ætli það sé ekki stutta spilið,“ sagði hún og sýndi það svo sannar- lega í mótinu í Eyjum þegar hún tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í golfi 2022. Á vefnum kylfingur.is má sjá myndskeið og viðtöl við Kristján Þór. n Perla Sól stefnir hátt í framtíðinni „Ég er aðeins að berjast við tilfinn- ingarnar. Það hefur gengið á ýmsu í mínu lífi að undanförnu og þessi sigur er mjög sætur,“ sagði Kristján Þór Einarsson, Golfklúbbi Mosfells- bæjar, en hann varð Íslandsmeistari í karlaflokki í golfi 2022. Þetta er í annað sinn sem Kristján Þór tryggir sér titilinn en í bæði skiptin hefur hann komið í Eyjum. Kristján lék mjög gott golf fyrstu tvo keppnisdagana og frábært á þeim þriðja, þegar hann lék á sex höggum undir pari og var með tveggja högga forskot fyrir loka- hringinn. Hann var enn með sömu forystu þegar þrír efstu kylfingarnir voru búnir að leika 6 holur á loka- hringnum. Þá var mótið stöðvað vegna mikillar rigningar og vinds. Svo var lokahringnum aflýst þegar leið á daginn. Kristján Þór stóð þá uppi sem sigurvegari. „Ef ég á að vera alveg heiðarlegur þá get ég alveg sagt að ég fór ekki til Eyja með það markmið að fókusa á sigur, heldur einungis að spila mitt golf og njóta þess að gera það. Mér líður alltaf vel í Vestmannaeyjum enda á ég rætur þangað.“ Þessi sigur kom þá kannski aðeins á óvart því þú hefur ekki verið áber- andi síðustu ár? „Það hefur gengið mikið á í mínu lífi fyrir utan golfvöllinn síðustu þrjú ár þannig að golfið hefur aðeins þurft að víkja til hliðar. En ég mætti fullur áhuga í vor og ég hef spilað mikið og æft vel í sumar. Markmiðin voru ekkert sérstök, heldur að ná golfgleðinni aftur, sem tókst. Getan er til staðar og talsverð reynsla. Maður er orðinn einn af gömlu körlunum í afreksgolfinu á landinu núna. Íslandsmeistaratitillinn var því frábær bónus á gott sumar,“ sagði Kristján Þór Einarsson. Á vefnum kylfingur.is má sjá myndskeið og viðtöl við Kristján Þór. n Kristján Þór kann vel við sig í Vestmannaeyjum Sig urður Bjark i Blumenstein, Golf klúbbi Reykjavíkur, var heit- asti kylfingurinn á þriðja hring á Íslandsmótinu í Eyjum og jafnaði vallarmetið, 8 undir og 62 högg sem Haraldur Franklín Magnús setti 2018. „Mér leið bara eins og öll högg væru að fara nálægt. Ég var að hitta allar brautir og öll pútt voru að fara í. Ég var bara sjóðheitur og það var gaman að jafna vallarmetið,“ sagði Sigurður eftir hringinn. Hann endaði í 2.-3. sæti með Kristófer. Íslandsmeistarinn í kvenna- flokki 2021, Hulda Clara Gestsdótt- ir, GR, jafnaði einnig vallarmetið í Eyjum sem Anna Sólveig Snorra- dóttir, GK, átti upp á 65 högg. 95 keppendur komust í gegnum köttið – það hefði ekki verið hægt að ná þessu á einum degi. Næsta skref er að mótsstjórn geti brugðist við með því að setja f leiri út í niðurskurði. n Sigurður Bjarki Blumenstein jafnaði vallarmetið Starfsmenn Golfklúbbs Vestmanna- eyja reyndu hvað þeir gátu þegar veðurguðirnir „grétu“ og sendu mikla rigningu yfir golfvöllinn í Eyjum. Hlé var gert á keppni sem hófst á sunnudagsmorgun, fjórða keppnisdegi, en allt kom fyrir ekki og mótinu var aflýst klukkan 15.30 en þá var völlurinn nánast á floti og ekki leikhæfur. Ekki voru allir sáttir við þá ákvörðun mótsnefndar að bíða ekki aðeins lengur og freista þess að ljúka leik. n Allt á floti í Eyjum Kylfingum á Íslandi heldur áfram að fjölga og samkvæmt nýjustu tölum frá 1. júlí síðastliðnum eru um 23.300 kylfingar skráðir sem félagsmenn í golfklúbba landsins. Þetta er 5% fjölgun frá árinu 2021 og hafa kylfingar aldrei verið fleiri innan raða Golfsambands Íslands. Í fyrra var fjölgunin um 12%. Þetta kemur fram í frétt á golf.is. Mesta fjölgunin er í aldurshópn- um 19 ára og yngri. Í aldurshópn- um 16-19 ára er 15% aukning og í aldurshópnum 15 ára og yngri er 12% fjölgun. Í elsta aldurshópnum, 80 ára og eldri, er einnig töluverð fjölgun eða sem nemur 12%. Hlutfall kvenna er svipað og á undanförnum árum eða um 33% en markmið Golf- sambandsins er að hlutfall kvenna verði 40%. Börn og unglingar eru 14% af kylfingum landsins og það setur Ísland í 4. sæti í Evrópu yfir hlutfall 18 ára og yngri skráð í golf- klúbba. Golfsambandið er næstfjölmenn- asta sérsambandið innan raða ÍSÍ en Knattspyrnusamband Íslands er það fjölmennasta með um 30.000 iðkendur. Árið 1934 var fyrst byrjað að halda utan um fjölda félagsmanna í golfklúbbum á Íslandi. Í fyrstu talningunni voru 132 félagsmenn, árið 1990 voru 3.400 einstaklingar skráðir í golfklúbba landsins. Tíu árum síðar eða árið 2000 hafði þeim fjölgað mikið eða í 8.500. Á næstu 10 árum varð gríðarleg aukning og rétt um 15.800 félagsmenn voru skráðir árið 2010. n Kylfingar hafa aldrei verið fleiri Perla Sól spilaði frábærlega á Íslandsmótinu í Vestmanna- eyjum. Um er að ræða annan Íslandsmeistaratitil Kristjáns Þórs. Sigurður Bjarki jafnaði vallar- metið í þriðja hring á 8 undir pari. Golfíþróttin nýtur vaxandi vinsælda hér á landi. 44 Bílar 13. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐGOLF kylfingur.is FRÉTTABLAÐIÐ 13. ágúst 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.